Fréttablaðið - 21.03.2016, Side 22
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Lára Óskarsdóttir er sjálfstætt
starfandi ACC stjórnendamark-
þjálfari og hefur haldið námskeið
í tímastjórnun. Hún segir mikil-
vægt að fólk sé sjálft við stjórn-
völinn í verkefnum dagsins og oft
sé álagið afleiðing þess að tím-
inn nýtist ekki til fulls. Það sé
slítandi að vera stanslaust á eftir
áætlun en það geti kostað talsvert
átak að ná tökum á tímastjórn og
brjóta upp löngu fastmótaðar
venjur.
„Fólk kemur sér upp einhverj-
um vana yfir vinnudaginn og
rekur sig svo á þegar líður á dag-
inn að það nær ekki að klára verk-
efnin. Fer heim, yfir sig stress-
að yfir ókláruðum verkum og við
tekur heimilislífið. Við erum eins
og hamstrar í hjóli,“ segir Lára.
Hún segir meirihluta fólks láta
verkefnin stjórna tímanum, sem
þýði að það sé ofurselt dagskrá
sem aðrir stjórni. Við þær að-
stæður brenni fólk hratt út.
„Í sumum tilfellum ræður fólk
illa við að segja við aðra, „nei, ég
ætla mér að setja hlutina svona
upp,“ en þeir sem þú veist að
halda vel utan um tíma sinn hafa
fundið leið til þess og eru stjórn-
endur eigin verkefna,“ segir
Lára. „Fólk undir miklu álagi en
með stjórn á álaginu þolir miklu
meira en sá sem er undir álagi
sem aðrir stjórna. Þar er mikill
munur á.“
Excel leysir ekki allt
„Fólk heldur gjarnan að með því
að læra á einhver verkfæri eins
og skipulagstól og forrit muni það
breyta öllu. Svipað eins og við
höldum að með því að kaupa lík-
amsræktarkort komumst við sjálf-
krafa í gott form. Það er þó ekki
fyrr en við förum að vinna mark-
visst með þau atriði sem ekki eru
að virka að eitthvað gerist. Ef við
ætlum ekki að falla strax í sama
farið eftir viku eða mánuð þarf
að breyta vanahegðun sem við
höfum komið okkur upp og það
getur verið heilmikið átak, jafn-
vel ekki minna en þegar fólk hætt-
ir að reykja.“
En hvað er til ráða?
„Í fyrsta lagi verðum við að setj-
ast niður, draga andann og endur-
hugsa allt okkar verklag. Horfa
þarf yfir daginn og skoða hverju
við getum breytt strax og hverju
við þurfum að vinna í til lengri
tíma. Þau atriði sem snúa að okkur
sjálfum getum við lagað strax. Til
dæmis hvernig við vinnum gegn-
um tölvupóstinn okkar, getum við
sleppt þessum fundi? Gef ég mér
yfirleitt tíma til að klára verkefni
eða leyfi ég alltaf truflun? Stærri
hlutir sem snerta aðra en bara
okkur sjálf þarf lengri tíma til að
vinna í og þarf að gera í samvinnu,
endurhugsa verklag og skipulag
tíma. Svo þarf aðhald til að falla
ekki í sama farið, alveg eins og í
líkamsræktinni.“
góð tímastjórnun minnkar streitu
Streita og álag eru helstu óvinir vinnandi fólks. Margir kannast við að ná ekki að ljúka verkefnum dagsins og þurfa jafnvel að taka ókláruð
verk með sér heim. Lára Óskarsdóttir, ACC stjórnendamarkþjálfi, segir tímastjórnun mikilvæga til að brenna ekki út í starfi.
lára óskarsdóttir er sjálfstætt starf-
andi aCC stjórnendamarkþjálfi. Hún
segir fólk brenna út ef því finnist það
stanslaust á eftir áætlun.
mynd/lÁra óSkarSdóttir
„fólk heldur gjarnan að með því að læra á einhver verkfæri eins og skipulagstól og forrit muni það breyta öllu. Svipað eins og
við höldum að með því að kaupa líkamsræktarkort komumst við sjálfkrafa í gott form.“ nordiC pHotoS/getty
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Ástríða fyrir góðu kaffi er leiðarljósið við
hönnun og framleiðslu allra FRANKE
kaffivéla. Til að leita betri lausna
í framleiðslu okkar höfum við kallað eftir áliti
og reynslu frá rekstraraðilum veitingastaða,
kaffibrennslna og kaffiunnenda í þróunarferli
okkar. Þessi þrotlausa vinna skilar okkur nú
nýrri gerð kaffivéla, A600 og A200.
SEM ÞÚ GETUR
ALLTAF STÓLAÐ Á
UPPLIFUN
fyrirtækjaþjónUSta kynningarblað
21. mars 20162