Fréttablaðið - 21.03.2016, Síða 23
Fyrirtækjaþjónustan
sér um að halda utan um
öll samskipti og innkaup
þannig að framkvæmdir
gangi sem best fyrir sig.
Þannig fá viðskiptavinir
betri yfirsýn yfir útgjöld-
in, minnka fyrirhöfn og
spara líka tíma.
Guðrún Hlín Þórarinsdóttir
„Við veitum aðstoð og auðveldum
viðskiptavinum okkar ferlið, allt frá
hugmyndavinnunni til frágenginnar
aðstöðu, hvort sem verið er að taka
fyrstu skrefin, breyta til eða endur
nýja alveg,“ segir Guðrún Hlín Þór
arinsdóttir hjá Fyrirtækjaþjónustu
IKEA.
Starfsfólk Fyrirtækjaþjónust
unnar býr yfir þekkingu á vöru
úrvali og þjónustu IKEA og getur
því aðstoðað þegar velja þarf við
eigandi húsbúnað, t.d. miðað við
hversu mikið mæðir á honum.
„Viðskiptavinir fá ráðgjöf við val
á öllu frá teskeiðum og upp úr, “
segir Guðrún. Þægindin felast
fyrst og fremst í því að Fyrir
tækjaþjónustan sér um að halda
utan um öll samskipti og innkaup
þannig að framkvæmdir gangi
sem best fyrir sig. Þannig fá við
skiptavinir betri yfirsýn yfir út
gjöldin, minnka fyrirhöfn og
spara líka tíma, sem er það eina
sem allir fá jafn mikið af og virð
ist yfirleitt naumur.
Fjölbreytt flóra fyrirtækja
Fyrirtækjaþjónustan aðstoðar alls
kyns fyrirtæki við innréttingu hús
næðis en hótel og gistiheimili hafa
verið áberandi undanfarin miss
eri. „Við höfum komið að því að
innrétta og standsetja gistirými af
öllum stærðum. Íbúðahótel verða
til dæmis sífellt algengari og þá er
algengt að við hönnum eldhúsað
stöðu sem uppfyllir öllu helstu skil
yrði sem eldhús þarf að uppfylla, en
rúmast á örfáum fermetrum,“ segir
Guðrún Hlín. „Þarfirnar eru mis
jafnar. Við sinnum hverju fyrirtæki
með það í huga og getum bent fólki á
leiðir eða vörur sem það hefði mögu
lega ekki komið auga á sjálft. Það
er þetta persónulega samband sem
skiptir máli til að við náum að sinna
verkefninu vel og viðskiptavinurinn
sé ánægður með útkomuna.“
Hentar líka einstaklingum
Guðrún segir Fyrirtækjaþjónust
una einnig geta gagnast einstakling
um sem standa frammi fyrir stór
framkvæmdum. „Það er til dæmis
tilvalið þegar verið er að innrétta
nýtt húsnæði eða taka stærri hluta
þess í gegn eins og eldhús eða bað.
Þá veitum við í raun sömu þjónustu
og fyrirtækjunum; höldum utan um
ferlið, veitum ráðgjöf og léttum við
skiptavinunum þannig lífið svolítið.“
Byggist á góðu samstarfi
Viðskiptavinum stendur önnur
þjónusta IKEA einnig til boða eins
og samsetning, heimsending o.fl.,
gegn gjaldi. Annars er ráðgjöf
Fyrir tækjaþjónustunnar og teikni
þjónusta innréttinga ókeypis. „Við
skiptavinurinn tekur einfaldlega
fyrsta skrefið með því að hafa sam
band við okkur og þaðan hefjum við
samstarf sem byggist á þörfum við
komandi,“ segir Guðrún Hlín.
Allt frá teskeiðum og upp úr
Allir í fyrirtækjarekstri vita að útlit og aðstaða skipta máli, fyrir starfsfólk og viðskiptavini. Við innréttingu fyrirtækis, hvort sem þar starfar
einn eða hundrað, þarf að huga að öllu frá grunnþörfum til smærri atriða sem setja punktinn yfir i-ið. Þetta tekur tíma og krefst þekkingar.
Tími er dýrmætur og er oft betur varið í annað en að velja húsbúnað og skipuleggja. Þar getur fyrirtækjaþjónusta IKEA einfaldað lífið.
Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustu IKEA veitir ráðgjöf um vörur og þjónustu. Frá
vinstri: Ingvi, Ivan Ívar, Drífa, Guðrún Hlín og Viðar. Hægt er að setja sig í samband
við þau á sala@IKEA.is
Skrifstofuhúsgögn sem vottuð eru til notkunar í atvinnustarfsemi fást í miklu úrvali í IKEA.
Bæklingur Fyrirtækjaþjónustunnar er nýkominn út. Hann má nálgast á vef IKEA og í
versluninni.
Aðstoð við innréttingu hótela og gistiheimila hefur verið áberandi undanfarin misseri.
Fyrirtækjaþjónustan aðstoðar fólk í fjölbreyttum rekstri um val á öllu frá borðbúnaði til inn-
réttinga.
Kynningarblað FyrIrtæKjAÞjónuStA
21. mars 2016 3