Fréttablaðið - 21.03.2016, Page 46
2 1 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r6 F ó l k ∙ k y N N i N G a r b l a ð ∙ h e i m i l i
365.is Sími 1817
Sportpakkinn er tilvalinn fyrir þá sem elska íþróttir. Enski
boltinn, Meistaradeildin, Evrópuboltinn ásamt spjallþáttum
með spekingunum. Körfubolti, Formúlan, NFL, bardaga-
íþróttir og margt annað sem fær hjartað til að slá örar.
YFIR
1.300
BEINAR
ÚTSENDINGAR Á ÁRI
Sportpakkinn inniheldur: Stöð 2 Sport, hliðarrásir, Eurosport, Extreme
Sport, Motors TV, Sky News, NBA TV, MUTV, LFC TV og Chelsea TV.
ENDALAUST
NET
Á 1.000 KR.
FYLGIR SPORTPAKKA
365*
*Undanskilið er aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is.
Samsetning sjónvarpspakka getur breyst án fyrirvara.
Ýmissa spennandi grasa kenndi á
nýliðnum HönnunarMars en fjöldi
íslenskra hönnuða kynnti nýjar
vörur. Ingibjörg Ósk Þorvalds-
dóttir keramiker heldur úti vinnu-
stofu í Íshúsinu í Hafnarfirði þar
sem fjöldi skapandi fólks hefur
komið sér fyrir. Ingibjörg kynnti
tvískipta blómapotta úr postulíni í
versluninni Hrím Eldhús á Lauga-
vegi.
„Þetta eru sjálfvökvandi pottar
úr postulíni í tveimur hlutum, sá
efri fyrir mold og jurtina og neðri
hlutinn er fyrir vatn. Úr moldar-
pottinum liggur band niður í vatnið
sem sér um að draga vökva til jurt-
arinnar,“ útskýrir Ingibjörg.
„Ég kalla þennan pott Lífæð.
Þráðurinn sem veitir vatninu er
eins og naflastrengur til jurtarinn-
ar. Ég hannaði pottana með krydd-
jurtarækt í huga en auðvitað ganga
þeir vel undir hvaða blóm sem er,
sem kemst fyrir í pottinum.“
Pottarnir fara vel í glugga.
Þægilegt er að ganga um þá en
á neðri hlutanum er stútur til að
hella vatni í pottinn. Stúturinn
virkar einnig sem hald til að stinga
þumlinum í og ná taki á pottinum.
„Stúturinn er hentugt hald
þegar potturinn er færður til í
glugganum og eins til að færa
hann yfir á matarborðið, svo fólk
geti klipið beint af jurtinni á disk-
inn og út í súpuna. Ég geri það sjálf
og finnst þægilegt. Pottinn gerði
ég í nokkrum litum fyrir Hönnun-
arMarsinn og á sýningunni raðaði
ég mismunandi litum saman. Það
kemur skemmtilega út,“ segir Ingi-
björg en potturinn fæst í svörtu,
sandlitu og appelsínugulu. Á næstu
vikum stendur til að framleiða
fleiri liti.
En hvernig voru viðtökurnar á
marsinum?
„Það gekk mjög vel á Hönnunar-
Marsinum og pottarnir eru þegar
komnir í sölu í Hrími Eldhúsi. Svo
sel ég þá einnig á vinnustofunni
hjá mér í Íshúsi Hafnarfjarðar.
Nánar má forvitnast um hönnun
Ingibjargar undir heitinu inosk á
Facebook.
Sjálfvökvandi
blómapottar
Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir keramiker kynnti tvískipta
kryddjurtapotta á nýliðnum HönnunarMars. Pottana kallar hún lífæð,
þeir eru sjálfvökvandi og fáanlegir í nokkrum litum.
Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir keramiker kynnti nýjar vörur á HönnunarMars. MyNd/ANtoN brINk
Potturinn Lífæð er sjálfvökvandi kryddjurtapottur.
Potturinn fæst í svörtu, appelsínugulu og sandlitu en von er
á fleiri litum.
Stútur er á neðri hlutanum til að hella vatni í pottinn.
Stúturinn virkar einnig sem gott hald á pottinum.