Fréttablaðið - 21.03.2016, Qupperneq 50
Íslenski þekkingardagurinn verður
haldinn í dag í Sjóminjasafni Reykja-
víkur. Félag viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga stendur árlega fyrir vali á
þekkingarfyrirtæki ársins og viðskipta-
eða hagfræðingi ársins og verða verð-
launin afhent á viðburðinum.
Þema verðlaunanna í ár er „Mann-
auðsmál í víðum skilningi“ og því
verður það fyrirtæki eða stofnun sem
þykir hafa skarað fram úr á sviði mann-
auðsmála verðlaunað. Þeir tilnefndu
eru valdir af fimm manna valnefnd
sem skipuð er af stjórn félagsins og
hefur valnefndin því frjálsar hendur
með valið. „Það er byrjað á tilnefn-
ingum frá félagsmönnum og öðrum
og svo hittist valnefndin og þau fara
yfir tilnefningarnar og búa til kríteríu
fyrir verðlaunin. Því næst heimsækir
nefndin nokkur fyrirtæki og velur í
kjölfarið þá sem hljóta tilnefningu og
svo sigurvegarann,“ segir Dögg Hjalta-
lín, viðskiptafræðingur og formaður
stjórnar Félags viðskiptafræðinga og
hagfræðinga. Dögg segir einnig að með-
limir valnefndarinnar séu sérfræðingar
á sviði mannauðsmála.
Fyrirtækin þrjú sem tilnefnd eru
til íslensku þekkingarverðlaunanna
eru Reiknistofa bankanna, Kolibri og
Íslandsbanki.
Á viðburðinum verður einnig valinn
viðskipta- eða hagfræðingur ársins en
sigurvegarinn er valinn af stjórn félags-
ins.
Íslenski þekkingardagurinn hefur
verið haldinn frá árinu 2000 en í ár
verður viðburðurinn með örlítið
breyttu sniði. „Við verðum einungis
með verðlaunaafhendingu og stutta
kynningu frá þeim fyrirtækjum sem til-
nefnd eru. Áður var bæði ráðstefna og
verðlaunaafhending en nú ákváðum við
að hafa örráðstefnu og beina athyglinni
að þeim sem tilefndir eru,“ segir Dögg.
Dögg bætir við að í ár verði áherslan á
þema dagsins og munu tilnefndu aðil-
arnir því kynna sín mannauðsmál.
Með viðburðinum sækist félagið
eftir því að varpa ljósi á þá jákvæðu
hluti sem verið er að gera innan fyrir-
tækjanna og vekja athygli á starfsemi
þeirra fyrirtækja sem tilnefnd eru að
sögn Daggar. „Valið á viðskiptafræð-
ingi eða hagfræðingi ársins er svo til að
vekja athygli á stéttinni almennt. Við
viljum auka sýnileika menntunarinnar
og leggja áherslu á fagmennsku,“ segir
Dögg.
Íslensku þekkingarverðlaunin eru
hápunktur ársins í starfi Félags við-
skiptafræðinga og hagfræðinga og hefur
viðburðurinn verið vel sóttur undan-
farin ár að sögn Daggar.
„Félagið samanstendur af öllum við-
skiptafræðingum og hagfræðingum
sem útskrifast á Íslandi, og það eru
um tíu þúsund, en virkir félagar eru í
kringum 1.000,“ segir Dögg.
Verðlaunin verða afhent í Sjó-
minjasafni Reykjavíkur í dag kl. 16-18
og mun forseti Íslands og verndari
verðlaunanna, Ólafur Ragnar Gríms-
son, afhenda þekkingarverðlaunin og
heiðra viðskiptafræðing eða hagfræð-
ing ársins. Að athöfninni lokinni verður
haldin samkoma undir ljúfum tónum
og léttum veitingum. Enn er opið fyrir
skráningar og viðburðurinn er opinn
öllum. thordis@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Laufey Heiðbjört Helgadóttir
frá Grímsstöðum við Mývatn
andaðist í Brákarhlíð í Borgarnesi
föstudaginn 11. mars. Útförin
fer fram frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 23. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Ella og Dísa Steingrímsdætur
og Kristinn Helgi Eldjárnsson
Elskulegi eiginmaður minn,
tengdasonur, faðir, tengdafaðir og afi,
Hilmar Jónasson
frá Grundarbrekku í
Vestmannaeyjum,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 16.
mars síðastliðinn. Útför hans fer fram frá
Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu miðvikudaginn
23. mars kl. 11.
Ester Árnadóttir
Líney Guðmundsdóttir
Jóhanna Eldborg Hilmarsd. Guðmundur Gunnarsson
Árni Ásmundur Hilmarsson
Viktor Örn Guðmundsson
Jökull Freyr Guðmundsson
Axel Rúnar Guðmundsson
1413 Hinrik V. tekur við konung-
dómi í Englandi.
1734 Jarðskjálftar verða
á Suðurlandi, með þeim
afleiðingum að sjö eða
átta menn farast og tíu
bæir hrynja til grunna
en um 60 bæir skemm-
ast, flestir í Ölfusi, Flóa
og Grímsnesi.
1857 Jarðskjálfti í Tókýó
í Japan varð yfir 100.000
manns að bana.
1935 Reza Pahlavi keisari biður
alþjóðasamfélagið að kalla landið
sitt Íran en það bar áður nafnið Persía.
1963 Alcatraz-fangelsinu á San Francisco-flóa er lokað en fang-
elsið hafði fyrir lokunina hýst nokkra hættulegustu fanga Banda-
ríkjanna, meðal annars Al Capone.
1968 Í Vestmannaeyjum mælist 90 sentimetra djúpur snjór og
þekkjast ekki önnur dæmi slíks þar.
1982 Fjarhitun Vestmannaeyja formlega tekin í notkun en hún var
fyrsta hraunhitaveita í heimi.
1991 Þjóðleikhúsið er opnað á ný eftir miklar viðgerðir.
2010 Eldgos hefst í Fimmvörðuhálsi við Eyjafjallajökul.
Merkisatburðir 21. mars Mannauðsmál í kastljósið
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga veitir íslensku þekkingarverðlaunin og heiðrar
viðskipta- eða hagfræðing ársins. Ljósi varpað á hið jákvæða og athygli vakin á stéttinni.
Á þessum degi árið 1965 hófu 3.200
mótmælendur göngu yfir Alabama-ríki til
að krefjast kosningaréttar fyrir Banda-
ríkjamenn af afrískum uppruna. Mann-
réttinda frömuðurinn kunni Martin Luther
King Jr. fór fyrir göngunni, sem hófst í
bænum Selma í Alabama og endaði í
höfuðstað ríkisins, Montgomery. Tvisvar
áður höfðu mótmælendurnir reynt að
ganga þessa 87 kílómetra til Montgomery
en lögreglunni í Alabama hafði í bæði
skiptin tekist að snúa göngunni við.
Bærinn Selma hafði orðið miðpunktur
baráttu blökkumanna fyrir kosningarétti
í Suðurríkjunum. Ríkisstjórinn í Alabama
var opinber andstæðingur kosninga-
réttarins og yfirvöld bæjarins voru
sérlega hatursfull í aðgerðum sínum til
að bæla niður aðgerðir í réttindabaráttu
blökkumanna. King kom til bæjarins í
janúar þetta ár til að leggja baráttunni lið.
Augu heimsins beindust umsvifalaust að
bænum við komu Kings enda var hann
orðinn heimsþekktur eftir að Nóbels-
verðlaunin komu í hans hlut árið 1964.
Gangan lagði af stað eftir að Lyndon
Johnson, forseti Bandaríkjanna, hafði lýst
yfir samúð með málstað mótmælend-
anna. Bandaríski herinn og Þjóðvarnar-
liðið mættu líka á svæðið til að tryggja
öryggi göngufólks.
Þ EttA G E R ð i St : 2 1 . M A R S 1 9 8 9
Blökkumenn ganga fyrir kosningarétti
Martin Luther King fremstur í flokki.
Dögg Hjaltalín, viðskiptafræðingur og formaður stjórnar Félags viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga. FréttabLaðið/SteFán
Það er byrjað á tilnefn-
ingum frá félagsmönn-
um og öðrum og svo hittist
valnefndin og þau fara yfir
tilnefningarnar og búa til
kríteríu fyrir verðlaunin.
2 1 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r18 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
tímamót