Fréttablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 78
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Vigdís Var
að klifra
í leikmyndinni
þegar slysið
Varð, hún féll
tVo og hálfan
metra og lenti
á millipalli á
fótunum og í
kjölfarið féll
hún áfram
aðra eins hæð,
og skall flöt á
sViðið.
Lára Jóhanna Jónsdóttir leik-kona kemur til með að taka við aðalhlutverkinu fyrir Vig-
dísi Hrefnu Pálsdóttur, sem því
miður getur ekki tekið þátt vegna
slyssins,“ segir Ari Matthíasson
þjóðleikhússtjóri og bætir við að
fólki hafi eðlilega brugðið þegar
slysið varð.
Frumsýna átti hrollvekjuna
Hleyptu þeim rétta inn í leikstjórn
Selmu Björnsdóttur á stóra sviði
Þjóðleikhússins í dag, en frumsýn-
ingunni hefur verið frestað þar sem
Vigdís Hrefna Pálsdóttir, aðalleik-
kona sýningarinnar, ristarbrotnaði
á vinstri fæti og hlaut tvöfalt hæl-
brot á hægri fæti eftir hátt fall á
stóra sviðinu, fyrir framan nær full-
an sal á lokaæfingu í Þjóðleikhúsinu
síðastliðið þriðjudagskvöld.
„Vigdís var að klifra í
leikmyndinni þegar slys-
ið varð, en hún hefur gert
það oft áður, enda hluti
af sýningunni, hún féll tvo
og hálfan metra og lenti á
millipalli á fótunum og
í kjölfarið féll hún
áfram aðra eins
hæð, og skall
flöt á sviðið,“
segir Ari.
Lára
Jóhanna Jóns-
dóttir leik-
kona hefur
tekið þátt í
fjölda leik-
verka bæði í
B o r g a r l e i k-
h ú s i n u o g
Þjóðleikhús -
inu undanfarin
ár en um þessar mundir leikur Lára
Jóhanna í leikritinu Sporvagninn
Girnd ásamt aðalhlutverki í sýning-
unni Í hjarta Hróa hattar sem hefur
fengið virkilega góðar viðtökur og
hefur nú þegar verið bætt við fjölda
sýninga vegna eftirspurnar. Búast
má við að allt fari á fullt á næstu
dögum til að koma Láru inn í hlut-
verk Vigdísar Hrefnu fyrir frum-
sýningardag.
„Við þurftum að fresta frumsýn-
ingunni vegna slyssins og komum
til með að frumsýna verkið 10. mars
næstkomandi,“ segir Ari Matthías-
son bjartsýnn á framhaldið.
gudrunjona@frettabladid.is
lára jóhanna
hleypur í skarðið
fyrir Vigdísi hrefnu
Leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir, sem átti að fara með aðalhlut-
verkið í sýningunni Hleyptu þeim rétta inn, slasaðist illa á loka-
æfingu sýningarinnar. Frumsýna átti verkið á stóra sviði Þjóðleik-
hússins í dag, en frumsýningunni hefur verið frestað til 10. mars.
Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikkona slasaðist illa á lokaæfingu í Þjóðleikhúsinu
síðastliðið þriðjudagskvöld.
Leikkonan Lára Jóhanna Jónsdóttir hleypur í skarðið fyrir Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur sem slasaðist illa á lokaæfingu leikverks-
ins Hleyptu þeim rétta inn fyrr í þessari viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI.
2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r46 L í f I ð ∙ f r É T T a b L a ð I ð