Fréttablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 8
Kjaramál Sáttafundi starfsmanna álversins í Straumsvík og Rio Tinto Alcan á Íslandi lauk um eftirmiðdag- inn í gær án árangurs. Deilan í álverinu í Straumsvík milli starfsmanna og samninganefndar ISAL hefur nú staðið í tæpt ár, eða frá því að henni var vísað til ríkissátta- semjara um miðjan apríl í fyrra, en samningar hafa verið lausir í fjórtán mánuði. Deilurnar hafa fyrst og fremst snúist um kröfu stjórnenda álversins sem fara fram á aukna heimild til verk- töku. Talsmaður starfsmanna álversins hefur sagt að hann telji hugsanlegt að stjórnendur hyggist loka álverinu alfarið. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, segir hins vegar engin áform um það. Deilan í Straumsvík hefur verið töluvert áberandi í fjölmiðlum frá því í nóvember síðastliðnum, en þá boð- uðu starfsmenn til verkfalls þann 2. desember og átti að slökkva á álverinu. Samninganefnd starfsmanna í álverinu í Straumsvík tók þá ákvörð- un þann 1. desember hins vegar að aflýsa því. Ástæðan var sú að ekki þótti raunverulegur samningsvilji fyrir hendi hjá eiganda álversins, Rio Tinto. Þann 2. desember sagði Gylfi í viðtali í Bítinu að staðan sem upp væri komin væri ótrúverðug. Ljóst væri að ekki væri um kjaradeilu að ræða heldur hugsanlegt að stjórn- endur hygðust loka álverinu alfarið. „Við fengum staðfestingu á því að það sem þeir eru að tala um, einhver 43 störf, að fyrirtækið spari 45 millj- ónir á ári með því að ná þessu í gegn. Það er bara djók. Ef fyrirtæki sem veltir milljörðum stendur og fellur með 45 milljónum króna á ári, þá er eitthvað annað á bak við það,“ sagði Gylfi í Bít- inu. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, sagði hins vegar engin áform um slíkt. Búið væri að fjárfesta fyrir tugi milljarða og að allt yrði gert til að ná sáttum við starfsfólk. Viðræður þróuðust hægt eftir að hætt var við verkfall. Þann 7. janúar slitnaði upp úr samningaviðræðum. Starfsmenn höfnuðu tilboði samninga- nefndar ISAL um allt að 24 prósenta launahækkun á næstu þremur árum og allt að átta prósent til viðbótar í bónusum. Þann 9. febrúar var stuttur fundur hjá ríkissáttasemjara. Félagsmenn Verkalýðsfélagsins Hlífar samþykktu þann 17. febrúar ótímabundna og takmarkaða vinnu- stöðvun sem hófst á miðnætti þann 24. febrúar. Vinnustöðvunin nær til þeirra starfsmanna sem tilheyra flutninga- sveit fyrirtækisins og starfa á hafnar- og vinnusvæði álversins í Straumsvík. Það þýðir að engu áli verður skipað um borð í skip við Straumsvíkurhöfn. Í gærmorgun kom Rannveig Rist með hóp stjórnenda til að ganga í störf verkamannanna. Þau gerðu sig líkleg til að flytja ál um borð í skip, sem byrj- að var að lesta í gær. Verkfallsverðir stöðvuðu lestunina um hádegi. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði þá að ekki mætti ganga í störf þeirra sem væru í verkfalli. Óvíst er því hvenær deilunni lýkur. saeunn@frettabladid.is Langvarandi deilu er hvergi nærri lokið Ekkert hefur enn miðað í kjaraviðræðum starfsmanna Rio Tinto Alcan í Straumsvík. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í apríl í fyrra. Rannveig Rist 15. apríl Deilum starfs- manna álversins í Straumsvík er vísað til sáttasemjara. 23. nóvember Fréttablaðið greinir frá því að boðað hafi verið til verkfalls þann 2. desember og þá eigi að slökkva á álverinu. Ágreiningurinn snýst um kröfu stjórnenda álversins um að fá aukna heimild til verktöku, líkt og önnur fyrirtæki hafi. 1. desember Samninganefnd starfsmanna í álverinu í Straumsvík tekur þá ákvörðun að aflýsa boðuðu verkfalli sem átti að hefjast á mið- nætti það kvöld. 2015 2. desember Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmanna álversins í Straumsvík, segir hugsanlegt að stjórnendur hyggist loka álverinu alfarið. Rannveig Rist, for- stjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, segir engin áform um það. 4. desember Guðmundur Ragnarsson, for- maður vélstjóra og málmtækni- manna, segir líklegt að til uppsagna komi náist ekki sátt í bráð. 2016 7. janúar Um nóttina slitnar upp úr viðræðum starfs- manna álversins við fyrirtækið. Hafnað er til- boði samninga- nefndar ISAL. 14. janúar Launa- hækkanir frystar hjá Rio Tinto á heimsvísu, samkvæmt yfirlýsingu forstjóra. 4. febrúar Guðmundur Ragnarsson segir til greina koma að grípa til aðgerða nái fyrirskipun um launafrystingu allra starfsmanna fram að ganga. 8. febrúar Deiluaðilar setjast við samningaborðið hjá ríkis- sáttasemjara. Fundurinn er stuttur og árangurs- laus að sögn Gylfa Ingvarssonar. Tilkynnt er að starfsmenn ætli að grípa til aðgerða. 2016 23. febrúar Útflutningsbann starfsmanna hefst á miðnætti en Félagsdómur úrskurðar um kvöldið að bannið sé ekki ólöglegt. Ólafur Teitur Guðna- son, upplýsinga- fulltrúi álversins, segir að útflutn- ingsbannið hafi gríðarlega alvarleg áhrif á fyrirtækið. 24. febrúar Rannveig Rist kemur með hóp stjórnenda með sér til að ganga í störf verkamannanna sem eru í verkfalli. Verk- fallsverðir stöðva upp- skipunina í hádeginu. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að ekki megi ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli. ✿ lengi hefur verið deilt um kaup og kjör í álverinu í Straumsvík Samninga- nefnd ISAL bauð í janúar allt að 24 prósenta launahækkun á næstu þremur árum. Aðalfundur í Vátryggingafélagi Íslands hf verður haldinn 16. mars 2016 Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. boðar til aðalfundar í félaginu og verður hann haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, miðvikudaginn 16. mars 2016 og hefst hann stundvíslega kl. 16:00. Drög að dagskrá frá stjórn eru svohljóðandi: Endanleg dagskrá frá stjórn verður birt miðvikudaginn 2. mars 2016. Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram ályktunartillögur ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en kl. 16:00 sunnudaginn 6. mars 2016. Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið stjorn@vis.is. Hafi hluthafi krafist þess að fá mál tekið til meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögur á tímabilinu 3. mars - 6. mars 2016, verður endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta lagt fram spurning- ar fyrir aðalfund eða á aðalfundinum sjálfum. Einungis ef krafa kemur frá einhverjum fundarmanna verða atkvæðagreiðslur á aðalfundi skriflegar. Þó skal stjórnarkjör jafnan vera skriflegt ef tillögur koma fram um fleiri stjórnarmenn en kjósa skal. Stjórnarkjör fer fram skv. hlutfallskosningu eftir samþykktum félagsins nema réttmæt krafa um margfeldiskosningu komi fram frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 10% hlutafjár sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist til höfuðstöðva félagsins a.m.k. fimm dögum fyrir auglýstan aðalfund. Einnig geta hluthafar vitjað atkvæðaseðla sinna í höfuðstöðvum félagsins frá sama tíma eða greitt þar atkvæði. Hluthafar geta einnig látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hlutaskrárkerfi félagsins þegar aðalfundur fer fram geta beitt réttindum sínum á aðalfundi. Aðalfundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður. Frestur til að tilkynna um framboð til stjórnar á stjorn@vis.is lýkur fimm dögum fyrir aðalfund, nánar tiltekið þann 11. mars kl. 16:00. Framboðseyðublað má finna á vefsíðu félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða lagðar fram hluthöfum til sýnis í höfuðstöðvum eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Þau eru á íslensku og fer aðalfundurinn einnig fram á íslensku. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa og annað sem varðar aðalfundinn, svo sem ályktunartillögur stjórnar (þ. á m. um breytingar á samþykktum), starfskjarastefnu og breytingartillögur á henni, starfsreglur um kaupaukakerfi, eyðublöð og slíkt, er að finna á vefsíðu félagsins: www.vis.is/fjarfestar. Reykjavík, 24. febrúar 2016 . Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2015. 2. Stjórnin leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins fyrir hið liðna ár. 3. Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs. 4. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum. 5. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. 6. Kosið í stjórn félagsins. 7. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu og starfsreglur um kaupaukakerfi. 8. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og undirnefnda hennar. 9. Kosning endurskoðunarfélags í samræmi við lög um vátryggingastarfsemi. 10. Önnur mál löglega fram borin. 2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I m m T U D a G U r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a b l a ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.