Fréttablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 22
Jón G narr Pistillinn Í gegnum sjónvarpið fáum við meira efni fyrir minni pening. Það er góð fjárfesting fyrir okkur, sem við getum flutt út og miðlað til komandi kynslóða. Þess vegna er mjög brýnt að lögum um Kvikmynda- miðstöð verði breytt. Sjónvarp hefur verið ástríða í lífi mínu frá því að ég man eftir mér. Ég hef oft sagt að ég hafi líklega lært meira af þarflegum hlutum fyrir framan sjónvarpið heldur en í skólanum. Með því að lesa texta æfði ég mig í íslensku og lestri. Ég held að Laura Ingalls og Fawlty Towers hafi kennt mér meiri og betri ensku en skólakerfið. Í gegnum sjónvarpið lærði ég líka heil- margt um Ísland og íslenska menningu og náttúru. Landa- fræðin sem ég fékk í gegnum sjónvarpið var bæði gagnlegri og skemmtilegri en sú sem var kennd í skólanum. Í gegnum sjónvarpið kynntist ég dag- legu lífi og menningu í öðrum löndum og fornum menningar- samfélögum. Að fá að vinna í sjónvarpi hefur verið eitt það skemmti- legasta sem ég hef gert í lífinu. Og af því að ég sé sjónvarp sem raunverulegan upplýsingamiðil þá hef ég leitast við að skapa efni sem er tímalaust og getur lifað lengi. Inntakið í mínu gríni hefur verið tungumálið og menningin. Ég hef forðast að gera afþreyingarefni sem er bundið raunverulegum persónum eða atburðum. Mig hefur til dæmis aldrei langað til að vera góð eftir- herma. Ég hef lagt mig fram um að skapa nýtt frekar en herma eftir. Á því er stór munur. Ég hef átt þeirrar gæfu að njóta að fá að búa til, í samstarfi við aðra, eftir- minnilegar persónur sem lifa með þjóðinni. Ég held til dæmis að Georg Bjarnfreðarson muni lifa mig. Ég tel ekkert ólíklegt að hann muni með tímanum öðlast svipaðan sess með þjóðinni og Bjartur í Sumarhúsum. Nú er vor í íslenskri sjónvarps- þáttagerð. Með Ófærð höfum við sýnt og sannað að við getum búið til og framleitt sjónvarps- þætti fyrir heimsmarkað. 365 hefur þegar samið við aðstand- endur Ófærðar um sjónvarps- þættina Katla. Það verður enn stærra verkefni og verður sýnt á Stöð 2 veturinn 2017. Sjónvarpið er áhrifaríkasti miðillinn í dag. Neysluformið er aukaatriði. Það skiptir engu höfuðmáli hvort fólk horfir á línulega dagskrá, í gegnum netið eða efnisveitur. Fólk vill og mun horfa á sjón- varp. Og þar gegnir innlent efni mestu máli. Sjónvarpsþátta- seríur eru lengri en bíómyndir. Í gegnum sjónvarpið fáum við meira efni fyrir minni pening. Það er góð fjárfesting fyrir okkur, sem við getum flutt út og miðlað til komandi kynslóða. Þess vegna er mjög brýnt að lögum um Kvikmyndamiðstöð verði breytt. Leikið sjónvarpsefni fær nú um 18% á meðan stærsti hlutinn rennur til kvikmynda. Það þarf að jafna þennan hlut eða hrein- lega stofna nýjan sjóð; Íslenska sjónvarpssjóðinn. Íslensk dagskrá Björgvin Guðmundsson formaður kjara- nefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Þegar eldri borgari fer á hjúkrunar-heimili tekur Tryggingastofnun ríkisins lífeyri hans til greiðslu kostnaðar við dvölina á hjúkrunar- heimilinu. Þetta er líkast eignaupp- töku. Allur lífeyrir frá TR er tekinn. Þeir, sem hafa meira en rúmar 74 þúsund í tekjur, mega sæta því, að það sem umfram er sé af þeim tekið fyrir dvalarkostnaði þar til náð er markinu tæpar 355 þúsund krónur. Þar stöðv- ast „eignaupptakan“. Síðan eru eldri borgurunum skammtaðir vasapen- ingar, 53 þúsund krónur að hámarki, en þessi greiðsla er tekjutengd. Vasa- peningarnir eru skertir ef viðkomandi eldri borgari hefur t.d. örlitlar vaxta- tekjur. Aldraðir fá ekki einu sinni að hafa vaxtapeningana í friði! Eldri borgararnir, sem fara á hjúkr- unarheimili, eru ekki spurðir að því, hvort þeir samþykki að lífeyrir þeirra sé tekinn af þeim í framangreindum tilgangi. Nei, þeim er einfaldlega til- kynnt þetta. Allar greiðslur til þeirra frá TR eru felldar niður strax í næsta mánuði eftir innlögn! Annars staðar Lífeyrir aldraðra frá TR tekinn við innlögn á hjúkrunarheimili! á Norðurlöndunum er annar háttur hafður á. Þar fá eldri borgararnir líf- eyrinn í sínar hendur en síðan greiða þeir sjálfir eða aðstandendur kostnað- inn við dvölina á hjúkrunarheimilinu. Það er mat lögfræðinga, að það sé mannréttindabrot að rífa lífeyrinn af eldri borgurum á þennan hátt. Kjara- nefnd Félags eldri borgara í Reykjavík hefur rætt þetta fyrirkomulag við lög- fræðinga og þeir telja, að það standist hvorki lög né stjórnarskrá að rífa líf- eyrinn af eldri borgurum á þann hátt sem gert er. Stjórnvöld hafa íhugað að breyta þessu en ráðamenn hjúkrunarheimil- anna hafa lagst gegn breytingu. Að sjálfsögðu eiga þeir ekki að ráða þessu. Við ættum að hafa sama hátt á þessu og önnur norræn ríki. Við þurfum að breyta þessu strax. Það er niðurlægjandi fyrir eldri borg- ara að þurfa að sæta því fyrirkomulagi, sem nú er viðhaft. Eldri borgararnir, sem fara á hjúkrunarheimili, eru ekki spurðir að því, hvort þeir samþykki, að lífeyrir þeirra sé tekinn af þeim í framan- greindum tilgangi. Nei, þeim er einfaldlega tilkynnt þetta. Oddný G. Harðardóttir alþingismaður Það sem opinberar tölur segja okkur í augnablikinu er að það sé mjög lítið svigrúm fyrir stóraukna opinbera fjárfestingu. Að minnsta kosti þyrfti þá með einhverjum hætti að búa það svig- rúm til,“ sagði fjármálaráðherra í sérstökum umræðum á Alþingi um þörf fyrir innviðauppbyggingu hér á landi. Um 80.000 manns hafa nú kraf- ist þess með undirskrift sinni að auknum fjármunum verði veitt til heilbrigðiskerfisins. Kallað er á auknar vegaframkvæmdir og upp- byggingu á ferðamannastöðum úr öllum áttum og að löggæslu þurfi einnig að bæta. Gæta þurfi öryggis bæði íbúa og ferðamanna í senn. Fleiri ferðamenn hér á landi auka á álag á heilbrigðiskerfið en álagið er of mikið fyrir. Fjármunir sem ferða- mennska skilar í ríkiskassann duga ekki til. Fjármálaráðherrann segir að ef mæta eigi þessum kröfum þurfi að gera ráðstafanir og búa til svig- rúm fyrir þær í ríkisrekstrinum. „Þetta svigrúm væri auðvitað hægt að skapa með því að draga saman í rekstri ríkisins en ég sé ekki mikla samstöðu um það á þinginu að draga reksturinn mjög saman þann- ig að þetta svigrúm verði til staðar,“ sagði ráðherrann í umræðunum um innviðauppbygginguna. Ef setja á aukna fjármuni í heil- brigðiskerfið, vegakerfið og lög- gæslu við þær aðstæður sem nú eru uppi í hagkerfinu okkar þarf annað tveggja að koma til; niðurskurður í ríkisrekstri eins og fjármálaráðherr- ann bendir á eða auknar tekjur. En þá leið nefndi ráðherrann ekki og segir ekkert hægt að gera nema hugsanlega að kaupa nýja þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna og nýja Vest- mannaeyjaferju. Þær fjárfestingar auki ekki fjármuni í umferð hér á landi enda verslað við útlönd. Færi langt með að mæta þörfinni Skoðum þetta aðeins betur. Ef hægristjórnin tæki til baka lækkun á veiðigjöldum og lækkun tekjuskatts sem hún hefur staðið fyrir á kjörtímabilinu þá færi það langt með að mæta þörfinni fyrir uppbyggingu. Lækkun á veiði- gjöldunum nemur um 6 milljarða tekjuskerðingu ríkissjóðs á ári og tekjuskattslækkunin sú síðasta sem gagnast þeim með lægstu launin ekkert, nemur um 11 millj- örðum á ári þegar að hún er að fullu komin til framkvæmda. Auk þess blasir við að þeir sem nýta sér ferðaþjónustu ættu að greiða virðisaukaskatt í almennu þrepi en gera ekki. Hægristjórnin vill að ferðamenn fái afslátt af neyslu- skatti. Slíkur skattaafsláttur getur verið réttlætanlegur fyrir sprotaat- vinnugrein sem vantar aðstoð til að vaxa. Það er ferðaþjónustan ekki. Ferðaþjónustan hér á landi er svo stór atvinnugrein að hún topp- ar sjávarútveg í gjaldeyristekjum og fjöldi ferðamanna er meiri en við virðumst ráða fyllilega við. Ef við værum að innheimta jafn há veiðigjöld og vinstristjórnin ákvað á síðasta kjörtímabili, tekjuskatts- þrepum hefði ekki verið fækkað og ef ferðaþjónustan innheimti virð- isaukaskatt af sínum viðskipta- vinum eins og almennt gerist hjá öðrum þjónustufyrirtækjum í landinu, gætum við haldið við vegum með sómasamlegum hætti og bætt heilbrigðiskerfið, lög- gæsluna og jafnvel skólana svo um munaði. Það skiptir máli hverjir stjórna. Fyrir þá sem vilja heyra meira er hér slóð með allri umræðu um innviðauppbygginguna á Alþingi (stendur yfir í 30 mín.). Málshefj- andi var Guðmundur Steingríms- son, þingmaður Bjartrar fram- tíðar. http://www.althingi.is/altext/ upptokur/lidur/?lidur=- lid20160217T154956 Lausn á vanda Ef setja á aukna fjármuni í heilbrigðiskerfið, vega- kerfið og löggæslu við þær aðstæður sem nú eru uppi í hagkerfinu okkar þarf annað tveggja að koma til; niður- skurður í ríkisrekstri eins og fjármálaráðherrann bendir á eða auknar tekjur. En þá leið nefndi ráðherrann ekki. Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is NÝJUSTU GRÆJURNAR STÚTFULLAR VERSLANIR AF ÖLLUM HEITUSTU GRÆJUNUM! 240GB SSD DISKUR 49.900 XL2411Z 144Hz 3D LEIKJASKJÁR 144Hz 24” 144Hz 3D SKJÁR ALGJÖRLE GA NÝ UPPLIFUN! GTX 970 LEIKJASKJÁKORT 0dB SILENT G AMING Windforc e 3X TÆK NIN SKILAR L oL OG FL EIRI LEIKJUM Í 0dB HLJÓÐLE YSI! 4GB7.1GHz MINNI1190MHz OG ALLT AÐ 30% YFIRKLUKKUN MEÐ ENN ÖFLUGRI3X WINDFORCE KÆLINGU MEÐ KOPAR HITAPÍPUM 79.900 XTREME GAMING 14.900 TRIACTOR NÝR VAR AÐ LENDA! ENN BETRA VERÐ 2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r22 s k o ð U n ∙ f r É T T a b L a ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.