Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Sameigin-
lega hafa
þau vakið
falsvonir á
meðal
almennings
um að hægt
sé að ná
fram stór-
felldum
launahækk-
unum án
þess að
nokkuð
muni gefa
eftir.
Það er áhugavert að horfa vestur Tryggvagötu þessa haustdaga í borginni og virða fyrir sér hvernig nýju húsaröðina, sem risin er við Hafnartorg, ber við
Tollhúsið með fallegu mósaíkmyndinni hennar Gerðar
Helgadóttur. Ekki sakar að heil röð af reynitrjám hefur
skotið rótum meðfram nýbyggingunum. Þarna er komin
skýr heild, gyllt og bronslituð með opnum jarðhæðum,
þar sem áður var grá bílastæðaauðn. Á vinstri hönd
opnast ein elsta gata borgarinnar, Hafnarstræti, með
nýrri hellulögn, götutrjám og endurbyggðu Thomsen-
húsi og Rammagerðarhúsi. Hið gamla fléttast saman við
hið nýja. Norðan og sunnan Geirsgötu eru að rísa 150
íbúðir. Þær bætast við 250 íbúðir sem eru langt komnar í
smíðum uppi á Hverfisgötu. Aðeins vestar á Tryggvagötu
er að verða til nýtt Bæjartorg með Bæjarins Beztu. Gamla
steinbryggjan sem lá frá Pósthússtræti niður í höfn
verður hluti torgsins. Enn vestar, á mótum Tryggvagötu
og Geirsgötu, hefur gamla Fiskhöllin með sinn fallega
turn verið endurbyggð. Einnig Exeterhúsið. Þar er líka að
verða til torg fyrir fólk þar sem áður voru bílastæði.
Langt er síðan umræðan um endurreisn mið-
borgarinnar hófst. Hún spratt upp fyrir 20 árum og var
viðbragð við Kringlunni, sem hjó stór skörð í miðborgar-
verslunina. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri lét
málefni miðborgarinnar mjög til sín taka og efndi til
hugmyndasamkeppni árið 2002 um skipulag tónlistar-
húss, hótels, ráðstefnumiðstöðvar og tengdra bygginga
við austurhöfnina. Hún hafði framtíðarsýn.
Á þessu svæði er nú að verða til verslunarkjarni.
Fataverslunin H&M var opnuð á tveimur hæðum á
Hafnartorgi um daginn. Fleiri innlendar og alþjóðlegar
verslanir verða opnaðar næsta vor. Það eru líka fréttir að
Fréttablaðið er að flytja á Hafnartorg.
Á niðurlægingartímabili miðborgarinnar frá 1970 til
2000 fluttu allir fjölmiðlar burt úr miðborginni. Og ekki
bara þeir, heldur líka verslanir, heildsölufyrirtæki, trygg-
ingafyrirtæki, bankar, Eimskip, Leikfélag Reykjavíkur,
Ríkisútvarpið. Skipulagt miðflóttaafl þeytti þessu öllu
inn í Múla, Skeifu, Sundahöfn og í Kringlumýrina. Nú er
þetta að snúast við. Endurreisn gamalla húsa, bygging
nýrra og mikið mannlíf ber því vitni.
Framtíðarsýn í miðborg
Hjálmar
Sveinsson
borgarfulltrúi
Langt er síðan
umræðan um
endurreisn
miðborgar-
innar hófst.
Hún spratt
upp fyrir 20
árum og var
viðbragð við
Kringlunni,
sem hjó
stór skörð í
miðborgar-
verslunina.
Símaveski,
heyrnartól, snúrur
og allt fyrir
símann.
Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Markaðurinn getur vissulega oft verið skrýtin skepna. Sú þróun sem við höfum orðið vitni að síðustu vikur og mánuði – hluta-bréfaverð fer lækkandi, gengið fellur og verðbólguálag hækkar – ætti hins vegar að
koma fáum á óvart. Þrátt fyrir að engar undirliggjandi efna-
hagsforsendur réttlæti þá miklu og vaxandi svartsýni sem
nú einkennir um margt stjórnendur fyrirtækja og fjárfesta
þá eru fjármálamarkaðir framsýnir og stjórnast af vænt-
ingum um þróun efnahagsmála. Öll óvissa, líkt og við sjáum
núna vegna stöðunnar á vinnumarkaði, er eitur í beinum
fjárfesta. Eftir að kröfugerð verkalýðsfélaganna leit dagsins
ljós hefur sú óvissa aukist til muna enda eru kröfurnar með
slíkum ólíkindum að það tekur nánast engu tali. Ómögulegt
er að sjá hvernig þær geta verið grundvöllur að viðræðum
um kjarasamninga sem fela í sér raunverulegar kjarabætur.
Það eru ekki aðeins fjárfestar sem eru að reyna að lág-
marka skaðann af þeirri hringrás gengisveikingar, aukinnar
verðbólgu og hækkunar vaxta sem nú er útlit fyrir að sé að
hefjast. Heimilin óttast einnig afleiðingarnar af bólgnum
kjarasamningum um innistæðulausar launahækkanir. Þau
eru því farin að bregðast við með því að skuldbreyta verð-
tryggðum fasteignalánum í óverðtryggð á föstum vöxtum til
að verja sig gagnvart mögulegu verðbólguskoti. Engan skal
undra. Umræðan í aðdraganda kjarasamninga er nefnilega
farin að taka á sig æ skrýtnari mynd þar sem staðreyndir
virðast ekki skipta máli og efnislegri gagnrýni er svarað með
skætingi og útúrsnúningum. Staðan er ískyggileg.
Verkalýðshreyfingunni er nú stýrt af lýðskrumurum og
fólki sem aðhyllist marxískar kennisetningar um við-
varandi stéttastríð milli atvinnurekenda og launafólks.
Sameiginlega hafa þau vakið falsvonir á meðal almennings
um að hægt sé að ná fram stórfelldum launahækkunum án
þess að nokkuð muni gefa eftir. Í krafti valdastöðu sinnar
sem leiðtogar helstu stéttarfélaga landsins hefur málflutn-
ingur þeirra, sem allajafna ætti að afgreiða sem jaðarskoðun
sem engum bæri að taka alvarlega, fengið mun meira vægi
í almennri umræðu en þekkist á hinum Norðurlöndunum.
Það er þess vegna ekki aðeins mikilvægt heldur nauðsynlegt
að mun fleiri – stjórnendur fyrirtækja, stjórnmálamenn og
núverandi og fyrrverandi áhrifamenn í verkalýðshreyfing-
unni – stígi fram og bendi á ruglið. Með sama framhaldi,
þar sem sjálfskipuðum byltingarsinnum með takmarkað
umboð á bak við sig, hálfgert eyland, er leyft að einoka
umræðuna án mótspyrnu, stefnir að öðrum kosti í óefni.
Stóra myndin er þessi. Á Íslandi eru meðallaun og lág-
markslaun ein þau hæstu sem þekkjast á meðal OECD-ríkja.
Ólíkt Íslendingum þá dettur engum í hug í okkar nágranna-
ríkjum að semja um almennar launahækkanir sem eru í
engu samræmi við framleiðni. Þannig var í Noregi nýlega
samið um tæplega tveggja prósenta nafnlaunahækkun. Af
hverju? Af því að þar ríkir sameiginlegur skilningur á því
að atvinnulífið stæði ekki undir meiri launakostnaði við
núverandi efnahagsaðstæður. Sömu sjónarmið eiga nú við
hér á landi. Þótt Ísland sé eyríki á norðurhveli jarðar þá
eigum við í alþjóðlegri samkeppni um vinnuafl og fjármagn.
Hvernig Íslandi reiðir af í þeirri samkeppni, einkum útflutn-
ingsfyrirtækjunum, ákvarðar þá verðmætasköpun sem er til
skiptanna hverju sinni. Ef við ákveðum að skeyta ekkert um
þessi hagfræðilegu lögmál þá verður niðurstaðan enn ein
efnahagslega kollsteypan. Þetta er ekki flókið.
Eyland
Á hálum ís
Ummæli Sigríðar Á. Andersen
dómsmálaráðherra um að álykt-
anir um launamun kynjanna séu
rangar hafa vakið takmarkaða
lukku. Þorsteinn Víglundsson
Viðreisnarmaður sagði ráðherr-
ann á hálum ís og aðstandendur
Kvennafrís vörðu aðferðafræði
sína við útreikninga á hinum
kynbundna launamun. Fjöl-
margir fleiri kvöddu sér svo
hljóðs í umræðum á netinu.
Theódór Elmar Bjarnason knatt-
spyrnumaður kom ráðherra þó
til varnar. Tók undir þau orð
ráðherra að ungar konur þéni
meira í störfum fyrir hið opin-
bera en ungir karlar, samkvæmt
skýrslu velferðarráðuneytisins,
og hvatti unga íslenska karla til
að taka sig saman og byrja jafn-
launabaráttuna.
Og meiri ís
En Sigríður Á. Andersen glímir
ekki einungis við umræðuna
um kynbundinn launamun
þessa dagana. Frumvarp sem
ráðherrann lagði fram á dög-
unum, og felur meðal annars í
sér að nöfn sakamanna verði
ekki lengur birt í dómum, er
afar umdeilt.
Þá féll sömuleiðis dómur í gær
þar sem ríkið var dæmt til að
greiða Jóni Höskuldssyni skaða-
bætur vegna skipunar Sigríðar
á dómurum í Landsrétt og var
ríkið einnig dæmt skaðabóta-
skylt í máli Eiríks Jónssonar.
thorgnyr@frettabladid.is
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN