Fréttablaðið - 26.10.2018, Síða 12
Þór Þ. - Grindavík 90-80
Þór Þ.: Nikolas Tomsick 24, Gintautas
Matulis 17, Kinu Rochford 14, Ragnar Örn
Bragason 13, Emil Karel Einarsson 10, Davíð
Arnar Ágústsson 6, Halldór Hermannsson 6.
Grindavík: Sigtryggur Arnar Björnsson 29,
Ólafur Ólafsson 15, Lewis Clinch Jr. 13,
Jordy Kuiper 11, Kristófer Breki Gylfason 5,
Hilmar Kristjánsson 3.
Tindastóll - Njarðvík 95-73
Tindastóll: Pétur Rúnar Birgisson 29, Urald
King 16/17 fráköst, Danero Thomas 16,
Dino Butorac 11, Viðar Ágústsson 6, Hannes
Ingi Másson 6, Helgi Rafn Viggósson 3.
Njarðvík: Mario Matasovic 16/10 fráköst,
Logi Gunnarsson 13, Maciek Stanislav
Baginski 12, Jeb Ivey 9, Ólafur Helgi Jónsson
7, Jón Arnór Sverrisson 4.
Haukar - Breiðablik 96-92
Haukar: Haukur Óskarsson 26, Marques Oli-
ver 23/11 fráköst, Kristján Leifur Sverrisson
16, Hilmar Smári Henningsson 11, Kristinn
Marinósson 7, Arnór Bjarki Ívarsson 5.
Breiðablik: Christian Covile 25, Snorri
Hrafnkelsson 22, Erlendur Ágúst Stefáns-
son 17, Arnór Hermannsson 7, Þorsteinn
Finnbogason 6, Hilmar Pétursson 6.
Keflavík - Stjarnan 68-66
Keflavík: Michael Craion 15, Hörður Axel
Vilhjálmsson 14, Magnús Már Traustason
10, Gunnar Ólafsson 9, Mantas Mockevicius
8, Guðmundur Jónsson 4,.
Stjarnan: Collin Anthony Pryor 15,Ægir Þór
Steinarsson 12, Paul Anthony Jones 12,
Antti Kanervo 10, Hlynur Elías Bæringsson
10, Tómas Þórður Hilmarsson 4.
Efri
Tindastóll 8
Stjarnan 6
Njarðvík 6
Keflavík 6
KR 4
ÍR 4
Neðri
Haukar 4
Þór Þ. 2
Skallagr. 2
Grindavík 2
Valur 0
Breiðablik 0
Nýjast
Domino’s-deild karla
KÖRFUBOLTI Kvennalið KR í körfu-
bolta hefur ekki látið neinn bilbug
á sér finna þrátt fyrir að liðið sé
nýliði í Domino’s-deildinni á yfir-
standandi leiktíð.
Vesturbæingar eru ásamt Snæ-
felli á toppi deilarinnar með átta
stig þegar fimm umferðir hafa verið
leiknar. Þar á eftir koma Keflavík og
Stjarnan með sex stig hvort lið.
Lið KR samanstendur af ungum
uppöldum leikmönnum, þremur
erlendum leikmönnum sem
komu allir fyrir tímabilið og svo er
reynsluboltinn Unnur Tara Jóns-
dóttir á svæðinu til þess að koma
með sigurhefð inn í hópinn.
Unnur Tara varð Íslandsmeistari
með KR síðast þegar liðið varð
Íslandsmeistari árið 2010. Hún lagði
svo körfuboltaskóna tímabundið á
hilluna á meðan hún hélt utan í
læknisnám.
Benedikt Guðmundsson, sem
þjálfar KR-liðið í dag og var sömu-
leiðis við stjórnvölinn þegar liðið
lyfti dollunni fyrir átta árum, hóaði
í Unni Töru þegar KR var í næstefstu
deild á síðustu leiktíð. KR-ingar fóru
taplausir í gegnum deildarkeppnina
síðasta vetur og hafa svo gert sig
gildandi í upphafi yfirstandandi
leiktíðar.
„Það hefur náttúrulega svaka-
lega mikið breyst frá því að ég var
síðast að spila í efstu deild hér
heima. Bæði almennt í deildinni og
í Vesturbænum. Þeir leikmenn sem
eru kjarninn í liðinu voru í yngri
flokkunum þegar ég var hér síðast
og það er ofboðslega gaman að sjá
hversu langt þær eru komnar á ferl-
inum,“ segir Unnur Tara um þær
breytingar sem hafa orðið á milli
skeiða hjá henni í KR liðinu.
„Það eru svo fleiri erlendir leik-
menn núna sem er bara jákvætt að
mínu mati og gerir deildina bara
sterkari. Til að mynda hjá okkur, þá
hafa þeir þrír erlendu leikmenn sem
eru hjá okkur aðlagast hratt og vel
og bæta okkar lið umtalsvert. Ungir
leikmenn eins og samherji minn,
Ástrós Lena Ægisdóttir, sem dæmi,
þurfa að kljást við öfluga leikmenn
í hverjum leik. Hún hefur gott af
því og mér finnst hún bæta sig með
hverjum leik sem hún spilar,“ segir
hún um framhaldið hjá KR-ingum.
„Við erum að kynnast betur og
betur sem hópur og ég tel að við
getum bætt okkur töluvert þó að
byrjunin hafi verið góð. Markmið-
ið hjá liðinu var fyrst og fremst að
halda sér í deildinni. Ég sjálf er hins
vegar keppnismanneskja og það
eru fleiri í liðinu sem stefna leynt
og ljóst að því að komast í úrslita-
keppni og berjast um þá titla sem
í boði eru þegar þar að kemur. Ég
persónulega á ekkert ofboðslega
langt eftir af leikmannsferli mínum
og það fer hver að verða síðastur
að bæta titlum í safnið,“ segir hún
um stöðu mála og framhaldið hjá
Vesturbæjarliðinu.
hjorvaro@frettabladid.is
Stefni leynt og ljóst á titilbaráttu
Unnur Tara Jónsdóttir og liðsfélagar hennar hjá KR eru nýliðar í efstu deild kvenna í körfubolta. Það er ekki
að sjá að liðið sé að koma upp úr 1. deild sé tekið mið af fyrstu fimm umferðum Domino’s-deildarinnar.
Bakvörðurinn Kiana Johnson hefur verið einn öflugasti leikmaður deildarinnar og á stóran þátt í góðu gengi KR-liðsins fyrstu leikina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég persónulega á
ekkert ofboðslega
langt eftir af leikmannsferli
mínum og það fer hver að
verða síðastur að bæta titlum
í safnið.
Unnur Tara Jónsdóttir
HÓPFIMLEIKAR Fulltrúar Íslands í
karlaflokki kepptu á HM í hópfim-
leikum í Doha, í gær en komust ekki í
úrslitin sjálf og hafa því lokið keppni.
Fulltrúar Íslands í kvennaflokki hefja
keppni á laugardaginn. Íslenska liðið
er búið að dvelja í Doha undanfarna
daga og æfa við frábærar aðstæður
til að venjast hitanum í Katar en það
virðist sem dagsformið hafi skipt
máli og þetta hafi ekki verið dagur
íslenska liðsins.
Valgarð Reinhardsson var að
keppa öðru sinni á HM og kom fullur
sjálfstrausts eftir að hafa komist í
úrslitin á EM fyrr á árinu en honum
tókst ekki að fylgja því eftir.
„Þetta er afar svekkjandi, það fór
því miður of margt úrskeiðis í dag.
Ég réði því miður ekki við hitann
sem var hérna og var ekki nægilega
tilbúinn.“
Eyþór Örn Baldursson tók í sama
streng og fann fyrir svekkelsi þegar
ljóst var að hann kæmist ekki í úrslit.
Mistök urðu honum að falli þótt að
hann hafi fengið frábæra einkunn
fyrir stökk.
„Þetta byrjaði vel, við komum
spenntir inn í þetta en þá fór eitt-
hvað úrskeiðis. Það er svekkjandi en
svona er þessi íþrótt og við þurfum
bara að einblína á næsta mót.“
Jón Sigurður Gunnarsson náði
ekki að beita sér á fullu vegna bak-
Hitinn tók á íslenska liðið í Katar
Jón Sigurður með lipra takta á hestinum í Doha. MYND/FIMLEIKASAMBAND ÍSLANDS
meiðsla sem hafa truflað undir-
búninginn og keppti hann aðeins í
þremur greinum af sex í gær.
„Ég náði að klára þær greinar sem
ég tók þátt í og það gekk bara vel.
Þetta var skemmtileg upplifun og
gefur manni aukna orku til að bæta
sig og gera betur í framtíðinni.“ – kpt
Fleiri myndir frá HM í Katar frá
Fimleikasambandi Íslands má
sjá á +Plús síðu Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PLÚS
MMA Gunnar Nelson, einn fremsti
bardagakappi landsins, snýr aftur í
UFC-búrið í desember þegar hann
mætir hinum brasilíska Alex Oli-
veira í Toronto. Verður bardaginn
hluti af UFC 231 bardagakvöldinu.
Verður þetta fyrsti bardagi Gunn-
ars í sautján mánuði eftir að hafa
tapað gegn hinum argentínska
Santiago Ponzinibbio í umdeildum
bardaga þar sem Ponzinibbio pot-
aði ítrekað í augu Gunnars þrátt
fyrir að það sé bannað í UFC.
Oliveira sem er kallaður Kúrekinn
er í 14. sæti á styrkleikalista UFC,
einu sæti fyrir ofan Gunnar fyrir
bardagann.
– kpt
Gunnar snýr
aftur í búrið í
desember
Gunnar
Nelson
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT