Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 15
Tónlistarmaðurinn Elli Grill hefur vakið athygli fyrir sér-stakan stíl og textagerð með
hljómsveitinni Shades of Reykjavík
og sem sjálfstætt starfandi tón-
listarmaður. Á síðasta ári gaf hann
út fyrstu sólóplötu sína „Þykk fitan
vol.5“ og í næsta mánuði gefur hann
út aðra plötu sína, „Pottþétt Elli“.
Endaði óvart í tónlist
Elli var stofnmeðlimur í sveitinni
Shades of Reykjavík. „Í byrjun
vissum við bara að við vildum gera
einhverja list. Ég vildi alltaf fara út í
kvikmyndagerðina, en svo endaði
ég í tónlistinni alveg óvart,“ segir
Elli.
„Shades of Reykjavík var orðin
vinsæl hljómsveit áður en ég
byrjaði að rappa. Ég sá um mynd-
böndin ásamt Arnari Guðna, en
hafði alltaf sterkar skoðanir á tón-
listinni. Svo opnaðist tækifæri, því
það átti að vera gestur í einu laginu
og hann kom með eitthvert lélegt
rapp,“ segir Elli. „Þá sagði Emmi
Beats, sem sá um tónlistina: „Elli
gæti gert miklu betur,“ og meinti að
ég væri ekki rappari en gæti samt
gert betur. Ég var sammála og hann
hjálpaði mér að gera þetta. Það var
lagið Töfrateppi, sem varð eitt af
vinsælustu lögunum hjá Shades of
Reykjavík. Ég hafði aldrei rappað
upphátt þegar ég gerði það.
Þetta var svolítið skondin þróun,
af því að hljómsveitin var orðin svo
stór. Mitt fyrsta gigg var á Prikinu
og það var svo troðið að það kom-
ust ekki fleiri inn,“ segir Elli. „En
eftir fyrsta giggið fann ég innra með
mér að þetta var alltof auðvelt og að
ég hefði einhvern svaka kraft. Það
er mjög mikill djass í fjölskyldunni,
sem gæti kannski útskýrt það. Ég
hef litið þannig á það frá fyrsta degi
að þetta sé í blóðinu.“
Vímuefnin
skemmdu alltaf allt
Shades of Reykjavík hópurinn
hefur ekki farið leynt með vímu-
efnaneyslu sína í gegnum tíðina
og hún hefur haft augljós áhrif
á tónlist sveitarinnar. Meðlimir
sveitarinnar hafa hins vegar snúið
við blaðinu.
„Persónulega fannst mér vímu-
efnin alltaf skemma allt. Ég horfði
á vini mína missa það alveg og
nýlega hef ég líka séð góða vini
mína láta lífið út af fíkniefnum,“
segir Elli. „Auðvitað skila allar
upplifanir sér inn í tónlistina, það
er ekki hægt að neita því. En fyrir
um fimm árum, þegar þetta var
mest klikkað, var ég persónulega
fremstur á hjólabretti á landinu
þegar kemur að „römpum“ og
„bowl-um“ og var mjög heppinn
að vera að eltast við það og keppa
mikið úti. Ef ég hefði farið á eitt-
hvert klikkað djamm, þá hefði ég
ekki verið eins góður á hjólabretti
daginn eftir. Það má segja að hjóla-
brettið hafi haldið mér í jafnvægi,
en það þarf náttúrulega aga líka.
Þegar maður verður eldri þá
koma afleiðingarnar af þessum lífs-
stíl,“ segir Elli. „Það er allt annað að
fara að skemmta sér en að lifa lífs-
stíl sem er annað hvort „gangster“
eða „junkie“, það eru alltaf
afleiðingar af því og það er ótrú-
lega sorglegt að sjá vini sína kveðja
heiminn þannig. En strákarnir í
Shades hafa verið mjög opnir með
þetta og ég er mjög stoltur af þeim.
Það er magnað að sjá vini sína
næstum búna að tapa öllu og ná að
koma til baka og læra af því.“
Metnaður fyrir upplifunum
Elli hefur oft lifað óhefðbundnum
lífsstíl í gegnum tíðina og meðal
annars ferðast um heiminn nánast
peningalaus.
„Til þess að verða góður tón-
listarmaður vildi ég fá dýpt í lífið,
svo ég hafði rosalegan metnað fyrir
ferðalögum, skrítnum stöðum
og að kynnast fólki með svipaða
ástríðu í hinum og þessum stór-
borgum,“ segir Elli. „Þetta var hægt
af því að ég var á hjólabretti. Ef ég
ferðaðist til einhverrar borgar fór
ég bara á næsta torg og kynntist
skeiturum. Þegar þú ert frá Íslandi
og góður að skeita þá reddarðu þér
alltaf. Sérstaklega þegar þú ert líka
góður að mynda. Ég hef samt oft
hlegið að aðstæðunum sem ég var
í. Um daginn rifjaði ég upp þegar ég
gisti í hjólabrettagarði sem heitir
Wonder land inni í Kristjaníu. Þetta
er eitthvað sem ég myndi aldrei
gera aftur. Þetta eru rosalega klikk-
aðar minningar.“
Fjölskyldumaður með
þráhyggju fyrir tónlist
Í dag er Elli Grill fjölskyldumaður,
hann á tæplega fjögurra ára gamlan
son og hann og Karen, kærastan
hans, voru að kaupa sér íbúð saman
nálægt miðbæ Reykjavíkur.
„Ég vinn sem verktaki við að
setja upp viðburði í Hörpunni.
Áður var ég verktaki í skemmtana-
bransanum og vann meðal annars
við kvikmyndagerð hjá Pegasusi
og RÚV,“ segir Elli. „Ég er rosalega
ánægður í Hörpunni og fæ að vinna
með ótrúlegum fagmönnum sem ég
læri mikið af á hverjum degi.
Vinnutíminn er breytilegur og
þá daga sem ég vinn ekki er ég með
þráhyggju fyrir tónlist og fer að búa
til takta um leið og ég hef farið með
strákinn í leikskólann,“ segir Elli.
„Seinasta árið hef ég einbeitt mér
að því að búa til takta fyrir nýju
plötuna.“
Nýja platan
að miklu leyti spuni
„Ég ákvað að vinna með Bjarka
Ballatron við upptökur á nýju
plötunni og það hefur verið mikill
heiður að vinna með honum,“
segir Elli. „Ég var búinn að semja
takta fyrir 16 lög en svo þegar
við fórum að taka upp ákvað ég
að gera allt upp á nýtt. Þannig að
Bjarki framleiddi tíu lög sem ég
„freestyle-aði“ yfir og svo fram-
leiddi ég hin sex lögin, sem voru
hugmyndir sem ég var búinn að
vinna og gat ekki sleppt. Þannig að
ég fórnaði tíu lögum og ég er hissa
á því hversu vel það hefur gengið.
Fyrir vikið getur maður einbeitt
sér meira að fönkinu í plötunni,
í staðinn fyrir að vera að pæla í
textum. Á Þykk fitan fór ég eins
djúpt og ég gat í textagerðinni,
þannig að það var þægilegt að
gera andstæðuna á þessari plötu,“
segir Elli. „Ég vissi að ég gæti ekki
gert það sem ég gerði á Þykk fitan
seinna. Ég vildi byggja stigann
með plötunum þannig upp að ég
myndi gera fyrst eina þvílíkt alvar-
lega og svona eina þar sem ég nýt
mín í botn. Ég stefni á að gera að
minnsta kostir 3-4 sólóplötur. Nýja
platan er miklu meira fjör og text-
arnir eru ekki eins persónulegir og
klikkaðir.
Á Þykk fitan var ég líka með
fastmótaðar skoðanir á því hvernig
öll lögin áttu að vera fyrir fram en
núna er ég opnari,“ segir Elli. „Það
var líka furðulegt hvað við Bjarki
smullum vel saman í samstarfinu
og ég hef lært mikið af honum.
Hann er algjört undur í tónlist
og er að fara að gefa út sólóplötu
bráðum hjá risa drum and bass
útgefanda.
Ég fékk nokkra góða gesti á
plötuna, þar á meðal Marlon
Pollock, sem ég hef viljað gera lag
með í fimm ár. Hann er svakalegur
rappari og við gerðum grime-lag
saman. Það er rosalegt,“ segir Elli.
„Platan heitir Pottþétt Elli Grill.
Þetta verður endurreisn gömlu
góðu Pottþétt-platnanna. Ég stefni
á að gefa hana út um miðjan nóv-
ember og útgáfutónleikarnir verða
1. desember á Húrra.“
Óhefðbundnir áhrifavaldar
útskýra stílinn
Elli Grill hefur mjög sérstakan stíl,
bæði hvað varðar textagerð og
flutning.
„Ég er með frekar spes húmor
sem tekur tíma að fatta og ég er
alinn upp við hardcore under-
ground teknó frá mjög ungum
aldri og elst mikið upp við hliðina
á hátalaranum. Ég hef bara alltaf
verið að pæla í tónlist og ekki séð
neitt annað. Ég var líka lengi að gera
teknó og vil mjög villta raftónlist,“
segir Elli. „Svo hef ég sökkt mér í
underground-tónlist á mörgum
ólíkum stöðum og litast af hjóla-
brettamenningu. Allt þetta útskýrir
svolítið af hverju rímurnar mínar
og tónlistin er svona.
Ég er líka ekki háður því sem er í
gangi. Það er svo auðvelt að herma
eftir röppurum úti, en það er stór-
hættulegt,“ segir Elli. „Þess vegna
hlusta ég á raftónlist og under-
ground-tónlist sem fæstir hafa
heyrt. Það er eitt af mínum helstu
áhugamálum.
Klikkuðustu textarnir koma yfir-
leitt frá mér fullkláraðir frá byrjun
til enda,“ segir Elli. „Svo eru aðrir
textar þar sem ég er alltaf að skrifa
eina og eina línu. Ég skrifa líka alls
konar línur á blað sem mér finnst
fyndnar.“
Gerði plötu í Tennessee
„Í sumar fór ég fór ég til Tennessee
í Bandaríkjunum og ég og tveir
félagar mínir stofnuðum hljóm-
sveit og gerðum plötu á ensku.
Þetta er blanda af danstónlist og
hipphoppi,“ segir Elli. „Þetta var
rosalegt sérstakt, við tókum upp
í vöruskemmu í eigu nokkurra
listamanna frá Nashville sem halda
ólöglegt reif þarna á sumrin. Hljóm-
sveitin heitir Crunky Biscuit Funk.
Mér fannst þetta svo töff tónlist að
nafnið þyrfti að vera kjánalegt til að
gefa þessu jafnvægi. Það er verið að
klára plötuna.
Ég fer til Memphis til að fá inn-
blástur, en það er upphafsborg
crunk-sins, sem er næstum eins
og trap, nema með miklu meiri
horror fíling í staðinn fyrir klúbba-
stemmningu. Atlanta gerði svo
klúbbaútgáfuna, sem er trap,“ segir
Elli. „Memphis er mjög skuggalegur
staður, en sem betur fer vorum við
á ógeðslega skuggalegum iðnaðar-
mannabíl og þess vegna gátum við
skoðað alla borgina í friði.“
Vill kynna sig betur
Elli er að vinna tónlistarmyndband
fyrir lag á nýju plötunni. „Ég var að
byrja að vinna með Midnight Mar,
sem er mjög klár leikstjóri. Ég ætla
líka að reyna að vera duglegur að
gera einhver myndbönd sjálfur til
að gefa fólki meira innsæi í tón-
listina og karakterinn minn,“ segir
Elli. „Elli Grill er svolítið húmorinn
minn á sterum og margir vita ekki
hvar þeir hafa mig, en fólk hefur
hvatt mig til að kynna mig meira.
Líf mitt snýst um að skapa einhverja
geðveiki, þannig að mér finnst ekki
skrítið að fólk sé eitthvað smeykt
við mig. En ef þú kynnist mér átt-
arðu þig á hversu djúpt teknó-ið fer
í blóðinu mínu, skilur húmorinn
minn og fattar af hverju listin mín
er svona.“
Undrast vinnubrögð Leoncie
Elli Grill gerði lagið „Enginn þrí-
kantur hér“ með Leoncie árið
2015, en lagið byggði á lagi sem
hún gaf út 2008. Í ágúst á þessu ári
sakaði Leoncie svo Ella og Shades of
Reykjavík um að eigna sér lagið og
kallaði þá „hæfileikalausa“ og „vesa-
linga“ í Facebook-færslu.
„Leoncie kom upp í stúdíó til
okkar og við gerðum lagið saman,
þannig að þó þetta sé gamall texti
frá henni er þetta ný upptaka.
Það liðu nokkrir dagar eftir að við
gáfum myndbandið út áður en
ég dreif mig upp í STEF til að skrá
lagið. Þá segir STEF mér að hún sé
búin að skrá lagið á sig,“ segir Elli.
„Þannig að hún stal mínum höf-
undarrétti, bæði sem flytjandi og
höfundur. Hún á rappið mitt og ég
skil ekki alveg hvernig það er hægt.
Leoncie er algjör snillingur, en hún
stal höfundarréttinum mínum og
fór síðan að segja opinberlega að ég
hafi stolið höfundarréttinum. Það
er alveg á næsta stigi. Ég er búinn að
grenja úr hlátri yfir þessu.
Hún er bara goðsögn, það eru
ekki margir sem vinna svona,“
segir Elli. „STEF segir að þetta sé
misskilningur hjá þeim sem þarf að
laga. En það er búið að taka plötuna
af Spotify, þar sem hún á höfundar-
réttinn og það gerir þetta eiginlega
ekki fyndið lengur. En við græjum
þetta og vonandi kemst þetta aftur
inn á Spotify. Þetta er allt í vinnslu.“
Það er hægt að fylgjast með Ella
Grill á Instagram undir elligrillehf,
á YouTube undir ElliGrill, það er like-
síða á Facebook og tónlistin hans er
aðgengileg á Spotify.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 |
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Elli slysaðist hálfpartinn inn í tónlist þegar gestur sem átti að rappa með Shades of Reykjavík kom með lélegt rapp og hann var fenginn til að taka við.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R