Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 30
TGE er hægt að fá
með þremur vélar-
stærðum, með drifi að
framan, aftan eða aldrifs-
bíl, beinskipta sem og
tölvuskipta.
Grímur Fannar Eiríksson
MAN TGX 33.580 6X4 LL í tveimur fallegum litum.
Innréttingarnar í MAN TGX eru stílhreinar og glæsilegar.
„Þessi bílar eru
allir með aldrifi
en MAN bílarnir
eru ákaflega
sterkir á þeim
markaði enda
mikið notaðir
við erfiðar að-
stæður eins og
við snjómokstur
á heiðum víða
um heim,“ segir
Grímur Fannar
Eiríksson,
sölumaður hjá
Krafti.
MYNDIR/ERNIR
Flottasti fóðurbíll landsins, að mati Gríms Fannars Eiríks-sonar, sölumanns hjá Krafti,
er nýi MAN TGX 26.500 LL bíllinn
sem Fóðurblandan fékk afhentan
nýlega. „Bíllinn, sem er mjög vel
útbúinn og öflugur, er með ábygg-
ingu frá VM Tarm í Danmörku og
kerru en fyrirtækið sá einnig um
að smíða tankinn og annan búnað
samkvæmt ósk Fóðurblöndunnar.
Bíllinn getur bæði blásið og sogið
og þannig nýtt sig og kerruna
saman þegar þess þarf. Sannarlega
flottur búnaður frá þessum flottu
aðilum hjá VM Tarm.“
Á næstunni koma til landsins
fimm bílar sem eiga að fara í verk-
efni sem vetrarþjónustubílar segir
Grímur. „Þessi bílar eru allir með
aldrifi en MAN bílarnir eru ákaf-
legar sterkir á þeim markaði enda
mikið notaðir við erfiðar aðstæður
eins og við snjómokstur á heiðum
víða um heim.“
Breytingar hjá MAN
Það eru miklar breytingar í
vændum í stóru bílunum frá MAN
segir Grímur. „Nú þegar getum
við boðið bíla með örbylgjuofni,
kaffivél og sjónvarpi en margir
hafa beðið eftir þessum lausnum
frá þeim. Á næstu tveimur árum
eigum við eftir að sjá stórar breyt-
ingar í stærri týpunum frá MAN
þannig að það eru svo sannarlega
spennandi tímar fram undan hjá
Krafti.“
Nú eru tvær nýjar rútur á leið-
inni sem Kraftur hefur fest kaup á
segir Grímur. Um er að ræða nýja
Lion’s Coach rútu sem tekur 49
manns og er vel útbúin og nýja
Neoplan Tourliner rútu sem er
einnig 49 sæta og full af nýjungum.
„Við hlökkum mikið til að taka
utan af þeim en þær eru væntan-
legar í lok nóvember og verða hér
til sýnis hjá okkur að Vagnhöfða
1-3 í desembermánuði. Við erum
að bæta þessum bílum inn í bíla-
flota okkar enda stórglæsilegir
bílar sem eiga fullt erindi á götur
landsins. Það er mikið um að vera
hjá MAN í fólksflutningabílum auk
þess sem fyrirtækið er einnig að
hasla sér völl í smærri týpum bíla.“
TGE bíllinn væntanlegur
MAN fjölskyldan stækkar enn
frekar hjá Krafti á næstunni og þar
nefnir Grímur helst TGE bílinn sem
verður brátt á boðstólum. „Það er
mikið búið að spyrja um hann en
fram að þessu hefur MAN ekki haft
undan við að sinna Mið-Evrópu.
Því höfum við, eins og margir aðrir,
ekki fengið þennan stórglæsilega
bíl fyrr en núna.“
Frá og með áramótum er því
hægt að panta TGE segir Grímur.
„TGE er hægt að fá með þremur
vélarstærðum, með drifi að framan,
aftan eða aldrifsbíl, beinskiptan
sem og tölvuskiptan. Hann fæst
sem hefðbundinn sendibíll til
dreifingar í pallbíl með krana og í
flottum ferðaþjónustubílum og allt
þar á milli. Þessir bílar eru smíð-
aðir á grind sem þýðir að alls konar
lausnir eru fáanlegar varðandi
útbúnað frá verktakanum. Það er
mikil eftirvænting hjá okkur og satt
að segja erum við eins og krakkar
að bíða eftir eftirréttinum.“
Breytingar í vændum frá MAN
MAN fjölskyldan stækkar hjá Krafti á næstunni þegar TGE bíllinn verður til sölu. Nýlega fékk Fóður-
blandan afhentan nýjan MAN TGX 26.500 LL bíl frá Krafti sem er einn flottasti fóðurbíll landsins.
KYNNINGARBLAÐ 13 F Ö S T U DAG U R 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR