Fréttablaðið - 26.10.2018, Síða 35

Fréttablaðið - 26.10.2018, Síða 35
Ég var á kafi í mótorsporti í tíu ár. Það var aðeins of dýrt en kannski fer ég aftur í það þegar ég er búinn að byggja og koma mér fyrir. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Sturla Jónsson segist hafa lært margt á síðustu tíu árum. MYND/ANTON BRINK Sturla segir að of lítið hafi breyst í íslensku samfélagi á þeim tíu árum sem liðin eru frá hruni. Hann segir að fólk eigi helst að forðast allar íslenskar lánastofnanir. Sturla var með eigin rekstur fyrir tíu árum. Hann hefur nú tekið þann rekstur upp aftur, er með dráttarbíl, belta- gröfu og vagna. „Það hefur verið sæmilegt að gera hjá mér en mest hef ég verið að vinna í nálægð við Hveragerði og Selfoss. Annars fer ég um allt land ef þess er óskað,“ segir hann. „Ég hef reynt að koma fyrirtækinu upp skuldlaust og er að byggja mér hús rétt hjá Hvera- gerði,“ segir Sturla sem hefur búið í Reykjavík en langar að flytja austur fyrir fjall. „Í hruninu reyndi bankinn að stela húsinu mínu af mér. Ég átti mikið eigið fé í húsinu og öll mín barátta fól í sér að verja það. Ég komst í erfiðleika með lausafé og gat ekki borgað afborgun á réttum tíma en þá ætlaði bankinn bara að hirða allt. Mér tókst hins vegar að selja húsið og átti nægilega mikinn afgang til að kaupa tæki til rekst- ursins. Ég er eiginlega á þeim stað núna að gera hluti sem ég hefði átt að gera þegar ég var þrítugur,“ segir hann galvaskur en nokkuð ánægður með hversu vel hefur gengið undanfarið. Sturla á konu og þrjá syni, tveir þeirra eru uppkomnir en einn á menntaskólaaldri. „Ég fékk 10 hektara eignarlóð rétt fyrir utan Hveragerði og þar er ég að byggja,“ segir hann. „Maður er bara hálf- tíma að keyra í bæinn. Ég er búinn að prófa ýmislegt síðastliðin tíu ár en allt snerist þetta um að vekja athygli á óréttlætinu í þjóðfélag- inu. Það sem ég lærði á öllu þessu er að fáfræði forðar manni frá van- líðan. Þegar ég var búinn að kynna mér allt um það hvernig stjórn- kerfið virkar sá ég best að réttindi okkar eru fótum troðin. Ég gerði mér ekki grein fyrir því áður. Fólk verður ekki reitt yfir því sem það ekki veit,“ segir hann. „Þetta fer því miður bara versnandi.“ Sturla hefur alltaf haft mikla bíladellu og þá sérstaklega jaðar- íþróttir eins og til dæmis mótor- sport. „Ég var á kafi í mótorsporti í tíu ár. Það var aðeins of dýrt en kannski fer ég aftur í það þegar ég er búinn að byggja og koma mér fyrir. Að minnsta kosti blundar það alltaf í mér,“ segir hann. „Ég hef líka haft gaman af því að fara á ferðabíl á fjöll á vetrum,“ segir Sturla sem keyrði rútur á tímabili. „Ég var að vinna fyrir hina og þessa og tók túra með ferðamenn sem var virkilega skemmtilegt starf. Bílar hafa alltaf skipt mig miklu máli,“ segir Sturla sem mætti á vörubíl ásamt fleiri bílstjórum fyrir utan Alþingishúsið með ellefu líkkistur í hruninu. „Við ætluðum að jarða þáverandi ríkisstjórn,“ segir hann. „Hins vegar kom stór jarðskjálfti svo málið vakti ekki verðskuldaða athygli. Þetta var engu að síður mögnuð uppá- koma,“ segir Sturla og viðurkennir að hann sé ágætlega bjartsýnn um þessar mundir, sérstaklega fyrir sjálfan sig. Aftur kominn í eigin rekstur Sturla Jónsson var oft kallaður mótmælandi Íslands eftir hrun. Honum fannst illa komið fram við almenning og vildi láta orð sín hljóma. Meðal annars með því að fara í forsetaframboð. Getum einnig útvegað rafstöðvar frá 6 til 1000 KVA. Verktakar, Iðnaðarmenn, Húsbílaeigendur ljosboginn@ljosboginn.isljosboginn.is Startarar og alternatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Höfum einnig varahluti í alternatora og startara Bjóðum tilboðsverð á ýmsum stærðum af vinnuvéladekkjum meðan birðir endast Vinnuvéladekk Vorum að fá nýja sendingu! 18 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR Vinnudagurinn er oft langur hjá þeim sem keyra vörubíla og vinnuvélar og jafnvel langt frá mannabyggðum. Þá skiptir gott nesti miklu máli sem hægt er að grípa í með skömmum fyrirvara. Sloppy Joe er fræg samloka sem þróaðist í Banda- ríkjunum snemma á síðustu öld og samanstendur af nautahakki eða svínakjöti, lauk, tómatsósu, Wor- cestershire sósu og ýmsu kryddi, borið fram í brauði. Alvöru trukka- samloka! Dugar á 5-6 samlokur 450 g nautahakk ¼ bolli smátt saxaður laukur 1 msk. gult sinnep ½ bolli tómatsósa ¼ bolli púðursykur ½ msk. Worcestershire sósa 10-12 sneiðar fransbrauð (eða annað brauð) 6 msk. smjör við stofuhita 3-4 bollar rifinn ostur Brúnið hakkið á pönnu ásamt lauknum. Hellið mestu fitunni af. Bætið við sinnepi, tómatsósu, púðursykri og Worcestershire sósunni. Látið malla í 5 mín. Smyrjið smjöri á aðra hlið allra brauðsneiðanna. Leggið brauð- sneiðar með smjörið niður á pönnu við vægan hita. Setjið rifinn ost ofan á, næst kjötblönduna og aftur ost. Lokið með annarri brauðsneið með smjörhliðina upp. Steikið í nokkrar mínútur og snúið nokkrum sinnum þar til þær eru fallega brúnar og osturinn bráðnaður. Samloka í trukkinn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.