Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 37

Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 37
Ég er alin upp á Hróaldsstöðum í Vopnafirði og var ekki nema fimm, sex ára þegar ég fékk að prófa að stýra bíl í fyrsta sinn. Áhuginn á bílum hefur fylgt mér upp frá því, enda var mikið um alls konar bíla, hjól, tæki og vélar í sveitinni sem gaman var að vera í kringum,“ segir Aðalbjörg sem er búsett á Egilsstöðum. Hún er með vinnuvélaréttindi og meirapróf á vörubíla og finnst skemmtilegt að keyra flutningabíla með tengi- vagna, en þó aðeins í frístundum því dagsdaglega vinnur hún hjá Bílanausti við að selja varahluti og annað sem tengist bílum og líkar það vel. „Einu ökuréttindin sem mig vantar er meiraprófið svo ég geti keyrt rútur en ég stefni á að taka það innan skamms. Kærastinn minn, Guðlaugur Sindri Helgason, á nokkra vörubíla og ég vil geta keyrt þessi tæki,“ segir Aðalbjörg. Á kafi í torfæru Þau Aðalbjörg og Guðlaugur hafa bæði mikinn áhuga á bílasporti og segir hún lítinn tíma fyrir önnur áhugamál. Hún situr í stjórn Akstursíþróttaklúbbsins Starts á Egilsstöðum og er auk þess í vara- stjórn hjá Akstursíþróttasambandi Íslands. Í sumar ákvað Aðalbjörg að rifja upp gamla takta og keppa í sandspyrnu líkt og hún gerði nokkrum sinnum á árum áður. „Ég tók þátt í Íslandsmeistara- mótinu í sandspyrnu sem fór fram á Akureyri og keppti á torfærubíl í flokki sérútbúinna jeppa. Tíma- takan gekk mjög vel en bíllinn bilaði í miðri keppni svo ég lenti í þriðja sæti. Ég stefni á að mæta sterk til leiks næsta sumar,“ segir hún. „Ég hef líka verið mikið í kringum torfærukeppnir síðustu tíu árin og aðstoðað við keppnis- hald. Hér á Egilsstöðum eru reglu- lega haldnar stórar torfærukeppnir og Guðlaugur hefur keppt í þessu sporti um árabil. Ég get vel hugsað mér að keppa í torfæru en hingað til hef ég verið honum til aðstoðar, t.d. komið bílnum á milli staða og slíkt,“ upplýsir Aðalbjörg en fjögurra ára dóttir þeirra, Sóldögg Sara, kemur með á keppnir og hefur gaman af. Spurð hvað sé heillandi við tor- færu segir Aðalbjörg það aðallega vera spennuna og félagsskapinn í kringum bílana. „Síðustu tvö árin höfum við farið með bílinn til Tennessee í Bandaríkjunum í októ- ber að keppa. Bíllinn er settur í gám og fluttur út en keppnin úti er á vegum Íslendinga. Keppnin sem slík er svipuð þeirri sem haldin er hér heima en það myndast allt önnur stemning í þrjátíu stiga hita en í grenjandi rigningu og roki hér heima,“ segir Aðalbjörg glettin. Hún segir áhuga á aksturs- íþróttum mikinn og heldur vera að aukast ef eitthvað er. „Ég held að torfæran sé vinsælust í dag. Fleiri þúsund manns mæta á torfæruna að fylgjast með keppnum.“ Í vor lét svo Aðalbjörg gamlan draum rætast þegar hún keypti sér nýja bíl, sportlegan Chevr- olet Camaro. Bíllinn vekur mikla athygli hvar sem hún fer, enda glæsikerra þar á ferð. „Ég er mjög hrifin af amerískum bílum og hef átt nokkra slíka vagna. Chevrolet Camaro er þó í algjöru uppáhaldi og hefur alltaf verið.“ Ég er mjög hrifin af amerískum bílum og hef átt nokkra slíka. Chevrolet Camaro er þó í algjöru uppáhaldi. Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Aðalbjörg keppti í sandspyrnu í sumar í flokki sérútbúinna jeppa. Sóldögg Sara hefur fylgt for- eldrum sínum á ófáar torfæru- keppnir og hefur gaman af. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI Með bíladellu á háu stigi Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir var fimm ára þegar hún settist fyrst undir stýri og síðan þá hefur bílaáhuginn fylgt henni. Hún á glæsilegan sport- bíl og hefur rétt- indi til að keyra flutningabíla með tengivagni. Sölu- og þjónustuver 515 1100 eða pontun@olis.is.HREIN ORKA Í ALLRA ÞÁGU TROJAN RAFGEYMAR fyrir vinnulyftur, gólfþvottavélar og fleiri smærri vélar Endingargóðir, úthaldsmiklir og traustir. Um langt skeið hafa notendur um allan heim treyst á Trojan til að skila framúrskarandi afli, en afkastageta Trojan hefur verið aukin enn frekar með nýjustu tækni. 20 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.