Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 10

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 10
Í skjali undirrituðu af Zhu Hailun kemur fram að aldrei eigi að leyfa „óeðlileg dauðsföll“. LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500 Range Rover Sport HSE PHEV Verð frá: 13.690.000 kr. Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun, framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti. Verið velkomin í reynsluakstur! RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ Í RANGE ROVER www.landrover.is E N N E M M / S ÍA / N M 9 5 5 8 9 R a n g e R o v e r S p o rt P H E V 5 x 2 0 s e p t KÍNA Alþjóðasamtök rannsóknar- blaðamanna (ICIJ) komust yfir skjöl, sem hafði verið lekið, frá kín- verska Kommúnistaflokknum um starfsemi fangabúða í vesturhluta landsins. Voru þau birt hjá BBC, The Guardian og fimmtán öðrum fjöl- miðlum á sunnudag. Í skjölunum kemur fram að kín- verska ríkisstjórnin rekur keðju fangabúða sem hýsa eina til eina og hálfa milljón kínverskra múslima, af ýmsum þjóðarbrotum, f lesta af þjóðarbrotinu Uighur. Fangabúðir er ekki orðið sem notað er í skjöl- unum en fólkinu er haldið gegn vilja sínum. Þetta eru ekki opin- berar búðir í þeim skilningi að fólk eigi að vita af tilvist þeirra, þær eru faldar af yfirvöldum. Í þessum fangabúðum er stundaður heila- þvottur, eða „endurmenntun“ þar sem fólk er aðlagað því þjóðfélagi sem f lokkurinn vill byggja upp. Því er kennt mandarínmál og eru innleidd þau gildi sem Alþýðulýð- veldið stendur fyrir. Vitund um eigin þjóðerni, það er þjóðarbrota og ættbálka, er brotin niður. Þarna eru meðal annars loft- myndir af búðunum og frásagnir fólks sem hefur dvalið þar og ætt- ingja þess. Einnig samskipti ráða- manna Kommúnistaflokksins um hvernig bygging búðanna og starf- semin þar skyldi fara fram. Nafn sem kemur ítrekað fram er Zhu Hail- un, en hann er yfirmaður flokksins í héraðinu Xianjiang þar sem fanga- búðirnar eru. Hann undirritaði meðal annars skipanir um hvernig taka ætti á móti föngum. Einnig koma fram handtökuskipanir, svo sem skipun frá árinu 2017 þar sem 24.000 manns voru til skoðunar og ákveðið að senda 15.600 af þeim í fangabúðirnar. Rúmlega 700 til við- bótar voru settir í venjulegt fangelsi. Fangabúðirnar eru rétt eins og önnur fangelsi, með steyptum veggjum, vírgirðingum, varðturn- um, öryggiskerfum og vopnuðum vörðum. Stíft er fylgst með bæði andlegu og líkamlegu ástandi fang- anna. Þeir mega aðeins hafa sam- band við ættingja og vini einu sinni í viku í gegnum síma, og einu sinni í mánuði í gegnum myndbands- samtal. Myndbandsupptökuvélar eru alls staðar í búðunum, á her- bergjum, göngum og í matsalnum. Föngum er refsað harkalega ef þeir reyna að sleppa eða hafa sam- band við umheiminn utan þeirra marka sem fangaverðir setja þeim. Margar frásagnir eru til af of beldi, pyndingum og jafn vel nauðgunum af hálfu fangavarða. Í skjali undir- rituðu af Zhu Hailun kemur fram að aldrei eigi að leyfa „óeðlileg dauðsföll“. Enn fremur kemur fram að yfirvöld hafi áhyggjur af því að umheimurinn komist að því hvað fari fram í búðunum. Fangavistin er ótímabundin en hver fangi verður að minnsta kosti eitt ár í „meðferð“. Fangarnir fá stig fyrir að meðtaka fyrirmælin vel og geta þá f lýtt því að losna. Jafnvel eftir að fangarnir hafa klárað með- ferð sína er þeim ekki sleppt strax, heldur þurfa þeir að dvelja í öðrum búðum í allt að hálfu ári til viðbótar. Þar læra þeir eitthvert fag sem nýtist á vinnumarkaðinum. Eftir að þeirri vist lýkur er enn fylgst með fólki, í að minnsta kosti eitt ár. Er það lög- regluyfirvalda á hverjum stað að fylgjast með fólki sem nýbúið er að sleppa. Kínversk stjórnvöld hafa ítrekað afneitað tilvist þessara búða og segjast aðeins reka fangabúðir fyrir íslamska hryðjuverkamenn. Þetta breyttist ekki þegar skjölin voru birt á sunnudag. Opinbera stefnan er að skjölin séu einfaldlega fölsuð. kristinnhaukur@frettabladid.is Yfir milljón múslimar í fangabúðum Á sunnudag voru birt skjöl sem lekið hafði verið úr gagnagrunni kínverska Kommúnistaflokksins. Í skjölunum kemur fram að á bilinu ein til ein og hálf milljón múslima er í keðju fangabúða í vesturhluta landsins. Markmiðið er að endurmennta múslima. Fangabúðirnar eru með vírgirðingum, varðturnum, öryggiskerfum og vopnuðum vörðum. NORDICPHOTOS/GETTY 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.