Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 10
Í skjali undirrituðu af
Zhu Hailun kemur fram að
aldrei eigi að leyfa „óeðlileg
dauðsföll“.
LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500
Range Rover Sport HSE PHEV
Verð frá: 13.690.000 kr.
Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun,
framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega
lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti.
Verið velkomin í reynsluakstur!
RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ
Í RANGE ROVER
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
5
8
9
R
a
n
g
e
R
o
v
e
r
S
p
o
rt
P
H
E
V
5
x
2
0
s
e
p
t
KÍNA Alþjóðasamtök rannsóknar-
blaðamanna (ICIJ) komust yfir
skjöl, sem hafði verið lekið, frá kín-
verska Kommúnistaflokknum um
starfsemi fangabúða í vesturhluta
landsins. Voru þau birt hjá BBC, The
Guardian og fimmtán öðrum fjöl-
miðlum á sunnudag.
Í skjölunum kemur fram að kín-
verska ríkisstjórnin rekur keðju
fangabúða sem hýsa eina til eina og
hálfa milljón kínverskra múslima,
af ýmsum þjóðarbrotum, f lesta af
þjóðarbrotinu Uighur. Fangabúðir
er ekki orðið sem notað er í skjöl-
unum en fólkinu er haldið gegn
vilja sínum. Þetta eru ekki opin-
berar búðir í þeim skilningi að fólk
eigi að vita af tilvist þeirra, þær
eru faldar af yfirvöldum. Í þessum
fangabúðum er stundaður heila-
þvottur, eða „endurmenntun“ þar
sem fólk er aðlagað því þjóðfélagi
sem f lokkurinn vill byggja upp.
Því er kennt mandarínmál og eru
innleidd þau gildi sem Alþýðulýð-
veldið stendur fyrir. Vitund um
eigin þjóðerni, það er þjóðarbrota
og ættbálka, er brotin niður.
Þarna eru meðal annars loft-
myndir af búðunum og frásagnir
fólks sem hefur dvalið þar og ætt-
ingja þess. Einnig samskipti ráða-
manna Kommúnistaflokksins um
hvernig bygging búðanna og starf-
semin þar skyldi fara fram. Nafn
sem kemur ítrekað fram er Zhu Hail-
un, en hann er yfirmaður flokksins
í héraðinu Xianjiang þar sem fanga-
búðirnar eru. Hann undirritaði
meðal annars skipanir um hvernig
taka ætti á móti föngum. Einnig
koma fram handtökuskipanir, svo
sem skipun frá árinu 2017 þar sem
24.000 manns voru til skoðunar og
ákveðið að senda 15.600 af þeim í
fangabúðirnar. Rúmlega 700 til við-
bótar voru settir í venjulegt fangelsi.
Fangabúðirnar eru rétt eins og
önnur fangelsi, með steyptum
veggjum, vírgirðingum, varðturn-
um, öryggiskerfum og vopnuðum
vörðum. Stíft er fylgst með bæði
andlegu og líkamlegu ástandi fang-
anna. Þeir mega aðeins hafa sam-
band við ættingja og vini einu sinni
í viku í gegnum síma, og einu sinni
í mánuði í gegnum myndbands-
samtal. Myndbandsupptökuvélar
eru alls staðar í búðunum, á her-
bergjum, göngum og í matsalnum.
Föngum er refsað harkalega ef
þeir reyna að sleppa eða hafa sam-
band við umheiminn utan þeirra
marka sem fangaverðir setja þeim.
Margar frásagnir eru til af of beldi,
pyndingum og jafn vel nauðgunum
af hálfu fangavarða. Í skjali undir-
rituðu af Zhu Hailun kemur fram
að aldrei eigi að leyfa „óeðlileg
dauðsföll“. Enn fremur kemur fram
að yfirvöld hafi áhyggjur af því að
umheimurinn komist að því hvað
fari fram í búðunum.
Fangavistin er ótímabundin en
hver fangi verður að minnsta kosti
eitt ár í „meðferð“. Fangarnir fá stig
fyrir að meðtaka fyrirmælin vel og
geta þá f lýtt því að losna. Jafnvel
eftir að fangarnir hafa klárað með-
ferð sína er þeim ekki sleppt strax,
heldur þurfa þeir að dvelja í öðrum
búðum í allt að hálfu ári til viðbótar.
Þar læra þeir eitthvert fag sem nýtist
á vinnumarkaðinum. Eftir að þeirri
vist lýkur er enn fylgst með fólki, í
að minnsta kosti eitt ár. Er það lög-
regluyfirvalda á hverjum stað að
fylgjast með fólki sem nýbúið er að
sleppa.
Kínversk stjórnvöld hafa ítrekað
afneitað tilvist þessara búða og
segjast aðeins reka fangabúðir fyrir
íslamska hryðjuverkamenn. Þetta
breyttist ekki þegar skjölin voru
birt á sunnudag. Opinbera stefnan
er að skjölin séu einfaldlega fölsuð.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Yfir milljón múslimar í fangabúðum
Á sunnudag voru birt skjöl sem lekið hafði verið úr gagnagrunni kínverska Kommúnistaflokksins. Í skjölunum kemur fram að á
bilinu ein til ein og hálf milljón múslima er í keðju fangabúða í vesturhluta landsins. Markmiðið er að endurmennta múslima.
Fangabúðirnar eru með vírgirðingum, varðturnum, öryggiskerfum og vopnuðum vörðum. NORDICPHOTOS/GETTY
2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð