Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 17

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 17
HANDBOLTI Það er þekkt stærð að Laugardalshöll og handbolti passa ekki lengur saman. Það sannaðist enn einu sinni í síðustu viku þegar kvennalandsliðið æfði og spilaði tvo æfingaleiki við Færeyjar. Liðið æfði yfirleitt tvisvar á dag, í hádeginu og seinni partinn, og þær æfingar fóru fram víða um höfuðborgarsvæðið. „Við í landsliðinu erum allar greinilega með mjög góða vinnu- veitendur því við fengum allar frí til að fara á æfingar í hádeginu. Svo var það seinni partinn um allan bæ. Handboltinn hefur ekki eina aðstöðu og það getur verið erfitt að fá tíma í íþróttahúsunum. Við fengum prógrammið svo- lítið seint og það var svolítið erfitt að skipuleggja sig. Sumar að vinna, aðrar í skóla og enn aðrar með börn, en við kvörtum ekki,“ segir Karen Knútsdóttir sem skoraði 12 mörk í leikjunum tveimur gegn Færey- ingum. Fyrri leikurinn fór 28-20 og sá síðari 34-19. Hún viðurkennir að bensínið hafi klárast óvenju hratt þessa vikuna þar sem hún þurfti að keyra í mis- munandi íþróttahús. Hún hafi þó ekki verið í neinum vandræðum með að komast á milli enda á góðum dekkjum, Goodyear-nagla- dekkjum – beint úr hillum Kletts þar sem hún vinnur. „Þetta er ekki skemmtileg staða en við erum heppnar með vinnu- veitendur því það er ekkert grín að fá að fara á hádegisæfingar. Maður er alveg lengi að fara rúntinn upp á Ásvelli í Hafnarfirði úr Kletta- görðum til dæmis. Bensínið mitt kláraðist f ljótt í þessari viku,“ segir hún. Arnar Pétursson tók við sem landsliðsþjálfari fyrir skemmstu og segir Karen að hann hafi verið að skerpa á sóknarleiknum þessa vik- una. Henni líst vel á það sem Arnar kemur með að borðinu. „Hann kemur inn með sínar áherslur og hann kann þessa vörn, frægu ÍBV- vörn, upp á 10 og er með skýr fyrir- mæli. Hann veit alveg hvað hann vill og er ákveðinn. Hann er f lottur fyrir þennan hóp og á þeim stað sem hann er á núna. Við vorum mikið að fara yfir sóknarleikinn, þar sem er verið að breyta skipulaginu. Við vorum að fara yfir fullt af hlutum og ég held að það hafi gengið mjög vel í þessum tveimur leikjum. Það sem við vorum að æfa í vikunni var nýtt í leikjunum og sumt gekk vel, sumt vonum framar, og annað sem var smá hikst. En að öllu ólöstuðu var þetta, að mínum dómi, mjög gott og það eru allir meira samstilltir og vita til hvers er ætlast af þeim.“ benediktboas@frettabladid.is Konurnar þurftu að æfa um allan bæ Íslenska kvennalandsliðið spilaði tvo æfingaleiki við Færeyjar og æfði í vikutíma. Karen Knútsdóttir, ein þeirra sem hafa spilað yfir hundrað landsleiki, segir ljóst að Arnar Pétursson sé hárréttur kostur sem landsliðsþjálfari en hefði viljað æfa á einum stað. Karen Knútsdóttir kláraði bensínið fljótt í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Íslenska kvennalandsliðið æfði í vikutíma og spilaði svo tvo æfingaleiki við Færeyjar þar sem landsliðsþjálfarinn lagði áherslu á sóknarleikinn. Arnar Pétursson er að setja sitt handbragð sitt á liðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fyrri leikurinn 28-20 Staðan í hálfleik var 17 – 9 og voru stelpurnar okkar með yfirhöndina eftir jafnar fyrstu mínútur leiksins. Leikurinn endaði 28 – 20 og spilaði landsliðsþjálfarinn Arnar Péturs- son á öllum leikmönnum Íslands. Seinni leikurinn 34-19 Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og staðan 13 – 11 að honum loknum. Stelpurnar okkar komu sterkari til leiks eftir leikhlé og náðu fljótt öruggri forystu. Leikurinn endaði 34 – 19. Karen Knútsdóttir 7 Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 4 Perla Rut Albertsdóttir 3 Birna Berg Haraldsdóttir 3 Ragnheiður Júlíusdóttir 3 Díana Dögg Magnúsdóttir 3 Steinunn Björnsdóttir 3 Andrea Jacobsen 2 Þórey Rósa Stefánsdóttir 2 Ester Óskarsdóttir 2 Sigríður Hauksdóttir 1 Sandra Erlingsdóttir 1 Mörk Íslands skoruðu Mörk Íslands skoruðu Þórey Rósa Stefánsdóttir 5 Karen Knútsdóttir 5 Andrea Jakobsen 3 Birna Berg Haraldsdóttir 3 Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 2 Perla Ruth Albertsdóttir 2 Sigríður Hauksdóttir 2 Tea Imani Sturludóttir 2 Helena Rut Örvarsdóttir 1 Eva Björk Davíðsdóttir 1 Steinunn Björnsdóttir 1 Hildur Björnsdóttir 1 ENSKI BOLTINN Ekkert varð úr því að það yrði svartur mánudagur í ensku úrvalsdeildinni í gær þrátt fyrir að þrír stjórar séu á ystu nöf og tveir til viðbótar geti farið að óttast um starf sitt sem knattspyrnustjórar. Unai Emery, knattspyrnustjóri Arsenal, Manuel Pellegrini, knattspyrnu- stjóri West Ham, og Marco Silva, knattspyrnustjóri Everton, eru allir undir mikilli pressu og yrði óvænt að sjá þá alla stýra liðum sínum um næstu helgi en þeir voru enn með vinnu þegar Fréttablaðið fór í prentun. Starfsöryggið er örlítið meira hjá Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United og Quique Sán chez Flores hjá Watford en þeir þurfa þó að hysja upp um sig bux- urnar á næstu vikum til að halda starfi sínu. Háværustu raddirnar voru hjá Arsenal en samkvæmt nokkrum enskum götublöðum og hljóð- varpsveitum var fundur hjá stjórn Arsenal í gær þar sem farið var yfir málin. Enginn stór fjölmiðill birti þó þetta fundarboð. The Telegraph greindi frá því í gær að leikmenn hefðu snúist gegn stjóranum og óskað eftir að hann yrði leystur frá störfum. Trúlega myndi Freddy Ljungberg taka við til bráðabirgða. Félagið hefur ekki unnið í sex leikjum í röð en ekki eru miklar líkur á, þó Arsenal sé í áttunda sæti deildarinnar, að það endi í Meist- aradeildarsæti. Charlie Nicholas, knattspyrnusérfræðingur á Sky, sagði undir kvöld að trúlega væri Emery kominn á endastöð. Fleiri spekingar tóku í sama streng. – bb Enginn svartur mánudagur í enska boltanum Marco Silva segir eitthvað við okkar mann, Gylfa Þór Sigurðsson. Arsenal hefur ekki unnið í sex leikjum í röð. Everton situr í 15. sæti deildarinnar. 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.