Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 49

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 49
þær eru gufusteiktar í lokuðu íláti við lágan hita. 1-2 gæsir, reyttar og sviðnar 1 msk. sykur Salt og pipar 2-4 epli, flysjuð, kjarnhreinsuð og skorin í bita 75-150 g sveskjur, steinlausar 2-3 sellerístönglar, saxaðir 2-3 gulrætur, saxaðar 1 laukur, saxaður 6 einiber 2 lárviðarlauf 2 rósmaríngreinar Nokkrar timíangreinar (innmatur úr gæsinni) 400 ml vatn, sjóðheitt Hitaðu ofninn í 140°C. Þerraðu gæsina með eldhúspappír, bland- aðu saman sykri, salti og pipar og nuddaðu vel inn í haminn. Krydd- aðu gæsina líka að innan (ekki með sykri þó). Blandaðu saman eplum og sveskjum og fylltu gæsina/gæsirnar með blöndunni. Lokaðu opinu með kjötnálum eða krossleggðu leggina og bittu þá saman til að halda fyll- ingunni inni. Settu gæsina í steikarpott og láttu bringuna snúa upp. Dreifðu græn- meti og kryddjurtum jafnt í kring, ásamt innmat ef hann er til staðar. Helltu vatninu yfir grænmetið, settu lokið á steikarpottinn (eða breiddu álpappír þétt yfir) og settu í ofninn í 2½ – 3 klst. Taktu lokið af þegar um 15 mínútur eru eftir og hækkaðu hitann í 200°C til að brúna fuglinn. Taktu gæsina út og haltu henni heitri. Síaðu soðið (bættu við vatni ef það er of lítið), settu það í pott, hitaðu að suðu og þykktu það með hveitijafningi, smjörbollu eða sósujafnara. Smakkaðu og bragð- bættu með pipar og salti ef þarf. Svo má líka bæta við portvínsskvettu, rjóma, berjasultu eða gráðaosti, allt eftir smekk. FRÓMAS EINS OG HJÁ ÖMMU Hér er uppskrift að klassískum sítrónufrómas, sem ættaður er frá Danmörku en var algengur jóla­ eftirréttur á íslenskum heimilum. Nota má sömu uppskrift til að gera aðrar tegundir af frómas, til dæmis ananasfrómas. Þá er safinn úr ananasdósinni notaður en gott er að blanda dálitlum sítrónusafa saman við til að fá aðeins skarpara bragð. Alls ekki nota ferskan ananas, í honum er efni sem kemur í veg fyrir að matarlímið stífni. Það hverfur við hitun, þess vegna er í lagi að nota niðursoðinn ananas. 4 matarlímsblöð 3 egg 75 g sykur 250 ml rjómi 1 sítróna Leggðu matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í nokkar mínútur. Rífðu gula börkinn af sítrónunni á fínu rifjárni og geymdu. Kreistu safann í lítinn pott. Kreistu vatnið úr matarlímsblöðunum og settu þau út í sítrónusafann. Hitaðu rólega þar til matarlímið er bráðið. Taktu þá pottinn strax af hitanum og láttu kólna aðeins. Aðskildu eggin og þeyttu rauðurnar og sykurinn vel saman. Blandaðu rifna sítrónuberkinum saman við. Helltu sítrónusafanum smám saman út í og þeyttu vel á meðan. Láttu blönduna bíða í smástund, þar til hún er aðeins farin að þykkna. Stífþeyttu eggjahvíturnar og bland- aðu þeim gætilega saman við með sleikju. Þeyttu rjómann, taktu svo- lítið frá til skreytingar og blandaðu afganginum gætilega saman við frómasinn með sleikju. Helltu fró- masinum í fallega skál og settu í kæli í að minnsta kosti 2-3 klst. Skreyttu með afganginum af rjóm- anum og ef til vill rifnum sítrónu- berki. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Nanna ólst þó ekki upp við gæs á jólum heldur lamba­læri eða hrygg. Hún er alin upp í sveit og þar var til siðs að bera fram það sem til var á bænum. „Það var ekki hlaupið út í búð,“ segir hún. Þegar Nanna fór sjálf að búa hafði hún gaman af því að prófa nýja rétti á jólum og var lítið fyrir að halda í hefðir. „Þegar barnabörnin komu til sögunnar fóru þau nú svolítið að stjórna ferðinni og vildu gjarnan það sama og þau höfðu fengið árið áður,“ segir hún. Nanna hefur gefið út fjöldann allan af matreiðslubókum en segir að þessa gæsauppskrift hafi hún þó ekki notað í bók. „Sítrónufróm­ asinn var hins vegar í bók sem ég gaf út og heitir Ömmu matur Nönnu. Þegar ég hef búið til þennan eftirrétt segir fólk gjarnan: „Þetta er eins og var hjá ömmu“,“ segir Nanna sem hefur verið í útlöndum undanfarin jól. „Mig langaði að halda jól í mismunandi löndum eða heimsækja land þar sem væru engin jól. Jólin 2017 hélt ég til Norður­Kýpur þar sem búa múslimar. Þar sá maður ekki einu sinni jólatré né heyrði jólalög,“ segir Nanna sem ætlar að halda jólin heima núna. „Það er nú ekki síst vegna þess að ég er nýbúin að fá nýtt barnabarn, sonarson, og langar til að halda jól með honum. Svo spilar flugviskubitið aðeins inn í. Ég ferðaðist yfirleitt í tveimur til þremur flugvélum til að komast á áfangastað,“ útskýrir hún. Fyrir jólin heldur Nanna alltaf „forláksmessuboð“. Þá svigna borðin undan jólamat og gestir koma síðdegis og fram á kvöld til að smakka á kræsingunum. „Í fyrra komu um 80 manns svo það er líf og fjör. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt enda er það þess vegna sem ég geri þetta ár eftir ár,“ segir hún. Nanna er þegar búin að setja svínslæri í saltpækil fyrir veisluna en hún vonast til að hún verði um helgina fyrir jól. FYLLT VILLIGÆS Gæsir eru nokkuð misstórar og óvíst að ein dugi fyrir fjölskyld­ una. Þess vegna er uppskriftin fyrir eina til tvær gæsir – það þarf auðvitað meiri fyllingu í tvo fugla en það sem fer í sósuna má hafa óbreytt, það er ekkert verra að vera með mikið af henni. Steikingar­ tíminn er oft óvissuþáttur og fer dálítið eftir aldri gæsanna en þær þorna síður við langa steikingu ef Ömmumatur sem klikkar aldrei Nanna Rögnvaldardóttir gefur hér uppskriftir sem kallast mætti ömmumatur á jólum. Fyllt villigæs var vinsæl á borðum Íslendinga á árum áður og flestir muna eftir sítrónufrómasi í eftirrétt hjá ömmu. Nanna rifjar hér upp hvernig á að gera réttinn frá grunni. Nanna var að baka sörur af mikilli alúð þegar ljósmyndarinn kom til hennar í heimsókn. Hún gefur þó uppskrift að mat hér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sítrónufrómas eins og hjá ömmu. Hver er ekki til í að prófa hann?Fyllt gæs var vinsæll jólamatur á íslenskum heimilum og er enn. Verð: 18.900 Kr. JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 928
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.