Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 59
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Jens segir að hann sé frekar nýlega farinn að gera jólakort, en hann hefur verið með jóla-
dagatal á Facebook-síðu sinni
Jens Arne Art þar sem hann
teiknar vatnslitamyndir fyrir
hvern dag fram að jólum. „Ég hef
gert afmæliskort fyrir dóttur mína
þegar hún fer í afmæli hjá vinum
og vinkonum. Út frá því byrjaði ég
að gera jólakortin,“ segir Jens.
Jens útskrifaðist af teiknibraut
Myndlistaskólans í Reykjavík og
lauk bachelor-gráðu í stafrænni
list frá University of Cumbria
í Bretlandi. Hann hefur haldið
nokkur myndlistarnámskeið og
kennir nú á vatnslitanámskeiði
fyrir fullorðna í Klifinu í Garðabæ.
„Nemendur mínir á námskeið-
inu hafa verið mjög áhugasamir
um jólakortin og óskuðu eftir því
að ég kenndi þeim hvernig ég bý
þau til,“ segir Jens.
Jens segist nota A5 pappír í
kortin en pappírinn er hugsaður
fyrir ýmis efni eins og vatnsliti,
blek og kol. „Ég handskrifa kveðj-
una á kortin og er með klippur til
að rúna hornin þannig að þau séu
ekki alveg bein,“ útskýrir hann.
„Kortin eru vatnslituð og ég nota
Byrjar snemma
að telja dagana
fram að jólum
Myndlistarmaðurinn Jens Arne Júlíusson er mikið jólabarn.
Hann segist byrja að telja niður dagana til jóla snemma og
horfa á jólamyndir tveimur mánuðum fyrir jól. Undanfarið
hefur hann verið að búa til jólakort með vatnslitamyndum
með dyggri aðstoð Iðunnar, fjögurra ára dóttur sinnar.
Kortin eru vatnslituð en jóla-
sveinamyndirnar hafa verið
settar á segla.
Jens Arne Júlíusson býr til ýmis jólalistaverk. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
kemur oft með hugmyndir að því
hvernig kortin eigi að vera. „Við
höfum oft málað kortin saman og
stundum teikna ég og hún málar
inn í. Henni finnst þetta mjög
gaman.“
Auk jólakortanna hefur Jens
teiknað jólasveina sem lista-
konan Lilja Rut setti á segla
og dagatöl. „Lilja Rut er með
Facebook-síðuna Prentsmiður.
Hún hefur keypt af mér teikn-
ingar af jólasveinunum en ég gerði
mína eigin útgáfu af jólasvein-
unum þrettán. Lilja Rut hefur gert
segla í nokkrum útgáfum, einn
langan með öllum jólasveinunum
og dagsetningum, einn stærri og
ferkantaðan líka með öllum jóla-
sveinunum á og svo líka minni
segla 13 í pakka þar sem er mynd af
einum jólasveini á hverjum segli.“
Jens segist mjög spenntur fyrir
jólunum en hann byrjaði að telja
niður dagana þegar 70 dagar voru
til jóla. „Ég er með töflu í vinnunni
þar sem ég tel niður. Ég set nýja
tölu á töfluna daglega og teikningu
undir. Ég byrja samt ekkert að
skreyta mjög snemma. En mér
finnst mjög gaman að vera með
niðurteljara fram að jólum.“
mjög fínan 0,1 mm penna
til að teikna útlínur. Ég nota
oftast ljósaborð þegar ég bý
til kortin, þá skissa ég fyrst á
venjulegan pappír og lýsi svo
í gegnum hann. Ég geri þetta
svo það séu engar skissulínur
ofan á vatnslitunum.“
Þar sem mikill tími fer í
hvert jólakort segir Jens að
aðeins fáir útvaldir fái send
heimagerð jólakort frá honum.
Fjögurra ára dóttir hans er mjög
áhugasöm um jólakortagerðina og
Jens teiknar oft jóladagatal þar sem
hann telur dagana fram að jólum.
Þessi einfalda og fljótgerða sveppasúpa er kjörin sem for-réttur með jólamatnum eða
til að hlýja sér aðeins á aðvent-
unni. Hægt er að skreyta hana með
smá steinselju til að gera hana jóla-
legri og eins má skipta rjómanum
út fyrir mjólk fyrir útgáfu sem er
léttari í maga.
RJÓMALÖGUÐ
SVEPPASÚPA
fyrir fjóra
50 g smjör
150 g sveppir í sneiðum
100 g portobello-sveppir skornir
2 skallottlaukar skornir
2 msk. hveiti
400 ml kjúklingasoð
125 ml rjómi
125 ml nýmjólk
Smakkið til með salti og pipar
Smá kanill eða múskat (má
sleppa)
Bræðið smjörið í stórum
potti við miðlungshita.
Steikið sveppina og
skallottlaukinn í um
það bil fimm mínutur
eða þangað til þeir mýkj-
ast. Bætið hveitinu við
og hrærið þar til það hefur
jafnast við smjörið.
Bætið smám saman
við kjúklingasoði og
hrærið vel á meðan.
Látið suðuna koma upp
og sjóðið í fimm mínútur
eða þangað til vökvinn
er orðinn þykkur. Hrærið í af og
til á meðan. Bætið rjómanum út í
pottinn, kryddið með salti og pipar
eftir smekk og örlitu af kanil eða
múskati ef vill. Hrærið í meðan
súpan hitnar en látið hana ekki
sjóða.
Rjómalöguð og sérlega ljúffeng
sveppasúpa á jólaborðið
Einföld og góð sveppasúpa. NORDICPHOTOS/GETTY
Hallveigarstíg 10a, • 101 Reykjavík • s. 551 2112
Glæsilegt úrval
af leðurtöskum í öllum
stærðum og gerðum
Fallegir leðurhanskar og lúffur
Kr. 27.500Kr. 14.900
Kr. 8.900
Kr. 9.900
Kr. 9.500 Kr. 6.500
Bumbag, margar gerðir
verð frá kr. 6.900-14.900
Tilvalið í
jólapakkann!
www.ungfruingoda.is
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 938