Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 61

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 61
Í útlöndum um jólin Helena er fædd og uppalin í Reykjavík en býr nú í Kópavogi með manni sínum og tveimur börnum. „Ég byrja snemma að setja upp ljós og „vetrarskraut“. Í byrjun desember er f lest komið á sinn stað, svona fyrir utan jólatréð sem fær að fara upp viku fyrir jól. Í ár ætlum við reyndar að vera í útlöndum yfir jólin í fyrsta sinn svo ég jólaði heimilið örlítið upp um miðjan nóvember til að ná aðeins að njóta fyrir brottför,“ segir Helena í jólaskapi. Hún segir galdurinn við vel heppnaðar smákökur vera að fara nákvæmlega eftir uppskriftinni ef maður er ekki þeim mun öruggari í bakstrinum og fylgjast með kök- unum í ofninum því hitastig ofna sé mismunandi. „Ef bakstur færir manni gleði og jólaskap er hann eiginlega ómiss- andi. Annars koma nú alveg jól án þess að baka smákökur og hægt að kaupa ótrúlega góðar tilbúnar kökur, og kökudeig út í búð,“ segir Helena sem nýtur þess að prófa nýjar uppskriftir. „Þessar þrjár sem ég bakaði eiga allar sameiginlegt að vera í miklu dálæti en hafrakökurnar með hvíta súkkulaðinu og apríkós- unum er líklega uppáhalds smá- kökusortin í augnablikinu,“ segir Helena og spurð hvað ekki megi vanta um jólin svarar hún: „Mér finnst alltaf eitthvað töfra við jóladagsmorgun. Þá er ómiss- andi að gera fallegan jólabröns, laga heitt súkkulaði með rjóma og njóta á náttfötunum.“ BAILEYS KOSSAR 150 g mjúkt smjör 200 g sykur 2 egg 2 tsk. vanilluextrakt 160 g hveiti 60 g kakó ½ tsk. salt ½ tsk. matarsódi 3 msk. Baileys líkjör (eða rjómi) Ofn hitaður í 160°C með blæstri, annars 180°C. Smjör og sykur þeytt mjög vel saman þar til ljóst og létt. Eggin fara út í og þeytt vel saman. Hveiti, kakó, salti og lyftidufti blandað saman og bætt út í ásamt Baileys eða rjóma og blandað saman í deig og kælt í ísskáp í 10-15 mínútur. Deig sett með tveimur teskeiðum á ofnplötu. Úr þessari uppskrift næ ég um það bil 60 kökum og miða við að setja 20 kökur á hverja ofnplötu. Bakið kökurnar í 7-9 mínútur. Takið út og kælið. Athugið að kökurnar eiga að vera mjúkar en ekki stökkar. Baileys smjörkrem 150 g mjúkt smjör 200 g flórsykur 80 ml Baileys (eða 80 ml rjómi og 1 msk. kakó) 1 tsk. vanilluextrakt Smjör þeytt mjög vel þar til ljóst og létt. Flórsykur fer út í og allt þeytt aftur mjög vel saman. Kremið á að vera létt og loftmikið. Hellið Baileys og vanillu saman við á meðan þeytt er, skafið vel hliðarnar og þeytið vel áfram. Sprautið kreminu á helminginn af kökunum og leggið köku ofan á til að mynda samloku. Kökurnar geymast vel í lokuðu íláti í ísskáp í nokkra daga en líka mjög vel í frysti. DÖKKAR SÚKKULAÐI- OG PIPARMYNTUSMÁKÖKUR 5 dl hveiti 1 tsk. lyftiduft ½ tsk. matarsódi ½ tsk. salt 120 g smjör, brætt 2,5 dl kakó (ég mæli með Konsúm kakóinu frá Nóa Siríus) 3 dl púðursykur 2 dl sykur 4 egg ¼ tsk. piparmyntudropar (má sleppa og nota í staðinn pipar- myntusúkkulaði) 200 g dökkt piparmyntusúkku- laði, t.d. Pipp Flórsykur (til að velta kökunum upp úr fyrir bakstur) Hrærið saman í skál, hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti og setjið til hliðar. Blandið saman kakói, púðursykri og sykri. Bræðið smjörið og hellið saman við sykur- blönduna, pískið vel saman. Bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Brjótið súkkulaðið út í deigið og hrærið aðeins. Setjið hveiti- blönduna saman við og blandið vel saman (ég kýs að hafa súkkulaði- bitana stóra í deiginu, má líka saxa þá fyrst gróft og setja svo út í. Ég læt hrærivélina um að brjóta þá saman við deigið, þá verða sumir stórir og aðrir minni). Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið í ísskáp í minnst eina klukkustund fyrir bakstur. Fínt að geyma það yfir nótt. Hitið ofn í 180°C. Takið deig með matskeið, rúllið í kúlu milli lófanna og veltið ríkulega upp úr f lórsykri. Athugið að deigið er frekar klístrað og best að meðhöndla það beint úr ísskáp. Leggið á bökunarpappírs- klædda plötu og bakið í 10 mínútur. Kökurnar eiga að vera svolítið seigar í miðjunni. Leyfið að kólna aðeins á plötunni áður en þið takið þær af. HAFRAKÖKUR MEÐ HVÍTU SÚKKULAÐI OG APRÍKÓSUM 150 g mjúkt smjör 150 g ljós púðursykur (eða 50/50 hvítur sykur og púðursykur) 1 tsk. vanilluextrakt 2 egg 175 g haframjöl 175 g hveiti ½ tsk. kanill ½ tsk. engifer 1 tsk. matarsódi 1 tsk. sjávarsalt í flögum. 250 g þurrkaðar apríkósur, saxaðar 250 g hvítt súkkulaði, saxað Þeytið saman smjör, sykur og vanillu þar til létt og ljóst. Bætið eggjum út í einu í einu og þeytið vel saman. Pískið saman þurrefnin og hellið út í deigið ásamt hvítu súkku- laði og apríkósum. Blandið öllu vel saman. Setjið deig með tveimur matskeiðum á bökunarplötu með góðu millibili og bakið þar til kökurnar eru fallega gylltar en enn dálítið mjúkar í miðjunni. Um það bil 12 mínútur miðað að kökurnar séu á við tvær matskeiðar að stærð, skemur ef kökurnar eru litlar. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Gyðingakökurnar hennar ömmu eru jólin fyrir mér og voru alltaf mínar albestu uppáhalds smákökur,“ segir Helena sem bakar þær stundum fyrir jólin. „Ég var svo lánsöm að fá að eiga uppskriftina sem amma notaði alltaf í rúmlega 70 ára gam- alli bók; Mat og drykk eftir Helgu Sigurðar. Bókin hangir aðallega saman á minningunni og gömlum matarslettum, alveg dásamlegt. Ég myndi líklega bjarga henni úr brennandi húsi, svona næst á eftir fjölskyldunni og kettinum,“ segir Helena og brosir út í annað yfir ilmandi deigi í hrærivélinni. „Ég baka ekki eftir neinni reglu heldur fer það eftir aðstæðum hverju sinni. Ég reyni að halda mig við að baka bara það sem ég veit að verður borðað dagana á eftir og er innilega á móti því að baka stóra skammta af ótal smákökusortum og geyma í boxum vikum saman. Best er að njóta á meðan kökurnar eru nýjar og baka svo bara aftur seinna,“ segir Helena sem starfar á menntavísindasviði Háskóla Íslands ásamt því að halda úti blogginu Eldhúsperlur Helenu. „Svo skrifa ég uppskriftir, elda, baka og tek myndir af öllu saman við hvert tækifæri sem gefst. Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að búa til mínar eigin uppskriftir og það er það sem ég geri hvað mest af,“ upplýsir Helena. Gyðingakökur ömmu eru jólin Helena Gunnarsdóttir man ekki eftir sér öðruvísi en með puttana í bakstri og eldamennsku hjá mömmu sinni og ömmu. Það er hennar helsta áhugamál enn og ferst henni það vel úr hendi eins og sjá má á þremur ómótstæðilegum smákökusortum. Helena segir bakstur ómissandi á aðventunni. Hún er komin í jólaskap og byrjar snemma að skreyta heimilið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONFrábærar jólasmákökur sem vert er að prófa. Unaðslegir Baileys kossar Helenu. Vandaðir krossar á leiði Íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar Leiðiskrossar 12 volt, 24 volt og 32 volt. Vönduð íslensk framleiðsla. Skemmuvegi 34 - 200 Kóp. Símar: 554 0661 - 699 2502 - 897 4996 JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 940
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.