Fréttablaðið - 26.11.2019, Qupperneq 61
Í útlöndum um jólin
Helena er fædd og uppalin í
Reykjavík en býr nú í Kópavogi
með manni sínum og tveimur
börnum.
„Ég byrja snemma að setja upp
ljós og „vetrarskraut“. Í byrjun
desember er f lest komið á sinn
stað, svona fyrir utan jólatréð
sem fær að fara upp viku fyrir jól.
Í ár ætlum við reyndar að vera í
útlöndum yfir jólin í fyrsta sinn
svo ég jólaði heimilið örlítið upp
um miðjan nóvember til að ná
aðeins að njóta fyrir brottför,“
segir Helena í jólaskapi.
Hún segir galdurinn við vel
heppnaðar smákökur vera að fara
nákvæmlega eftir uppskriftinni ef
maður er ekki þeim mun öruggari
í bakstrinum og fylgjast með kök-
unum í ofninum því hitastig ofna
sé mismunandi.
„Ef bakstur færir manni gleði og
jólaskap er hann eiginlega ómiss-
andi. Annars koma nú alveg jól án
þess að baka smákökur og hægt
að kaupa ótrúlega góðar tilbúnar
kökur, og kökudeig út í búð,“ segir
Helena sem nýtur þess að prófa
nýjar uppskriftir.
„Þessar þrjár sem ég bakaði eiga
allar sameiginlegt að vera í miklu
dálæti en hafrakökurnar með
hvíta súkkulaðinu og apríkós-
unum er líklega uppáhalds smá-
kökusortin í augnablikinu,“ segir
Helena og spurð hvað ekki megi
vanta um jólin svarar hún:
„Mér finnst alltaf eitthvað töfra
við jóladagsmorgun. Þá er ómiss-
andi að gera fallegan jólabröns,
laga heitt súkkulaði með rjóma og
njóta á náttfötunum.“
BAILEYS KOSSAR
150 g mjúkt smjör
200 g sykur
2 egg
2 tsk. vanilluextrakt
160 g hveiti
60 g kakó
½ tsk. salt
½ tsk. matarsódi
3 msk. Baileys líkjör (eða rjómi)
Ofn hitaður í 160°C með blæstri,
annars 180°C. Smjör og sykur
þeytt mjög vel saman þar til ljóst
og létt. Eggin fara út í og þeytt
vel saman. Hveiti, kakó, salti og
lyftidufti blandað saman og bætt
út í ásamt Baileys eða rjóma og
blandað saman í deig og kælt í
ísskáp í 10-15 mínútur. Deig sett
með tveimur teskeiðum á ofnplötu.
Úr þessari uppskrift næ ég um það
bil 60 kökum og miða við að setja
20 kökur á hverja ofnplötu. Bakið
kökurnar í 7-9 mínútur. Takið út og
kælið. Athugið að kökurnar eiga að
vera mjúkar en ekki stökkar.
Baileys smjörkrem
150 g mjúkt smjör
200 g flórsykur
80 ml Baileys (eða 80 ml rjómi og
1 msk. kakó)
1 tsk. vanilluextrakt
Smjör þeytt mjög vel þar til ljóst og
létt. Flórsykur fer út í og allt þeytt
aftur mjög vel saman. Kremið á að
vera létt og loftmikið. Hellið Baileys
og vanillu saman við á meðan þeytt
er, skafið vel hliðarnar og þeytið
vel áfram. Sprautið kreminu á
helminginn af kökunum og leggið
köku ofan á til að mynda samloku.
Kökurnar geymast vel í lokuðu íláti
í ísskáp í nokkra daga en líka mjög
vel í frysti.
DÖKKAR SÚKKULAÐI- OG
PIPARMYNTUSMÁKÖKUR
5 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
½ tsk. salt
120 g smjör, brætt
2,5 dl kakó (ég mæli með
Konsúm kakóinu frá Nóa Siríus)
3 dl púðursykur
2 dl sykur
4 egg
¼ tsk. piparmyntudropar (má
sleppa og nota í staðinn pipar-
myntusúkkulaði)
200 g dökkt piparmyntusúkku-
laði, t.d. Pipp
Flórsykur (til að velta kökunum
upp úr fyrir bakstur)
Hrærið saman í skál, hveiti,
lyftidufti, matarsóda og salti og
setjið til hliðar. Blandið saman
kakói, púðursykri og sykri. Bræðið
smjörið og hellið saman við sykur-
blönduna, pískið vel saman. Bætið
eggjunum út í einu í einu og hrærið
vel á milli.
Brjótið súkkulaðið út í deigið
og hrærið aðeins. Setjið hveiti-
blönduna saman við og blandið vel
saman (ég kýs að hafa súkkulaði-
bitana stóra í deiginu, má líka saxa
þá fyrst gróft og setja svo út í. Ég læt
hrærivélina um að brjóta þá saman
við deigið, þá verða sumir stórir og
aðrir minni). Setjið plastfilmu yfir
skálina og geymið í ísskáp í minnst
eina klukkustund fyrir bakstur.
Fínt að geyma það yfir nótt.
Hitið ofn í 180°C. Takið deig með
matskeið, rúllið í kúlu milli lófanna
og veltið ríkulega upp úr f lórsykri.
Athugið að deigið er frekar klístrað
og best að meðhöndla það beint úr
ísskáp. Leggið á bökunarpappírs-
klædda plötu og bakið í 10 mínútur.
Kökurnar eiga að vera svolítið
seigar í miðjunni. Leyfið að kólna
aðeins á plötunni áður en þið takið
þær af.
HAFRAKÖKUR MEÐ
HVÍTU SÚKKULAÐI OG
APRÍKÓSUM
150 g mjúkt smjör
150 g ljós púðursykur (eða 50/50
hvítur sykur og púðursykur)
1 tsk. vanilluextrakt
2 egg
175 g haframjöl
175 g hveiti
½ tsk. kanill
½ tsk. engifer
1 tsk. matarsódi
1 tsk. sjávarsalt í flögum.
250 g þurrkaðar apríkósur,
saxaðar
250 g hvítt súkkulaði, saxað
Þeytið saman smjör, sykur og
vanillu þar til létt og ljóst. Bætið
eggjum út í einu í einu og þeytið vel
saman. Pískið saman þurrefnin og
hellið út í deigið ásamt hvítu súkku-
laði og apríkósum. Blandið öllu
vel saman. Setjið deig með tveimur
matskeiðum á bökunarplötu
með góðu millibili og bakið þar til
kökurnar eru fallega gylltar en enn
dálítið mjúkar í miðjunni. Um það
bil 12 mínútur miðað að kökurnar
séu á við tvær matskeiðar að stærð,
skemur ef kökurnar eru litlar.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Gyðingakökurnar hennar ömmu eru jólin fyrir mér og voru alltaf mínar albestu
uppáhalds smákökur,“ segir
Helena sem bakar þær stundum
fyrir jólin. „Ég var svo lánsöm að
fá að eiga uppskriftina sem amma
notaði alltaf í rúmlega 70 ára gam-
alli bók; Mat og drykk eftir Helgu
Sigurðar. Bókin hangir aðallega
saman á minningunni og gömlum
matarslettum, alveg dásamlegt.
Ég myndi líklega bjarga henni úr
brennandi húsi, svona næst á eftir
fjölskyldunni og kettinum,“ segir
Helena og brosir út í annað yfir
ilmandi deigi í hrærivélinni.
„Ég baka ekki eftir neinni reglu
heldur fer það eftir aðstæðum
hverju sinni. Ég reyni að halda mig
við að baka bara það sem ég veit að
verður borðað dagana á eftir og er
innilega á móti því að baka stóra
skammta af ótal smákökusortum
og geyma í boxum vikum saman.
Best er að njóta á meðan kökurnar
eru nýjar og baka svo bara aftur
seinna,“ segir Helena sem starfar
á menntavísindasviði Háskóla
Íslands ásamt því að halda úti
blogginu Eldhúsperlur Helenu.
„Svo skrifa ég uppskriftir, elda,
baka og tek myndir af öllu saman
við hvert tækifæri sem gefst. Eitt
það skemmtilegasta sem ég geri er
að búa til mínar eigin uppskriftir
og það er það sem ég geri hvað
mest af,“ upplýsir Helena.
Gyðingakökur ömmu eru jólin
Helena Gunnarsdóttir man ekki eftir sér öðruvísi en með puttana í bakstri og eldamennsku hjá mömmu sinni og ömmu. Það er
hennar helsta áhugamál enn og ferst henni það vel úr hendi eins og sjá má á þremur ómótstæðilegum smákökusortum.
Helena segir bakstur ómissandi á aðventunni. Hún er komin í jólaskap og byrjar snemma að skreyta heimilið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONFrábærar jólasmákökur sem vert er að prófa.
Unaðslegir Baileys kossar Helenu.
Vandaðir
krossar á leiði
Íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
Leiðiskrossar 12 volt,
24 volt og 32 volt.
Vönduð íslensk framleiðsla.
Skemmuvegi 34 - 200 Kóp.
Símar: 554 0661 - 699 2502 - 897 4996
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 940