Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 63

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 63
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Ég hef alltaf verið heilluð af jólasveinum og finnst þeir kátir og skemmtilegir karlar,“ segir Birna sem hefur á undan- förnum árum sankað að sér jóla- sveinum frá öllum heimshornum. „Hér á Ólafsfirði býr líka Egill Sigvaldason sem er mun stór- tækari jólasveinasafnari en ég og smitaði mig af jólasveinasöfnunar- áráttunni. Sá fyrsti sem ég keypti var ekki hár í loftinu en smám saman stækkaði sveinki og nú eru sumir sveinanna nánast mann- hæðarháir,“ segir Birna sem sækir f lesta sína jólasveina til Noregs þar sem dóttir hennar, Sigríður Þóra, býr og er vakin og sofin yfir nýjum jólasveinum fyrir móður sína. „Dóttir mín er dugleg að senda mér myndir þegar hún fer á f lakk og þá tryllist ég alveg hér heima og bið hana að taka jólasveinana frá. Þegar maður á orðið jafn stórt safn og raun ber vitni er orðið erfitt að finna nýjar útgáfur hér heima. Ég hef farið landshorna á milli í leit að nýjum jólasveinum en sé oftast þá sömu og er því farin að leita út fyrir landsteinana,“ segir Birna sem ætlar í jólasveinaleiðangur til Noregs fyrir þessi jól enda segir hún úrvalið ríkulegt hjá frændum okkar, Norðmönnum. „Í Noregi sjást reyndar engin ummerki um íslensku jólasvein- ana þrettán en úrvalið er enda- laust af Santa Claus og þessum hefðbundna ameríska. Ég er því hvergi hætt að safna og ætla að sækja eina fimm til tíu þegar ég fer utan fyrir jól enda hef ég nóg pláss enn,“ segir Birna og skellir upp úr. Maðurinn er ekkert skárri Dásamlegir sveinkar og jólakerl- ingar fylla híbýli Birnu þar sem hún býr með eiginmanni sínum, Hilmari Kristjánssyni og syni þeirra, Hákoni. „Hann Hilmar minn er ekkert betri en ég og verri ef eitthvað er,“ segir Birna og hlær dátt. „Hann er villtur og trylltur í jólasveinaleit í öllum búðum og sonurinn er að verða svolítið heillaður af þessu líka, nú í Belgíu með augun opin fyrir nýjum jólasveinum,“ segir Birna sem hefur ekki nákvæma tölu á jólasveinaflokknum heima. „Þegar allt er talið eru jólasvein- arnir á milli 500 og 600 talsins og enginn er eins. Ég stilli þeim öllum upp fyrir 1. nóvember því ég vil fá að njóta þeirra lengi ár hvert og dunda mér við þetta fram að jólum. Svo tek ég allt niður á þret- tándanum þegar jólin eru búin,“ upplýsir Birna sem er ekki nema einn til tvo daga að setja allan jóla- sveinaskarann á sinn stað. „Víst hafa sumir jólasveinanna verið fokdýrir en ég er þó ekkert að verða gjaldþrota af öllum kaupun- um. Ég á svo afmæli um hásumarið og fæ mjög oft jólasveina í afmælis- gjöf því margir hugsa til mín og koma færandi hendi,“ segir Birna sæl á meðal hundraða jólasveina. Allir fá súkkulaði og kleinur Á Ólafsfirði kannast margir við jólasveinasafn Birnu þótt ekki sé það opinbert safn. „Ég prófaði eitt sinn að vera með opið hús á jóladegi hér í bænum en húsið er ekki stórt og varla við komandi að taka á móti mörgum í einu. Hins vegar eru allir velkomn- ir að koma þegar þeir vilja og alltaf nokkrir sem koma með börnin sín að skoða jólasveinasafnið fyrir hver jól. Ég hef bara gaman af því og ég hef fyrir sið að gefa öllum heitt súkkulaði og kleinur,“ segir Birna sem er mikið til hætt að baka smákökur til heimilisins enda vinnur hún í bakaríinu á Siglufirði. „Mínir uppáhalds jólasveinar í safninu eru jólasveinahjón sem ég keypti í Danmörku um árið og rogaðist með heim á öxlunum í svörtum plastpoka. Ég er orðin fræg fyrir það í tollinum að bera stóra jólasveina á bakinu og þeir hlæja bara að mér þar,“ segir Birna kát í prúðri jólasveinafjöld. „Við hjónin erum mikil jólabörn og getum yfirleitt ekki beðið eftir að byrja að skreyta og setja upp jólaljósin í nóvember. Það er ekki enn komið að því að við þurfum að skáskjótast á milli jólasveina heima; ég á enn til aukaherbergi fyrir f leiri sveina og get bætt við í eldhúsinu. Svefnherbergið er líka jólasveinalaust en ég fer sennilega næst í það að troða þeim upp í rúm,“ segir hún og skellihlær. Skreytir húsið með 600 jólasveinum  Birna Óskarsdóttir er fædd á Akureyri en hefur búið á Ólafsfirði í 30 ár. Hvað er annað hægt en að kætast meðal svo sætra sveina? Fylgd jólasveinanna upp stigann hjá Birnu er hátíðleg. Stofan fagurlega skreytt jólasveinum í öllum stærðum. Nöfn íslensku sveinanna eru flestum hjartfólgin. MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON Jólasveinaveisla í fallega skreyttum stofuglugganum. Heima hjá Birnu Óskars ­ dóttur á Ólafs firði hafa hátt í 600 jólasveinar komið sér huggulega fyrir og aðrir þrettán munu líkast til bætast við fyrir jól. FRUMSÝND 26. DESEMBER JÓLAMYNDIN Í ÁR JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 942
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.