Fréttablaðið - 26.11.2019, Qupperneq 63
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Ég hef alltaf verið heilluð af jólasveinum og finnst þeir kátir og skemmtilegir karlar,“
segir Birna sem hefur á undan-
förnum árum sankað að sér jóla-
sveinum frá öllum heimshornum.
„Hér á Ólafsfirði býr líka Egill
Sigvaldason sem er mun stór-
tækari jólasveinasafnari en ég og
smitaði mig af jólasveinasöfnunar-
áráttunni. Sá fyrsti sem ég keypti
var ekki hár í loftinu en smám
saman stækkaði sveinki og nú eru
sumir sveinanna nánast mann-
hæðarháir,“ segir Birna sem sækir
f lesta sína jólasveina til Noregs þar
sem dóttir hennar, Sigríður Þóra,
býr og er vakin og sofin yfir nýjum
jólasveinum fyrir móður sína.
„Dóttir mín er dugleg að senda
mér myndir þegar hún fer á f lakk
og þá tryllist ég alveg hér heima og
bið hana að taka jólasveinana frá.
Þegar maður á orðið jafn stórt safn
og raun ber vitni er orðið erfitt að
finna nýjar útgáfur hér heima. Ég
hef farið landshorna á milli í leit
að nýjum jólasveinum en sé oftast
þá sömu og er því farin að leita út
fyrir landsteinana,“ segir Birna
sem ætlar í jólasveinaleiðangur til
Noregs fyrir þessi jól enda segir
hún úrvalið ríkulegt hjá frændum
okkar, Norðmönnum.
„Í Noregi sjást reyndar engin
ummerki um íslensku jólasvein-
ana þrettán en úrvalið er enda-
laust af Santa Claus og þessum
hefðbundna ameríska. Ég er því
hvergi hætt að safna og ætla að
sækja eina fimm til tíu þegar ég fer
utan fyrir jól enda hef ég nóg pláss
enn,“ segir Birna og skellir upp úr.
Maðurinn er ekkert skárri
Dásamlegir sveinkar og jólakerl-
ingar fylla híbýli Birnu þar sem
hún býr með eiginmanni sínum,
Hilmari Kristjánssyni og syni
þeirra, Hákoni.
„Hann Hilmar minn er ekkert
betri en ég og verri ef eitthvað er,“
segir Birna og hlær dátt. „Hann er
villtur og trylltur í jólasveinaleit
í öllum búðum og sonurinn er að
verða svolítið heillaður af þessu
líka, nú í Belgíu með augun opin
fyrir nýjum jólasveinum,“ segir
Birna sem hefur ekki nákvæma
tölu á jólasveinaflokknum heima.
„Þegar allt er talið eru jólasvein-
arnir á milli 500 og 600 talsins og
enginn er eins. Ég stilli þeim öllum
upp fyrir 1. nóvember því ég vil
fá að njóta þeirra lengi ár hvert
og dunda mér við þetta fram að
jólum. Svo tek ég allt niður á þret-
tándanum þegar jólin eru búin,“
upplýsir Birna sem er ekki nema
einn til tvo daga að setja allan jóla-
sveinaskarann á sinn stað.
„Víst hafa sumir jólasveinanna
verið fokdýrir en ég er þó ekkert að
verða gjaldþrota af öllum kaupun-
um. Ég á svo afmæli um hásumarið
og fæ mjög oft jólasveina í afmælis-
gjöf því margir hugsa til mín og
koma færandi hendi,“ segir Birna
sæl á meðal hundraða jólasveina.
Allir fá súkkulaði og kleinur
Á Ólafsfirði kannast margir við
jólasveinasafn Birnu þótt ekki sé
það opinbert safn.
„Ég prófaði eitt sinn að vera með
opið hús á jóladegi hér í bænum
en húsið er ekki stórt og varla við
komandi að taka á móti mörgum í
einu. Hins vegar eru allir velkomn-
ir að koma þegar þeir vilja og alltaf
nokkrir sem koma með börnin
sín að skoða jólasveinasafnið fyrir
hver jól. Ég hef bara gaman af því
og ég hef fyrir sið að gefa öllum
heitt súkkulaði og kleinur,“ segir
Birna sem er mikið til hætt að baka
smákökur til heimilisins enda
vinnur hún í bakaríinu á Siglufirði.
„Mínir uppáhalds jólasveinar
í safninu eru jólasveinahjón sem
ég keypti í Danmörku um árið og
rogaðist með heim á öxlunum í
svörtum plastpoka. Ég er orðin
fræg fyrir það í tollinum að bera
stóra jólasveina á bakinu og þeir
hlæja bara að mér þar,“ segir Birna
kát í prúðri jólasveinafjöld.
„Við hjónin erum mikil jólabörn
og getum yfirleitt ekki beðið eftir
að byrja að skreyta og setja upp
jólaljósin í nóvember. Það er ekki
enn komið að því að við þurfum
að skáskjótast á milli jólasveina
heima; ég á enn til aukaherbergi
fyrir f leiri sveina og get bætt við í
eldhúsinu. Svefnherbergið er líka
jólasveinalaust en ég fer sennilega
næst í það að troða þeim upp í
rúm,“ segir hún og skellihlær.
Skreytir húsið með
600 jólasveinum
Birna Óskarsdóttir er fædd á Akureyri en hefur búið á Ólafsfirði í 30 ár.
Hvað er annað hægt en að kætast meðal svo sætra sveina?
Fylgd jólasveinanna upp stigann hjá Birnu er hátíðleg.
Stofan fagurlega skreytt jólasveinum í öllum stærðum.
Nöfn íslensku sveinanna eru flestum hjartfólgin. MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON
Jólasveinaveisla í fallega skreyttum stofuglugganum.
Heima hjá Birnu Óskars
dóttur á Ólafs firði hafa
hátt í 600 jólasveinar
komið sér huggulega
fyrir og aðrir þrettán
munu líkast til bætast
við fyrir jól.
FRUMSÝND 26. DESEMBER
JÓLAMYNDIN Í ÁR
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 942