Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 65
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Hvaðan kemur þetta jólalega gælu-
nafn?
Mig minnir að nafnið „Diljól“
hafi orðið til fyrir 10 árum þegar
ég hélt mjög stórt jólapartí heima
hjá mér og fékk Helgu Möller til að
koma og syngja okkur öll í
hátíðarskap.
Hvenær byrjar þú að
undirbúa jólin og hvað felst
helst í þeim undirbúningi?
Ég byrja að stilla yfir í jóla-
gír á fyrsta í „preventu“ sem
er fyrsti sunnudagur í nóv-
ember. Nóvember reyndist
mér stundum erfiður hérna
áður fyrr. Skammdegið dregur úr
manni orku, drifkraft og almenna
gleði. Það hefur hins vegar lagast
mikið með því að setja upp pre-
ventuskrautið snemma. Það skraut
samanstendur af jólastjörnu,
ljósaseríum og jólatréslampa og svo
spila ég nokkur jólalög á dag. Svo
held ég líka alltaf eitt árlegt jólaboð
í nóvember. Við borðum saman
graflax og piparkökur og spilum
borðspil.
Hvað gerir þú vanalega á
aðventunni?
Ég er með margar fastar hefðir á
aðventunni og þeim fer fjölgandi.
Það er auðvitað öl og smØrre á Jóm-
frúnni með góðum vinum. Síðan
reyni ég alltaf að fara á jólatónleika.
Lengi vel voru það Jólagestir Bó en
síðastliðin ár hef ég yljað jólahjart-
anu á Siggu og Sigga. Í ár ætla
ég að sjá Prins Jóló í Gamla
bíói og fara á jólatónleika
Schola Cantorum í Hallgríms-
kirkju. Ég held litlu-jól fyrir
alla saumaklúbbana mína
og set því jólatréð upp
snemma svo allir klúbb-
arnir geti notið góðs af. Svo
verð ég að minnast á hvað
Reykjavík er orðin ofboðslega
falleg jólaborg. Ég nýt þess að
skoða skreytingar sem lýsa upp
skammdegið. Loks er gaman að
fara á skautasvellið á Ingólfs-
torgi, sjá kveikt á jólatrénu á
Austurvelli og leita uppi jóla-
vættir víðs vegar um borgina.
Ertu með fastar jólahefðir?
Eins og ég held fast í aðventu-
hefðirnar þá er mér alveg sama um
jólin sjálf, þannig séð. Nema
mér finnst ómissandi
að skríða upp í rúm
á jólanótt með nýja
bók. Svo fórum við
í miðnæturmessu
í fyrra – og það var
svo hátíðlegt að ég vil
helst gera það að einu
sönnu jólahefðinni.
Bakar þú fyrir jólin eða gerir
jólasælgæti?
Ég fer alltaf í konfektgerð
hjá mömmu á aðventunni.
Við gerum svakalega fallegt
konfekt sem við gefum svo vel-
völdum nautnaseggjum í jólagjöf.
Hver er fyrsta jólaminningin þín?
Ég man eftir að hafa fengið
skíðasett í jólagjöf frá ömmu og
afa jólin sem ég var 5 ára. Ég var
afar óþolinmótt barn og krafðist
þess að fá að fara út á hól rétt
hjá heimilinu og prófa skíðin.
Ég man eftir að hafa staðið efst
á hólnum, hágrátandi því ég
skildi ekkert í því að ég gæti ekki
bara skíðað niður eins og fólkið
sem ég hafði séð í sjónvarpinu á
Vetrarólympíu leikunum.
Hvernig er Þorláksmessan hjá
þér?
Þorláksmessukvöld er hátíð út
af fyrir sig – segir í laginu. Ég er
sammála því.
Við fjölskyldan förum alltaf í
skötu á veitingastaðnum Höfn-
inni. Svo förum við æskuvinkon-
urnar alltaf saman á Laugaveginn,
kíkjum í Kormák & Skjöld og
fáum okkur púrtvínsglas og
hittum aðra Þorláksmessujóla-
sveina.
Hvað er í jólamatinn hjá þér?
Síðustu 12 ár eða svo höfum við
verið með plómuönd á aðfanga-
dagskvöld en í ár ætlum við að
prófa eitthvað nýtt. Það verður
kalkúnn með rjómasveppa-
sósu, graskersmús, rósakáli og
heimagerðu rauðkáli. Ég er á ketó
mataræðinu og því verður gaman
að gera máltíðina ketóvæna og
búa svo til heimagerðan súkku-
laðirjómaís í eftirrétt.
Hvað er uppáhalds jólalagið
þitt?
Það er alltaf nýtt uppáhalds
jólalag fyrir hver jól. Þetta eru alls
konar lög og ástæð-
urnar fyrir ástfóstr-
inu eru ólíkar. Fyrir
þessi jólin er það
lagið „Snjókorn falla“
með Ladda. Það er bara
eitthvað svo magnað
við það þegar Laddi
syngur línuna: „Fagna sigri
ljóssins!“ af innlifun. Því er það
ekki nákvæmlega þetta sem jólin
snúast um? Það finnst mér.
Aðventan er
til að njóta
Diljá Ámundadóttir Zoëga er svo mikið jólabarn
að vinir hennar kalla hana stundum Diljól. Hún er
varaborgarfulltrúi Viðreisnar en tekur sér tíma til
að njóta þess að undirbúa jólin strax í nóvember.
Diljá er með fastar hefðir á aðventunni.
„Það er eitthvað svo magnað við það þegar Laddi syngur línuna: „Fagna
sigri ljóssins!“ af innlifun. Því er það ekki nákvæmlega þetta sem jólin
snúast um?“ segir Diljá. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
HILDURYEOMAN.COM
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 22B
SÍMI 519 8889
Jakke vegan
pels: 31.900 kr.
Jakke vegan
pels: 31.900 kr.
Lip gloss: 1.900 kr. Gjafasett: 4.500 kr.
Hildur Yeoman
palíettu bolur: 39.900 kr.
Sápusteinar: 3.500 kr.
Hildur Yeoman kjóll:
38.900 kr.
Hildur Yeoman kjóll:
54.900 kr.
Hildur Yeoman kjóll:
38.900 kr.
Hildur Yeoman
merino peysa: 31.900 kr.
Dagger lokkar:
10.900 kr.
Vanessa
Mooney skart
Rósa lokkar:
11.900 kr.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 944