Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 65

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 65
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Hvaðan kemur þetta jólalega gælu- nafn? Mig minnir að nafnið „Diljól“ hafi orðið til fyrir 10 árum þegar ég hélt mjög stórt jólapartí heima hjá mér og fékk Helgu Möller til að koma og syngja okkur öll í hátíðarskap. Hvenær byrjar þú að undirbúa jólin og hvað felst helst í þeim undirbúningi? Ég byrja að stilla yfir í jóla- gír á fyrsta í „preventu“ sem er fyrsti sunnudagur í nóv- ember. Nóvember reyndist mér stundum erfiður hérna áður fyrr. Skammdegið dregur úr manni orku, drifkraft og almenna gleði. Það hefur hins vegar lagast mikið með því að setja upp pre- ventuskrautið snemma. Það skraut samanstendur af jólastjörnu, ljósaseríum og jólatréslampa og svo spila ég nokkur jólalög á dag. Svo held ég líka alltaf eitt árlegt jólaboð í nóvember. Við borðum saman graflax og piparkökur og spilum borðspil. Hvað gerir þú vanalega á aðventunni? Ég er með margar fastar hefðir á aðventunni og þeim fer fjölgandi. Það er auðvitað öl og smØrre á Jóm- frúnni með góðum vinum. Síðan reyni ég alltaf að fara á jólatónleika. Lengi vel voru það Jólagestir Bó en síðastliðin ár hef ég yljað jólahjart- anu á Siggu og Sigga. Í ár ætla ég að sjá Prins Jóló í Gamla bíói og fara á jólatónleika Schola Cantorum í Hallgríms- kirkju. Ég held litlu-jól fyrir alla saumaklúbbana mína og set því jólatréð upp snemma svo allir klúbb- arnir geti notið góðs af. Svo verð ég að minnast á hvað Reykjavík er orðin ofboðslega falleg jólaborg. Ég nýt þess að skoða skreytingar sem lýsa upp skammdegið. Loks er gaman að fara á skautasvellið á Ingólfs- torgi, sjá kveikt á jólatrénu á Austurvelli og leita uppi jóla- vættir víðs vegar um borgina. Ertu með fastar jólahefðir? Eins og ég held fast í aðventu- hefðirnar þá er mér alveg sama um jólin sjálf, þannig séð. Nema mér finnst ómissandi að skríða upp í rúm á jólanótt með nýja bók. Svo fórum við í miðnæturmessu í fyrra – og það var svo hátíðlegt að ég vil helst gera það að einu sönnu jólahefðinni. Bakar þú fyrir jólin eða gerir jólasælgæti? Ég fer alltaf í konfektgerð hjá mömmu á aðventunni. Við gerum svakalega fallegt konfekt sem við gefum svo vel- völdum nautnaseggjum í jólagjöf. Hver er fyrsta jólaminningin þín? Ég man eftir að hafa fengið skíðasett í jólagjöf frá ömmu og afa jólin sem ég var 5 ára. Ég var afar óþolinmótt barn og krafðist þess að fá að fara út á hól rétt hjá heimilinu og prófa skíðin. Ég man eftir að hafa staðið efst á hólnum, hágrátandi því ég skildi ekkert í því að ég gæti ekki bara skíðað niður eins og fólkið sem ég hafði séð í sjónvarpinu á Vetrarólympíu leikunum. Hvernig er Þorláksmessan hjá þér? Þorláksmessukvöld er hátíð út af fyrir sig – segir í laginu. Ég er sammála því. Við fjölskyldan förum alltaf í skötu á veitingastaðnum Höfn- inni. Svo förum við æskuvinkon- urnar alltaf saman á Laugaveginn, kíkjum í Kormák & Skjöld og fáum okkur púrtvínsglas og hittum aðra Þorláksmessujóla- sveina. Hvað er í jólamatinn hjá þér? Síðustu 12 ár eða svo höfum við verið með plómuönd á aðfanga- dagskvöld en í ár ætlum við að prófa eitthvað nýtt. Það verður kalkúnn með rjómasveppa- sósu, graskersmús, rósakáli og heimagerðu rauðkáli. Ég er á ketó mataræðinu og því verður gaman að gera máltíðina ketóvæna og búa svo til heimagerðan súkku- laðirjómaís í eftirrétt. Hvað er uppáhalds jólalagið þitt? Það er alltaf nýtt uppáhalds jólalag fyrir hver jól. Þetta eru alls konar lög og ástæð- urnar fyrir ástfóstr- inu eru ólíkar. Fyrir þessi jólin er það lagið „Snjókorn falla“ með Ladda. Það er bara eitthvað svo magnað við það þegar Laddi syngur línuna: „Fagna sigri ljóssins!“ af innlifun. Því er það ekki nákvæmlega þetta sem jólin snúast um? Það finnst mér. Aðventan er til að njóta Diljá Ámundadóttir Zoëga er svo mikið jólabarn að vinir hennar kalla hana stundum Diljól. Hún er varaborgarfulltrúi Viðreisnar en tekur sér tíma til að njóta þess að undirbúa jólin strax í nóvember. Diljá er með fastar hefðir á aðventunni. „Það er eitthvað svo magnað við það þegar Laddi syngur línuna: „Fagna sigri ljóssins!“ af innlifun. Því er það ekki nákvæmlega þetta sem jólin snúast um?“ segir Diljá. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI HILDURYEOMAN.COM SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 22B SÍMI 519 8889 Jakke vegan pels: 31.900 kr. Jakke vegan pels: 31.900 kr. Lip gloss: 1.900 kr. Gjafasett: 4.500 kr. Hildur Yeoman palíettu bolur: 39.900 kr. Sápusteinar: 3.500 kr. Hildur Yeoman kjóll: 38.900 kr. Hildur Yeoman kjóll: 54.900 kr. Hildur Yeoman kjóll: 38.900 kr. Hildur Yeoman merino peysa: 31.900 kr. Dagger lokkar: 10.900 kr. Vanessa Mooney skart Rósa lokkar: 11.900 kr. JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 944
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.