Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 71
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Ég er alin upp inni í Eyjafirði, f lutti á Austurland fyrir um 30 árum, fyrst á Egilsstaði og
síðan á Reyðarfjörð árið 1995 og bý
þar enn,“ segir Ásdís. Hún býr nú
ein með kettinum sínum en er þó
rík af afkomendum. „Ég bý ein með
Mána, kisanum mínum, og er því
miður öryrki vegna veikinda. Ég er
fráskilin og á þrjú uppkomin börn
sem eru öll komin með sitt heimili
og börn. Tvö þeirra eiga heima hér
á Reyðarfirði og eitt í Kópavogi. Ég
á einnig sjö barnabörn á aldrinum
sex mánaða til níu ára.“
Ásdís segist ekki eiga neina eina
tiltekna eftirlætisminningu úr
barnæsku frá jólunum en minnist
þó ákveðinna hefða hvað mat og
bakstur varðar. „Ég man svo sem
ekki mikið frá barnæsku minni,
þegar ég var að alast upp voru
börn ekki mikið að atast með í
jólaundirbúningi. En svona eitt og
eitt kemur upp í hugann eins og að
það var alltaf hangikjöt og bauna-
jafningur á aðfangadagskvöld,
lambalæri á jóladag og svo var
jólatréð skreytt og einnig sett upp
jólaskraut á Þorláksmessu, aldrei
fyrr. Og auðvitað voru bakaðar 20
sortir af smákökum og nokkrar
tertur.“
Fagnar föndri og birtu
Ásdís unir sér vel á þessum tíma
árs og fagnar bæði föndrinu og
birtunni frá jólaljósunum.
„Mér finnst þetta bara vera
uppbrot á hversdagsleikanum og
það er aldrei of mikið af fallegum
munum og ljósum. Sérstaklega þar
sem ég bý og sólin hverfur í þrjá
mánuði og sést ekki aftur fyrr en
9. til 11. febrúar.“ Það gefi henni
mikið að vinna með höndunum
og sé jafnvel ígildi eins konar heil-
unar. „Jólaföndur, föndur og allt
handverk yfirhöfuð er fyrir mig
afslöppun og hálfgerð þerapía.“
Það sé þó ýmislegt sem mætti
betur fara hvað áherslur á verald-
leg gildi varðar. „Nú til dags finnst
mér allt of mikið kapphlaup, bæði
í gjöfum og einnig mikill metingur
fólks. Þú þarft ekki 50 þúsund
króna jólagjöf til dæmis. Mér
finnst jólin þurfa að vera meira
um samveru fólks og að gera vel
við sig í mat og drykk. Fallegustu
og dýrmætustu jólagjafirnar sem
ég fæ er til dæmis eitthvað sem
barnabörnin hafa gert sjálf og á ég
nokkurt safn af þeim gjöfum sem
ég geymi eins og gull væri.“
Frábærar viðtökur
Ásdís er önnum kafin við kransa-
gerð þessa dagana. „Þannig er að
fyrir tveimur árum ákvað ég að
biðja fólk að gefa mér jólaskraut
sem það væri hætt að nota og
voru undirtektirnar æðislegar,
þar kom fram að ég ætlaði að gera
skreytingar og selja til að styrkja
góðgerðarsamtök.“
Hún hafi þó ekki getað farið af
stað með verkefnið fyrr en í ár. „En
vegna breyttra heimilisaðstæðna
hafði ég ekki tök á að byrja á þessu
fyrr en fyrir þessi jól. Ég ákvað að
gera jólakransa með og án ljósa og
hafa undirtektirnar vægast sagt
verið frábærar. Nú er svo komið að
ég er nánast farin að taka á móti
sérpöntunum.“
Þá vill Ásdís koma því á fram-
færi að allur ágóði af verkefninu
rennur óskiptur til Pieta. „Ég vil
líka taka sérstaklega fram að allur
ágóði fer til viðkomandi hjálpar-
samtaka og ég tek ekkert fyrir
vinnuna mína,“ segir Ásdís. „Ég
valdi Pieta samtökin af því þetta
málefni stendur mér nær þar sem
ég er bæði þunglyndis- og kvíða-
sjúklingur og hef lent í mörgum
áföllum um ævina.“
Það sé í nógu að snúast um
þessar mundir en á næsta ári muni
hún hugsanlega færa út kvíarnar.
„Eins og ég segi hef ég meira en
nóg að gera en hver veit, kannski á
næsta ári geri ég meira úr þessu og
stofna kannski sölusíðu.“
Ásdís er þakklát þeim sem hafa
lagt henni lið. „Ég vil í koma á
framfæri þakklæti til allra sem
hafa styrkt þetta verkefni mitt,
án ykkar væri þetta ekki hægt.
Hárstofa Sigríðar á Reyðarfirði
svo og Ólafur Höskuldur Ólafsson
á Reyðarfirði eiga bestu þakkir
mínar skildar.“
Býr til og selur jólakransa til
styrktar Pieta samtökunum
Ásdís Jónsdóttir nýtur þess að föndra og segir þá iðju veita sér mikla hugarró. Fyrir tveimur árum fór hún af stað með verkefni
þar sem hún býr til jólakransa sem hún selur til styrktar Pieta samtökunum, en geðheilbrigðismál eru henni afar hugleikin.
Ásdís Jónsdóttir býr til jólakransa til styrktar góðum málstað. MYND/ÓLAFUR HÖSKULDUR ÓLAFSSON Ásdís býr til fallega jólakransa.
www.gjofsemgefur.is
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 133567
undir tré á Íslandi
GEFÐU
jólapakka
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda
fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun
eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima
og erlendis.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 950