Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 71

Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 71
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Ég er alin upp inni í Eyjafirði, f lutti á Austurland fyrir um 30 árum, fyrst á Egilsstaði og síðan á Reyðarfjörð árið 1995 og bý þar enn,“ segir Ásdís. Hún býr nú ein með kettinum sínum en er þó rík af afkomendum. „Ég bý ein með Mána, kisanum mínum, og er því miður öryrki vegna veikinda. Ég er fráskilin og á þrjú uppkomin börn sem eru öll komin með sitt heimili og börn. Tvö þeirra eiga heima hér á Reyðarfirði og eitt í Kópavogi. Ég á einnig sjö barnabörn á aldrinum sex mánaða til níu ára.“ Ásdís segist ekki eiga neina eina tiltekna eftirlætisminningu úr barnæsku frá jólunum en minnist þó ákveðinna hefða hvað mat og bakstur varðar. „Ég man svo sem ekki mikið frá barnæsku minni, þegar ég var að alast upp voru börn ekki mikið að atast með í jólaundirbúningi. En svona eitt og eitt kemur upp í hugann eins og að það var alltaf hangikjöt og bauna- jafningur á aðfangadagskvöld, lambalæri á jóladag og svo var jólatréð skreytt og einnig sett upp jólaskraut á Þorláksmessu, aldrei fyrr. Og auðvitað voru bakaðar 20 sortir af smákökum og nokkrar tertur.“ Fagnar föndri og birtu Ásdís unir sér vel á þessum tíma árs og fagnar bæði föndrinu og birtunni frá jólaljósunum. „Mér finnst þetta bara vera uppbrot á hversdagsleikanum og það er aldrei of mikið af fallegum munum og ljósum. Sérstaklega þar sem ég bý og sólin hverfur í þrjá mánuði og sést ekki aftur fyrr en 9. til 11. febrúar.“ Það gefi henni mikið að vinna með höndunum og sé jafnvel ígildi eins konar heil- unar. „Jólaföndur, föndur og allt handverk yfirhöfuð er fyrir mig afslöppun og hálfgerð þerapía.“ Það sé þó ýmislegt sem mætti betur fara hvað áherslur á verald- leg gildi varðar. „Nú til dags finnst mér allt of mikið kapphlaup, bæði í gjöfum og einnig mikill metingur fólks. Þú þarft ekki 50 þúsund króna jólagjöf til dæmis. Mér finnst jólin þurfa að vera meira um samveru fólks og að gera vel við sig í mat og drykk. Fallegustu og dýrmætustu jólagjafirnar sem ég fæ er til dæmis eitthvað sem barnabörnin hafa gert sjálf og á ég nokkurt safn af þeim gjöfum sem ég geymi eins og gull væri.“ Frábærar viðtökur Ásdís er önnum kafin við kransa- gerð þessa dagana. „Þannig er að fyrir tveimur árum ákvað ég að biðja fólk að gefa mér jólaskraut sem það væri hætt að nota og voru undirtektirnar æðislegar, þar kom fram að ég ætlaði að gera skreytingar og selja til að styrkja góðgerðarsamtök.“ Hún hafi þó ekki getað farið af stað með verkefnið fyrr en í ár. „En vegna breyttra heimilisaðstæðna hafði ég ekki tök á að byrja á þessu fyrr en fyrir þessi jól. Ég ákvað að gera jólakransa með og án ljósa og hafa undirtektirnar vægast sagt verið frábærar. Nú er svo komið að ég er nánast farin að taka á móti sérpöntunum.“ Þá vill Ásdís koma því á fram- færi að allur ágóði af verkefninu rennur óskiptur til Pieta. „Ég vil líka taka sérstaklega fram að allur ágóði fer til viðkomandi hjálpar- samtaka og ég tek ekkert fyrir vinnuna mína,“ segir Ásdís. „Ég valdi Pieta samtökin af því þetta málefni stendur mér nær þar sem ég er bæði þunglyndis- og kvíða- sjúklingur og hef lent í mörgum áföllum um ævina.“ Það sé í nógu að snúast um þessar mundir en á næsta ári muni hún hugsanlega færa út kvíarnar. „Eins og ég segi hef ég meira en nóg að gera en hver veit, kannski á næsta ári geri ég meira úr þessu og stofna kannski sölusíðu.“ Ásdís er þakklát þeim sem hafa lagt henni lið. „Ég vil í koma á framfæri þakklæti til allra sem hafa styrkt þetta verkefni mitt, án ykkar væri þetta ekki hægt. Hárstofa Sigríðar á Reyðarfirði svo og Ólafur Höskuldur Ólafsson á Reyðarfirði eiga bestu þakkir mínar skildar.“ Býr til og selur jólakransa til styrktar Pieta samtökunum Ásdís Jónsdóttir nýtur þess að föndra og segir þá iðju veita sér mikla hugarró. Fyrir tveimur árum fór hún af stað með verkefni þar sem hún býr til jólakransa sem hún selur til styrktar Pieta samtökunum, en geðheilbrigðismál eru henni afar hugleikin. Ásdís Jónsdóttir býr til jólakransa til styrktar góðum málstað. MYND/ÓLAFUR HÖSKULDUR ÓLAFSSON Ásdís býr til fallega jólakransa. www.gjofsemgefur.is PIPA R\TBW A • SÍA • 133567 undir tré á Íslandi GEFÐU jólapakka Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 950
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.