Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 77
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Arnar Eggert Thoroddsen er mikill áhugamaður um jólatónlist. Hann segir að
áhuginn hafi kviknað þegar hann
skrifaði um hana fyrir jólablað
Morgunblaðsins en að hann hafi
farið á f lug með tilkomu Spotify,
því þá fékk hann tækifæri til að
grúska í ýmsu nýju.
„Það opnaði f lóðgáttina fyrir
svona fimm árum,“ segir Arnar.
„Þarna var ég allt í einu með
aðgang að endalausri jólatónlist
og plötum og ég fór að pæla mig í
gegnum þetta og hlusta og hugsa
um þessa tónlist. Þetta vakti
mikinn áhuga hjá mér.
Fræðimanninum í mér finnst
ótrúlega merkilegt að það sé
hálfgerður undirgeiri af popp- og
rokktónlist sem er eingöngu í
spilun í einn mánuð á ári,“ segir
Arnar. „Þetta er svo furðulegt.
Maður er að hlusta á tónlist allan
ársins hring en manni dettur ekki
í hug að spila jólalög í maí. Þarna
er risastór undirgeiri í tónlist sem
er bundinn ákveðinni árstíð og
hátíð.“
Þess má þá geta að Arnar er með
doktorspróf í tónlistarfræðum frá
Edinborgarháskóla og starfar nú
sem aðjunkt við Háskóla Íslands
þar sem hann kennir félags- og
fjölmiðlafræði.
Í föstum skorðum
„Það er líka sérstök fagurfræði í
kringum jólatónlistina sem er oft í
mjög föstum skorðum, bæði hvað
varðar liti og skraut á umslögum,
hvað þá lögin sem flutt eru,“ segir
Arnar. „Ef maður ætlaði að fara að
gera jólaplötu til að græða á henni
hefði maður bara sirka 30 lög til
að velja úr til að gera klassíska
jólaplötu.
Kántrísöngvarar gera oft jóla-
plötur og Kacey Musgraves gaf út
frábæra jólaplötu fyrir þremur
árum sem heldur fast í þessa
klassísku stemningu, en skreyt-
ingarnar á plötunni voru í stíl við
plötur frá 5. eða 6. áratugnum,“
segir Arnar. „Þar eru tíu lög og
af þeim eru einhver sex sem eru
bara algjörlega klassísk jólalög.
Það verður alltaf að hafa þessi
klassísku amerísku jólalög sem
voru samin í kringum 1940 virðist
vera.“
Arnar segir margs konar
skýringar á því af hverju þessi
tilteknu lög njóta svo mikilla vin-
sælda. „Þetta voru oft nostalgísk
lög og lög eins og „I’ll be Home
for Christmas“, töluðu til fólks á
stríðsárunum þegar margir voru
fastir í skotgröfum,“ segir hann.
„Það lag byggir á bréfi hermanns
þar sem hann hugsar heim.
Sígild lög eru síðan ekki sígild
fyrir einhverja tilviljun. Þessi
þekktustu eru einfaldlega vel
samin og með eitthvað í sér sem
þolir endalausa spilun. Svo voru
Bandaríkjamenn með mikið
tangarhald á vestrænni dægur-
menningu rétt eftir stríð, eitthvað
sem hefur svo sem lítið minnkað,“
segir Arnar. „Þannig að þessi lög
eru mikið í gangi á jólunum og
mynda hluta af jólaumhverfinu
okkar, mætti segja. Þessir þættir
eru meðal þess sem tryggir lög-
unum þetta langlífi.“
Lítill tími til að grúska
Það eru skiptar skoðanir á því
hvenær er hæfilegt að byrja að
hlusta á jólatónlist. Arnar segist
ekki byrja fyrr en 15. nóvember.
„Mér finnst það samt of snemmt,
en ég sé alltaf eftir því að hafa ekki
byrjað fyrr þegar ég er byrjaður,“
segir hann. „Þetta er svo lítill gluggi,
því maður þarf að hætta 10. janúar,
annað er bara asnalegt. En ef maður
vill grúska í þessu og pæla og bera
saman þá er þetta lítill tími.“
Vill bæði íslenskt og erlent
Arnar segir að hann sé álíka hrif-
inn af íslenskum og erlendum jóla-
lögum. „Þessi klassísku íslensku
jólalög eru mjög skemmtileg og
koma manni í góðan fíling, en ég
vil líka þessi erlendu,“ segir hann.
„Og ég hef aldrei skilið almenni-
lega af hverju þessi tónlist fer
svona mikið í taugarnar á fólki.“
Uppáhaldsjólalagið hans er
erlent. „Ég á nokkur en verð að
nefna „Hark! the Herald Angels
Sing“ með Bob Dylan af plötunni
Christmas in the Heart frá 2009,
sem er stórkostleg,“ segir Arnar.
„Dylan þekkir arfleifðina í
amerískri þjóðlagatónlist vel og er
í raun að vinna með gömul þjóðlög
á plötunni. Margir halda að þetta
sé einhver hallærisleg tilraun til
að græða, en allur ágóðinn fór
til góðgerðarstarfsemi og það
er skemmtileg túlkun á þessari
plötu. Einlæg og ástríðufull og
söngur hans í þessu tiltekna lagi er
magnaður.
Sú plata og platan If on a Wint-
er’s Night með Sting, sem kom út
sama ár, eru tvær af uppáhaldsjóla-
plötunum mínum. Á plötunni nær
Sting að búa til ótrúlegt jóla- og
vetrarandrúmsloft og galdra fram
hálfgerða miðaldastemningu. Þú
ert bara kominn inn í arineldinn
þegar þú hlustar,“ segir Arnar
og hlær við. „Svo gaf sveitin Low
út jólaplötu árið 1999 sem heitir
bara Christmas. Það er galdur yfir
öllum þessum plötum.
Uppáhalds jólalagaflytjandinn
minn er Ella Fitzgerald, sem gaf
út plötuna Ella Wishes You a
Swinging Christmas árið 1960,“
segir Arnar. „Hún er alveg rosa-
legur söngvari, það er alveg með
ólíkindum hvernig hún gerir þetta
og maður hreinlega tekst á loft
þegar þessi plata fer af stað.
Það er ákveðin hefð að byrja
aðfangadag alltaf á því að spila
White Christmas með Bing
Crosby,“ segir Arnar. „Byrjunin á
því setur mann alltaf á einhvern
fáránlega skemmtilegan stað.
Ég læt líka plötuna Hátíð fer að
höndum ein með sveitinni Þrjú á
palli malla á aðfangadag, það er
mjög helg og góð stemning á þeirri
plötu.“
Jólatónlist getur vel
verið listræn
Arnar hefur grafið upp fleira gott
í grúski sínu. „Harry Connick Jr.
hefur gefið út þrjár jólaplötur sem
eru alveg klikkaðar,“ segir hann.
„Hann lítur út fyrir að vera algjör
tyggjókúlugaur en hann er djassari
frá New Orleans og allar útsetning-
arnar hans eru með smá „tvisti“ og
sumar með frekar myrkum anda.
Þetta er geiri sem er oft ekki
tekinn sérlega alvarlega sem list,“
segir Arnar. „Ef einhver er að gefa
út jólaplötu er það strax tengt við
markaðspælingar, eðlilega, svo
fólk gerir ekki ráð fyrir því að jóla-
tónlist sé listræn. En það er alveg
hægt. Sigurður Guðmundsson og
Memfismafían gáfu til dæmis út
frábæra jólaplötu fyrir 10 árum
sem heitir Nú stendur mikið til.
Gott dæmi um stöndugt lista-
Sjúkur í
jólatónlist
Arnar Eggert Thoroddsen hefur gaman af því að
grúska í tónlist og grafa upp gleymdar gersemar.
Hann elskar bæði íslenska og erlenda jólatónlist og
segir erfitt að hætta að hlusta á hana í janúar.
Arnar segir að tæpir tveir mánuðir sé ekki nægilega langur tími til að grúska og pæla í allri jólatónlistinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Uppáhalds
jólalag Arnars
er á plötunni
Christmas
in the Heart
með Bob
Dylan.
Arnar segir að
það sé ótrú-
legt jóla- og
vetrarand-
rúmsloft á
plötunni If
on a Winter’s
Night með
Sting.
Arnar lætur
plötuna Há-
tíð fer að
höndum ein
yfirleitt rúlla
á aðfangadag.
GLÆSIBÆR – ÁLFHEIMAR 74
5. HÆÐ - 104 REYKJAVÍK
Sjónlag er eina stofan á landinu sem býður upp á
alhliða þjónustu þegar kemur að sjónlagsaðgerðum
LINSUSKIPTI
Linsuskipti er algengasta aðgerðin til að laga
sjónlagsgalla hjá fólki sem er komið yfir fimmtugt.
Með linsuskiptum er hægt að fá:
einfókus-, fjölfókus- og sjónskekkjuaugasteina
ERTU MEÐ SKÝ Á AUGASTEINI
Hjá okkur er engin bið eftir nýjustu
linsunni á markaðnum.
s. 577 1001, sjonlag.is
eða á heilsuvera.is
PANTAÐU TÍMA
Í FORSKOÐUN
Það er ekki bara ein leið
til að losna við gleraugun
– þitt sjónlag ræður leiðinni
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 956