Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 79

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 79
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Sýningarnar kallast Dansandi ljóð, en Edda Þórarinsdóttir gerði handritið að henni eftir ljóðum Gerðar Kristnýjar, og Konur og krínólín þar sem Edda Björgvins fer á kostum ásamt níu öðrum leikkonum. „Við köllum þetta tískugjörning. Við lögðum höfuðið í bleyti og hugsuðum hvað væri gaman að gera í kringum búninga, en Helga Björnsson sem margir þekkja, hún var mjög fræg í París á sínum tíma, er hönnuður og ótrúlega mögnuð manneskja, hún er með okkur í þessum hóp,“ segir Edda. „Við vorum að skoða krínólín og líka áratugina frá þarsíðustu aldamótum og svo annan, þriðja, fjórða og fimmta áratuginn og svo framvegis. Við ákváðum að safna saman búningum og fengum nokkrar yndislegar konur með okkur í það sem hafa aðgang að búningasafni.“ Sýningin Konur og krínólín hefur einu sinni verið sýnd í Iðnó á 17. júní fyrir tveimur árum. „Við héldum að markhópurinn okkar væri aðallega miðaldra konur, en það er bara vitað að konur 40 ára og eldri, þær halda uppi listalífi í hinum vestræna heimi. Þær skipu- leggja oftast kaup á miðum, hvort sem það er tónlist, myndlist, leiklist eða bara hvað sem er,“ segir Edda. Fylltust grobbi Edda segir að það hafi því komið henni skemmtilega á óvart að ungir karlmenn á aldrinum 20-25 ára hafi verið í skýjunum yfir gjörningnum. „Allar vinkonur okkar elskuðu þetta, en þegar við fengum þessi góðu viðbrögð frá þessum aldurshópi og kyni þá fylltumst við þvílíku grobbi og ákváðum að einhvern tíma myndum við gera eitthvað við þessa sýningu.“ En þar sem konurnar í leik- hópnum eru allar mjög uppteknar og vinna leikhópsins öll unnin í sjálfboðaliðastarfi hafa þær ekki haft tök á að setja sýninguna upp aftur fyrr en núna. „Ari Þjóðleik- hússtjóri bauð okkur samstarf og við höfum verið í Þjóðleikhúsinu í vetur og fyrravetur. Við ætlum að halda upp á fimm ára afmæli leikhópsins með uppsetningu á þessum tveimur sýningum í Þjóð- leikhúskjallaranum,“ segir Edda. Í sýningunni Konur og krínólín er brjálæðisleg orka að sögn Eddu. „Það er ekki mikið tal í þessu en ég tengi atriðin svolítið saman með tali inn á milli þar sem ég þykist vera saumakona og hönnuður. Þetta er alveg ofboðslega skemmti- leg sýning, fólkið sem sá hana á sínum tíma trylltist alveg í stuði. Við viljum ekki kalla þetta leiksýn- ingu því þetta er ekki nema svona klukkutíma verk. Þetta er frekar gjörningur og stuðuppákoma.“ Upplifun í jólapakkann Hin sýningin, Dansandi ljóð, segir Edda að sé undurfalleg ljóðræn sýning. „Helga Björnsson kemur líka að þeirri sýningu en hún hefur töfrað fram undurfallegar umgjarðir og töfrandi búninga,“ segir Edda. „Fabúla gerir tónlistina og Edda Þórarins leikstýrir en hún leik- stýrir líka sýningunni Konur og krínólín með mér. Síðast vorum við ekki með neinn ákveðinn leik- stjóra en hún ætlar að vera augun úti í sal og saman erum við svona framkvæmdastjórar í að koma þessu á koppinn, við þurfum auð- vitað að breyta einhverju því þetta verður í Þjóðleikhúskjallaranum en ekki Iðnó að þessu sinni.“ Edda segir að konurnar í leik- hópnum vonist til þess að þegar fólk er að minnka neysluna og kaupa minna af hlutum og safna minna drasli að jólagjafirnar í ár verði upplifun eins og listviðburðir eða samvera og svo framvegis. „Og þá vonum við auðvitað að fólki vilji gefa þessa upplifun sem við erum að bjóða upp á. Þessar sýningar höfða til allra og ég myndi segja að miðar á þær séu jólagjöfin í ár. Á mamma þín ekki nóg af nátt- kjólum?“ segir Edda hlæjandi. Báðar sýningarnar eru sýndar fjórum sinnum, Dansandi ljóð í janúar og Konur og krínólín í febrúar. „Sýningarnar Konur og krínólín eru á mjög skemmtilegum tíma á laugardögum og sunnudög- um klukkan 16.00. Það er því alveg tilvalið að fá sér eftirmiðdagskaffi fyrir sýninguna og „happy hour“ á eftir. Það er hægt að gera mjög skemmtilegan dag úr þessu.“ Það er um að gera að bæta smá jólasælgæti með í pakkann með miðunum. Edda segir að þessi uppskrift sé í uppáhaldi með jóla- kaffinu. LÍFRÆNIR KÓKOS SÚKKULAÐIBITAR Kókosmassi 300 g Rapunzel kókosflögur 60 g Rapunzel hlynsíróp ½ tsk. Rapunzel sjávarsalt 90 g Rapunzel kókosrjómi (veiddur ofan af kókosmjólk úr dós) Súkkulaðihjúpur 120 g Rapunzel kakósmjör 120 g Rapunzel möndlusmjör 60 g Rapunzel kakóduft 60 g Rapunzel hlynsíróp ½ tsk. Rapunzel sjávarsalt 1 tsk. Rapunzel Bourbon vanilla Malið kókosflögur meðalgróft í matvinnsluvél, blandið saman við hin hráefnin og hnoðið saman með gaffli. Mótið deigið í mátuleg stykki með höndunum. Kókosstykkin eru síðan sett á bökunarpappír á disk í 10 mín. í frysti. Bræðið kakósmjör yfir vatnsbaði við 30-35 gráður. Þegar smjörið er bráðið er hinum hráefnunum bætt við og hrært vel saman. Takið kókosstykkin úr frystinum, dýfið í súkkulaði- hjúpinn og veiðið strax aftur upp úr með gaffli og leggið á kökugrind með bökunarpappír undir. Kókos- stykkin eru sett aftur í 5 mínútur í frysti á bökunarpappírnum. Fyrir þykkari súkkulaðihjúp má dýfa bit- unum aftur og frysta (uppskriftin nægir í tvær dýfingar). Eftir það eru kókosbitarnir tilbúnir og geymast best í ísskáp eða frysti. Gjörningur og stuðuppákoma Leikhópurinn Leikhúslistakonur 50+ fagnar bráðum fimm ára afmæli og verður af því tilefni með tvær sýningar í Þjóðleikshús- kjallaranum eftir áramótin. Edda Björgvins segir miða á sýningarnar fullkomna jólagjöf enda eigi mömmur nóg af náttkjólum. Edda Björgvins segir að upplifun sé besta jólagjöfin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Frá sýningu á Konur og krínólín í Iðnó. MYND/LAUFEY ELÍASDÓTTIR Þessir kókossúkkulaðibitar eru í uppáhaldi hjá Eddu. Rafmagnsgítar Rafmagnsbassi Klassískur gítar KassabassiKassagítar Gítarbanjó Fiðla 26.900 Rafmagnsfiðla 42.900 Heyrnartól Míkrafónar í úrvali Þráðlaus míkrafónn Gítarinn ehf Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • gitarinn.is Sömgkerfi UkuleleKajun tromma í úrvali Jólagjafir Gítarmagnari fyrir rafmagnsgítara 12.900 Magnari fyrir kassagítar og míkrafón 24.900 JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 958
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.