Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 105

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 105
hvort hann sé mikið jólabarn þá stendur ekki á svörum. „Ö, já, mjög! Ég þarf að hemja mig til að vera ekki vandræðalega snemma að setja upp seríur og annað. Ég byrja um miðjan nóvember. Ég held því samt við að skreyta ekki tréð fyrr en á seinustu stundu.“ Jólakortin Albert segir jólakortin eitt dæmi um það hvernig tímarnir hafi breyst. „Með samfélagsmiðlum hefur jólakortum í pósti fækkað. Ég sakna þeirra að vissu leyti, þau voru gulls ígildi, meðan líf fólks var ekki eins og opin bók á netinu. Nú fylgist fólk með allt árið á Facebook og margir eru á ferð og flugi, svo að það er kannski eðli- legt að jólakortin renni sitt skeið. Við erum reyndar farnir að senda jólakveðju í útvarpið. Samt hef ég á tilfinningunni að jólakort eigi eftir að blómstra á ný, þegar nostalgían kemur yfir okkur. Það er hlýlegra að lesa handskrifaðar jólaóskir en rafræn skilaboð.“ Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Líf mitt snýst að mestu leyti um mat og samskipti fólks,“ segir Albert en auk uppskrifta hefur hann tekið saman ýmsa pistla um borðsiði og kurteisi á síðunni sinni. Jólin samofin hefðum „Í hugum margra snúast jólin um hefðir, þar sem allt er í föstum skorðum, eins konar akkeri í rót- leysi hversdagsins. Í minni barn- æsku var þetta svo sterkt. Þegar þögnin var í útvarpinu, allt tilbúið, búið að leggja á borðið á meðan fólk hlustaði í andakt á þögnina til þess að heyra svo jólaklukkurnar klingja, búið að kveikja á kert- unum. Þá varð heilagt.“ Albert segir að þegar hann kynntist Bergþóri hafi jólahaldið tekið breytingum. „Til að byrja með fannst mér mjög skrýtið að hann var oftast að syngja klukkan sex á aðfangadag. Ég var bara heima að brúna kartöflur á meðan hann söng og þá var kannski ekki borðað fyrr en milli sjö og átta. Nú slaka ég bara á og kem með í kirkjuna.“ Breyttir tímar „Það er minna tilstand núna fyrir jólin en var. Þetta var öðruvísi þegar allt var bakað og eldað inni á heimilinum. Þá þurfti virkilega að þrífa allt einu sinni á ári og var kjörið að gera það fyrir jólin. En núna eru aðrir tímar. „Mamma er heima að skúra, baka og bóna, og bakar sand af fínu tertunum,“ segir í Jólin koma eftir Ómar Ragnars- son, en sú stemning hefur heldur betur breyst. Nú leggja margir áherslu á að njóta þess að vera til á aðventu, eða „hygge sig“, eins og danskurinn segir, fara á tónleika, hitta skemmtilegt fólk, borða góðan mat. Aðspurður hvort það sé eitthvað sem hann sakni sem er á undan- haldi, segist hann ekki muna eftir því í f ljótu bragði. „Nú eru ekki bakaðar margar tegundir eins og var og margir baka alls ekki neitt. Hins vegar er auðvelt að kaupa tilbúið deig í rúllum og skella í ofninn. Sjálfum finnst mér ómiss- andi að hafa bökunarilm í lofti, heyra jólakveðjurnar á Rás 1 á Þor- láksmessu og að fara í sparifötin á jólunum.“ Þegar Albert er spurður að því Hefðir veita öryggistilfinningu Albert Eiríksson þekkja margir Íslendingar en hann heldur úti einni vinsælustu matarbloggsíðu landsins, alberteldar.com. Albert og eiginmaður hans, Bergþór Pálsson, eru mikil jólabörn og segist Albert hreinlega þurfa að hemja sig í aðdraganda jólanna. Heimagert vanilluextrakt sem Albert og Bergþór gáfu ein jólin. Albert minnist jóla úr bernsku með mikilli hlýju. „Þetta var gert í ákveðinni röð heima í sveitinni, borðað klukkan sex, svo fóru mamma og pabbi í fjósið og við krakkarnir gengum frá á meðan. Þegar því var lokið voru jólakortin lesin og eftir það voru pakkarnir teknir upp. Manni fannst að lestr- inum ætlaði aldrei að ljúka og með hverri mínútu varð maður óþreyjufyllri að fá að taka upp pakkana. Það bárust alltaf svo mörg kort, svo þurfti að ræða hvert og eitt einasta kort.“ Jólaglaðningur og kveðskapur Undanfarin ár hafa þeir félagar skapað sér þá hefð að fara að morgni aðfangadags, ásamt föður Bergþórs, og kasta kveðju á vini og kunningja. „Þetta kemur svolítið í staðinn fyrir jólakort og við látum fylgja pínulítinn „jólaglaðning“. Oft er þetta eitthvað matarkyns, eða eitthvað sem eyðist. Glaðn- ingnum fylgir alltaf útskýring á innihaldinu og jólakveðja í bundnu máli frá Páli. Okkur er víðast hvar boðið inn og þá tekur maður þátt í undirbúningnum og eftirvæntingunni úti um borg og bý og þetta er óskaplega skemmti- legt. Fyrir tveimur árum gáfum við vanilluextrakt (sjá mynd) ásamt súkkulaði og af því tilefni orti Páll eftirfarandi vísu: Frá póli að pól um byggðir og ból berist með þessu blaði vonir um sól og vanillujól og sælkerasúkkulaði. Jólamaturinn óráðinn Albert segir óráðið hvað verði í matinn þessi jólin. „Það kæmi samt ekki á óvart ef það væri hægeldaður lambahryggur, við höfum oft haft hann og verið með hann í ofninum frá því um hádegi á mjög lágum hita. Í fyrra var önd og þar áður var hnetusteik. Tengdapabbi, Páll Bergþórsson, er oft hjá okkur á jólunum. Hann er nú bara 96 ára og er reyndar að velta fyrir sér að gerast græn- metisæta. Hann er svo mikill umhverfissinni. Það er reyndar mjög hátíðlegt að útbúa góða hnetusteik, Wellington-steik með portobello-sveppum í stað kjöts, eða annað. Eitt af því sem hefur breyst í gegnum árin er áherslan á hollustu,“ segir hann. Albert Eiríksson er mikill matgæðingur og jólabarn. EPLATERTA MEÐ SÖXUÐUM MÖNDLUM 6 - 8 græn epli 250 g smjör, við stofuhita ⅔ bollar sykur 2 egg 2 bollar hveiti 2 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 1 dl möndlur 1 tsk. kanill Af hýðið eplin, skerið þau í bita og sjóðið í vatni í 3 mín. Hellið á sigti. Þeytið vel saman smjöri og sykri, bætið við eggjum og loks þurrefnunum. Setjið helminginn af deiginu í form, jafnið því út, setjið soðnu eplin ofan á og loks restina af deiginu og dreifið yfir eplin. Saxið möndlurnar gróft og blandið kanil saman við. Dreifið yfir deigið. Bakið við 170° í 25-30 mín. ullarkistan.is Hlýlegar jólagjafir MERINO ULLARFATNAÐUR Í MIKLU ÚRVALI Skeifunni - Laugavegi - Glerártorgi JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 984
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.