Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 109

Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 109
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Leikarinn og grínistinn Vil-helm Neto bjó í Portúgal þar til hann var 14 ára gamall og eyddi jólunum yfirleitt þar sem barn. Hann segir að þó að hátíðin sé vitaskuld að mörgu leyti svipuð sé samt ýmiss konar munur á jóla- hátíðunum á Íslandi og í Portúgal. „Í dag reyni ég að fara á milli landanna einu sinni á ári, en það verður sífellt erfiðara að finna tíma eftir því sem maður verður eldri,“ segir Vilhelm. „Það kostar líka svo mikið að fara, því það er ekkert beint f lug frá Íslandi. Ég þarf yfirleitt að fljúga frá Dan- mörku. Það var einu sinni í tísku á Íslandi að fara í frí til Portúgal, en ekki lengur. Núna reyni ég að skipta jólunum á milli landanna, en í ár verð ég að vísu í Danmörku með kærustunni minni og fjölskyldunni hennar, sem leggst mjög vel í mig, því ég er mjög mikið fyrir danskan jóla- mat,“ segir Vilhelm. „Það verður líka gaman að prófa að upplifa jólastemninguna í nýju landi.“ Portúgalir eru kaþólskir „Jólin í Portúgal eru mjög kristileg og heilög, þar er miklu meiri áhersla á trúna,“ segir Vilhelm. „Maður sér það til dæmis þegar maður kveikir á sjónvarpinu, þar er næstum alltaf bein útsending eða upptaka af messu. Það er líka barnaefni og svona almennt jóla- efni sýnt, en maður tekur mikið eftir jólamessunum. Sjálfur reyni ég að fara á mið- næturmessu 24. desember sem kallast Misa de gallo og er haldin vegna þess að einhver hani söng á miðnætti til að kynna komu Messíasar,“ segir Vilhelm. „Við pabbi förum í hana, þó að við séum ekki sérlega trúaðir. Þetta er bara svo sterk hefð, þó að þetta sé skrítinn tími, Portúgalar eru svo rosalega kaþólskir. Það besta við jólin í Portúgal er jólamaturinn, en þá borða allir saltfisk. Það éta náttúrulega allir eins og brjálæðingar á jólunum en Portúgalar taka það alveg á nýtt stig, þeir éta svo óheyri- lega mikið. Það er bara hluti af stemningunni,“ segir Vilhelm. „Ég fíla saltfisk af því að í Portúgal eru þúsund mismunandi leiðir til að elda hann. Jólasaltfiskurinn er samt mjög einfaldur og hefðbund- inn réttur sem er frá tíma þar sem fólk var fátækara og átti að vera þakklátt fyrir að geta borðað salt- fisk. Mér finnst hann samt góður. Mér finnst það eiginlega svo- lítið skrítið hvað jólamaturinn er misjafn á Íslandi, fólk borðar alls konar hluti og ekki endilega það sama á hverju ári,“ útskýrir Vilhelm. Aðdáandi jólasveinanna „Í raun held ég að jólin séu svipuð um allan heim, þetta er fjöl- skylduhátíð og tími þar sem fjöl- skyldur hittast,“ segir Vilhelm. „Í Portúgal eru gjafirnar opnaðir á aðfangadagskvöld eins og á Íslandi, en ekki á jóladag, eins og sums staðar annars staðar. Það var að minnsta kosti þannig hjá mér og ég er nokkuð viss um að það hafi ekki verið einhver íslensk áhrif í minni fjölskyldu. Það sem mér fannst skrítnast við jólin á Íslandi þegar ég var ungur voru jólasveinarnir þret- tán,“ segir Vilhelm. „Það var erfitt að venjast þeim og mér finnst ég enn þá vera að læra eitthvað um þá, þeir eru svo margir. Í Portúgal er bara einn jóla- sveinn, sem kemur í bæinn með Coca-Cola lestinni,“ segir Vilhelm. „Hér eru líka Grýla, Leppalúði og jólakötturinn, sem eru mjög ólík því sem ég vandist í Portúgal. Þar er öll áherslan bara á Jesúbarnið og jólasveininn, sem er ósköp hégómlegur, þó að hann eigi að vera dýrlingurinn Sankti Nikulás. Maður lærir allt um dýr- lingana og hann er einn þeirra, en hann er mjög ameríkaniser- aður. Íslensku jólasveinarnir eru satt að segja bara skrítnir í saman- burði við allt!“ segir Vilhelm. „En mér þykir mjög vænt um þá alla og ég er mikill aðdáandi þeirra. Venjulegi jólasveinn- inn er fínn, en þessir þrettán íslensku jólasveinar eru bara svo miklu áhugaverðari, því þeir eru svo miklir prakkarar, á meðan hinn er bara góður. Það er líka miklu meiri stemning í kringum mömmu sem étur börn. Gluggagægir er samt orðinn mjög skrítinn nú til dags,“ segir Vilhelm. „Ég veit ekki hvenær hann var sniðugur og skil ekki alveg hvaðan sú hugmynd kom, það er allt mjög skrítið. Það er eins og einhver hafi verið að reyna að finna ástæðu til að haga sér furðulega. Svo finnst mér Kertasníkir vera hunsaður dálítið. Hann kemur svo seint að allir eru orðnir uppteknir við að halda upp á jólin. Hann fær ekki athyglina sem hann á skilið.“ Heimsókn til ókunnugra „Ég held að uppáhalds portú- galski jólasiðurinn minn sé að fara til nágrannanna, mér þykir vænt um það,“ segir Vilhelm. „Á aðfangadag eða jóladag er oft kveikt bál og þá kemur fólk saman. Síðan fer fólk að heim- sækja nágranna sína, þó það þekki þá ekki neitt. Síðast fór ég með kærustunni minni heim til fólks sem ég þekkti ekkert og við vissum ekkert hvað við vorum að gera þarna. Svo er maður bara í rólegheitunum heima hjá einhverjum sem maður þekkir ekkert á jólunum, bara svona að tékka á stemningunni. Það er rosalega steikt.“ Vilhelm segist þó ekki sakna neins við portúgalskt jólahald, bara fjölskyldunnar. „Ég ætlaði að heimsækja þau um jólin er keypti miða of seint, þannig að það var of dýrt,“ segir Vilhelm. „Það verður leiðinlegt að sjá ekki pabba og systur mína en maður getur ekki alltaf gert allt. Jólin í Danmörku verða örugglega ekki svo galin heldur, þar eru alls konar hefðir og mér finnst eins og ég sé alltaf að heyra um nýjan danskan jóladrykkjuleik.“ Vilhelm er ekki í nokkrum vafa um hvað er uppáhaldið hans við jólin. „Malt og appelsín! Ég er brjál- aður í það og þarf alltaf að reyna að hægja á mér, því það er ekki hollt að drekka svona mikið gos,“ segir hann. Annars verður nóg að gera hjá Vilhelm fram að jólum. „Ég er með uppistand og ég og Fjölnir Gíslason erum með hlað- varpið Já OK! sem er hluti af dag- skrá RÚV Núll,“ segir hann. „Svo er ég líka að taka upp sjónvarps- þætti þessa dagana, en ég get ekki sagt neitt um þá annað en að það er mjög fyndið og gott stöff.“ Jólasveinarnir eru langskrítnastir Vilhelm Neto segir að hann hafi átt erfitt með að venjast íslensku jólasveinunum eftir að hann flutti til landsins en að hann sé mjög hrifinn af þeim. Hann er samt hrifinn af mörgum íslenskum siðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Vilhelm Neto ólst upp í Portúgal en hefur búið á Íslandi í rúman áratug. Hann segir að það sé meiri áhersla lögð á kristnina á jólum í Portúgal og að íslensku jólasveinarnir séu það skrítnasta við jólin hér. Við hlustum! Kringlan Grandi Glerártorg Fjörður Við erum með ótrúlegt úrval af flottum snyrtivörum sem smellpassa í litla og stóra pakka fyrir uppáhaldsfólkið þitt. Gefðu bestu rJólagjafirna JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 988
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.