Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 111
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Eva Laufey segir að lamba-hryggurinn sé fylltur með sólkysstum tómötum, furu-
hnetum, ólífumauki, steinselju
og sítrónuberki og sé afar ljúffeng
steik sem passar einstaklega vel
á veisluborðið um jólin. „Með
hryggnum er gott að hafa ofn-
bakaðar kartöflur í andafitu og
auðvitað góða soðsósu, fullkomið
fyrir þá sem vilja nostra aðeins
við matargerðina og njóta í botn,“
segir Eva Laufey sem sífellt kemur
áhorfendum á óvart í skemmti-
legri matargerð. Hráefnið í þessa
uppskrift bendir til að hér sé
æðisleg uppskrift.
FYLLTUR LAMBAHRYGGUR
MEÐ TÓMAT- OG
FURUHNETUPESTÓI
Fyrir 4-6
1 lambahryggur um 2,5 kg
úrbeinaður
Fylling
1 krukka sólkysstir
tómatar
3 msk. ólífutapenade
70 g ristaðar furu-
hnetur
½ laukur
2 hvítlauksrif
1 msk. fersk steinselja
Salt og nýmalaður pipar
1 msk. jómfrúarolía
Börkur af hálfri sítrónu
2 tsk. smátt saxað rósmarín
½ l vatn
Grænmeti
2 laukar
4 hvítlaukar, heilir
4-6 gulrætur
Biðjið starfsmann í kjötverslun-
inni að úrbeina lambahrygginn ef
þið treystið ykkur ekki sjálf til þess.
Setjið öll hráefnin sem eiga að fara
i fyllinguna í matvinnsluvél og
maukið vel. Setjið fyllinguna
á milli hryggjarvöðvanna
og leggið lundirnar þar
ofan á. Mótið rúllu og
vefjið seglgarni utan
um rúlluna og kryddið
hrygginn með salti, pipar
og sítrónuberki. Saxið
einnig niður ferskt rósmarín
og sáldrið yfir. Skerið græn-
metið í grófa bita og leggið í eldfast
mót, setjið lambahrygginn yfir og
hellið hálfum lítra af soðnu vatni í
fatið og inn í ofn við 180°C
í 45-50 mínútur. Þegar
15 mínútur eru eftir
af eldunartímanum
er ágætt að hækka
hitann í 200-210°C.
Leyfið kjötinu að hvíla
í 10 mínútur áður en þið
skerið það og berið fram,
hellið soðinu frá og geymið fyrir
sósugerð.
OFNBAKAÐAR KARTÖFLUR
Í ANDAFITU
10-15 kartöflur að eigin vali
2-3 msk. andafita
4-5 hvítlauksrif
3-4 rósmaríngreinar
Af hýðið kartöf lurnar og sjóðið í vel
söltu vatni í 10 mínútur. Eftir þann
tíma takið þær upp úr pottinum og
leggið í eldfast mót.
Skerið niður hvítlauksrif og saxið
ferskt rósmarín. Setjið 2 msk. af
andafitu í formið og veltið kartöf l-
unum upp úr fitunni.
Kryddið til með salti og pipar.
Bakið í ofni við 180°C í 30 – 35
mínútur eða þar til kartöf lurnar
eru gullinbrúnar, það er gott ráð að
snúa þeim við endrum og eins.
SOÐSÓSA
300-400 ml soð
½ nautakraftsteningur
Salt og pipar
500 ml rjómi
2 tsk. hveiti
1 msk. olía
Sigtið soðið í pott og blandið nauta-
kraftsteningi og rjóma saman við.
Kryddið til með salti og pipar. Leyf-
ið sósunni að ná suðu og hrærið vel
í á meðan. Blandið saman í skál
hveiti og olíu og þykkið sósuna með
hveitiblöndunni. Berið strax fram
með kjötinu.
Æðislegur fylltur
lambahryggur
Eva Laufey framkallar hér frábæran veislumat sem hægt er að dúlla sér við um jólin.
Fylltur lambahryggur sem minnir á sól og sumar við Miðjarðarhafið.
Eva Laufey Kjaran
Hermannsdóttir
sjónvarpskokkur
lét okkur í té þessa
girnilegu uppskrift að
jóla-lambahrygg en
hann er borinn fram
með ofnbökuðum
kartöflum og soðsósu.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 990