Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 121

Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 121
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi. Íslenskt handverk. Fæst um land allt. Þríkrossinn Stuðningur til sjálfstæðis Mamma var tvíburi og fæddist 24. desember 1937. Hún var tekin með keisara, mér er sagt að þetta hafi verið fyrsti keisarinn á Land­ spítalanum en ég ætla ekki að fullyrða það. Amma fékk að velja hvort keisarinn yrði gerður á aðfangadag eða gamlársdag. Hún vildi bara að það yrði gert sem fyrst, þess vegna valdi hún aðfangadag,“ segir Ingibjörg. Hún segir frá því að frænka hennar hafi eitt sinn tekið við­ tal við ömmu hennar. „Þar segir hún frá því að uppáhaldsminn­ ingin hennar hafi verið þegar tvíburarnir voru nýfæddir. Það var jólanótt og búið var að setja jólatré inn í stofuna til þeirra með lifandi kertum. Tréð var á borði á milli stelpnanna og hjúkrunar­ fræðingur vakti yfir þeim og trénu svo það myndi ekki kvikna í. „Amma sagði að þessi jólanótt væri sú fallegasta sem hún hefði upplifað.“ Unni, mömmu Ingibjargar, þótti oft leiðinlegt sem barn að fá ekki alvöru afmælisdag og gjafir en hún og tvíburasystir hennar fengu oft jólakjól og skó í afmælis gjöf. „Þar sem mamma átti ekki beint afmælisdag varð Þorláksmessukvöld að hennar afmæli. Það skapaðist sú hefð að fjölskyldan kom saman á Þorláks­ messukvöld og skálaði í freyði­ víni á miðnætti fyrir afmælinu hennar. Ég held enn þá í þessa hefð og skála fyrir mömmu á mið­ nætti á Þorláksmessu.“ Gerðu mikið úr aðventunni Ingibjörg safnaði uppskriftum mömmu sinnar fyrir ættingjana. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR DIMMALIMM Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Skoðið úrvalið á facebook DimmalimmReykjavik Ný send ng af jólafötu Jólagjafir Jólaföt, Skór Afmælisgjafir Skírnagjafir Aðventukaffinu heima útvarpað Ýmsar jólahefðir urðu til þegar foreldrar Ingibjargar bjuggu úti í Þýskalandi á námsárunum. „Í Þýskalandi er gert mun meira úr aðventunni en hér. Þegar þau komu aftur til Íslands voru þau alltaf með að ventukaffi á aðventu sunnudögunum. Við vorum fjögur systkinin og áttum öll okkar aðventukerti. Mamma bjó til súkkulaði og við borðuðum smákökur, pabbi las upp jólasög­ ur og svo var kveikt á kertinu. Við sátum öll við borðið og oft voru gestir. Þetta þótti mjög óvenjulegt, einhvern tímann á 8. áratugnum, áður en ég fæddist var þetta tekið upp og sent út í útvarpinu. Þar sem ég er langyngst af systk­ inum mínum, 9 árum yngri en bróðir minn og 19 árum yngri en elsta systir mín, þá bjó ég lengi ein með foreldrum mínum. Ég eldaði mikið með mömmu og kunni allar uppskriftirnar hennar. Fyrstu jólin eftir að hún dó gaf ég öllum í fjölskyldunni uppskriftabók með uppskriftunum hennar,“ segir Ingibjörg. Uppskriftin að rækjukok­ teilnum sem Ingibjörg deilir með lesendum er einmitt úr þessari uppskriftabók. En rækjukokteill­ inn er alltaf borðaður á aðfanga­ dagskvöld. Ingibjörg hefur einnig búið til vegan útgáfu af uppskrift­ inni. „Ég hélt ráðstefnu nýlega með vinkonu minni sem hét Vegan heilsa. Ástæðan fyrir því var að við vorum saman í veikindaleyfi. Hún vegna krabbameins og ég vegna kulnunar í starfi auk þess sem ég er með endómetríósu, pcos og van­ virkan skjaldkirtil. Okkur fannst ekki talað nógu mikið um áhrif mataræðis á heilsu. Læknar voru alltaf að segja okkur að borða hollt en ekki hvað við ættum að borða. Við fengum þess vegna erlenda sérfræðinga, tvo lækna og næringarfræðing, til að koma og tala um vegan mataræði en ég fylgi því að megninu til í dag. Ég finn bara að mér líður betur ef ég borða þannig.“ JÓLA VEGAN RÆKJUKOKTEILL fyrir 4 2 mangó 1 lárpera (avocado) 2 vorlaukar 2 palma granat­ epli 1 gul paprika 1 rauð paprika ½ rauður chili ½ agúrka 4 lime 1 búnt kóríander Hreinsið öll fræ úr agúrkunni og skerið allt grænmeti og ávexti í smáa ferninga. Skerið chili í smáa bita, grófskerið kóríander og takið fræ úr palma granateplunum. Setjið allt saman í skál, kreistið safann úr þremur lime yfir og blandið saman. Sósa 4 msk. vegan majónes 1 dós Oatly sýrður rjómi 1 dl tómatsósa Karrý eftir smekk Blandið öllum hráefnum í sósu saman í skál og hrærið vel saman. Fallegt er að setja salatið í falleg glös eða skálar, setja smá sósu yfir og bera fram með einum báti af lime. JÓLA RÆKJUKOKTEILL fyrir 4 Stórar rækjur að vild 1 sítróna Sósa 4 msk. majónes 1 peli rjómi 1 dl tómatsósa Karrý eftir smekk Þeytið rjómann og blandið öllum hráefnum saman við í skál og hrærið varlega saman svo loftið fari ekki úr rjómanum. Fallegt er að setja salatið í falleg glös eða skálar, setja smá sósu yfir og bera fram með einum báti af sítrónu. Fjölskylda Ingibjargar Elísabetar Garðarsdóttur hefur margar jólahefðir en mamma hennar var fædd á aðfangadag. Ingibjörg hefur haldið í margar þær hefðir sem hún ólst upp við og bjó til uppskriftabók með uppskriftum mömmu sinnar sem hún gaf fjölskyldunni. Rækjukokteillinn er alltaf borðaður á aðfangadagskvöld en Ingibjörg bjó til vegan útgáfu af honum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9100
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.