Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 121
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til
styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi.
Íslenskt handverk. Fæst um land allt.
Þríkrossinn
Stuðningur til sjálfstæðis
Mamma var tvíburi og fæddist 24. desember 1937. Hún var tekin með
keisara, mér er sagt að þetta hafi
verið fyrsti keisarinn á Land
spítalanum en ég ætla ekki að
fullyrða það. Amma fékk að
velja hvort keisarinn yrði gerður
á aðfangadag eða gamlársdag.
Hún vildi bara að það yrði gert
sem fyrst, þess vegna valdi hún
aðfangadag,“ segir Ingibjörg.
Hún segir frá því að frænka
hennar hafi eitt sinn tekið við
tal við ömmu hennar. „Þar segir
hún frá því að uppáhaldsminn
ingin hennar hafi verið þegar
tvíburarnir voru nýfæddir. Það
var jólanótt og búið var að setja
jólatré inn í stofuna til þeirra með
lifandi kertum. Tréð var á borði
á milli stelpnanna og hjúkrunar
fræðingur vakti yfir þeim og
trénu svo það myndi ekki kvikna
í. „Amma sagði að þessi jólanótt
væri sú fallegasta sem hún hefði
upplifað.“
Unni, mömmu Ingibjargar,
þótti oft leiðinlegt sem barn að
fá ekki alvöru afmælisdag og
gjafir en hún og tvíburasystir
hennar fengu oft jólakjól og skó
í afmælis gjöf. „Þar sem mamma
átti ekki beint afmælisdag varð
Þorláksmessukvöld að hennar
afmæli. Það skapaðist sú hefð að
fjölskyldan kom saman á Þorláks
messukvöld og skálaði í freyði
víni á miðnætti fyrir afmælinu
hennar. Ég held enn þá í þessa
hefð og skála fyrir mömmu á mið
nætti á Þorláksmessu.“
Gerðu mikið
úr aðventunni
Ingibjörg safnaði uppskriftum mömmu sinnar fyrir ættingjana. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Skoðið úrvalið á facebook
DimmalimmReykjavik
Ný send ng af
jólafötu
Jólagjafir
Jólaföt, Skór
Afmælisgjafir
Skírnagjafir
Aðventukaffinu
heima útvarpað
Ýmsar jólahefðir urðu til þegar
foreldrar Ingibjargar bjuggu úti
í Þýskalandi á námsárunum. „Í
Þýskalandi er gert mun meira
úr aðventunni en hér. Þegar
þau komu aftur til Íslands voru
þau alltaf með að ventukaffi á
aðventu sunnudögunum. Við
vorum fjögur systkinin og áttum
öll okkar aðventukerti. Mamma
bjó til súkkulaði og við borðuðum
smákökur, pabbi las upp jólasög
ur og svo var kveikt á kertinu. Við
sátum öll við borðið og oft voru
gestir. Þetta þótti mjög óvenjulegt,
einhvern tímann á 8. áratugnum,
áður en ég fæddist var þetta tekið
upp og sent út í útvarpinu.
Þar sem ég er langyngst af systk
inum mínum, 9 árum yngri en
bróðir minn og 19 árum yngri en
elsta systir mín, þá bjó ég lengi ein
með foreldrum mínum. Ég eldaði
mikið með mömmu og kunni allar
uppskriftirnar hennar. Fyrstu
jólin eftir að hún dó gaf ég öllum í
fjölskyldunni uppskriftabók með
uppskriftunum hennar,“ segir
Ingibjörg.
Uppskriftin að rækjukok
teilnum sem Ingibjörg deilir með
lesendum er einmitt úr þessari
uppskriftabók. En rækjukokteill
inn er alltaf borðaður á aðfanga
dagskvöld. Ingibjörg hefur einnig
búið til vegan útgáfu af uppskrift
inni. „Ég hélt ráðstefnu nýlega með
vinkonu minni sem hét Vegan
heilsa. Ástæðan fyrir því var að við
vorum saman í veikindaleyfi. Hún
vegna krabbameins og ég vegna
kulnunar í starfi auk þess sem ég
er með endómetríósu, pcos og van
virkan skjaldkirtil.
Okkur fannst ekki talað nógu
mikið um áhrif mataræðis á heilsu.
Læknar voru alltaf að segja okkur
að borða hollt en ekki hvað við
ættum að borða. Við fengum þess
vegna erlenda sérfræðinga, tvo
lækna og næringarfræðing, til að
koma og tala um vegan mataræði
en ég fylgi því að megninu til í dag.
Ég finn bara að mér líður betur ef
ég borða þannig.“
JÓLA VEGAN
RÆKJUKOKTEILL
fyrir 4
2 mangó
1 lárpera (avocado)
2 vorlaukar
2 palma granat
epli
1 gul paprika
1 rauð paprika
½ rauður chili
½ agúrka
4 lime
1 búnt kóríander
Hreinsið öll fræ úr agúrkunni og
skerið allt grænmeti og ávexti í
smáa ferninga. Skerið chili í smáa
bita, grófskerið kóríander og takið
fræ úr palma granateplunum.
Setjið allt saman í skál, kreistið
safann úr þremur lime yfir og
blandið saman.
Sósa
4 msk. vegan majónes
1 dós Oatly sýrður rjómi
1 dl tómatsósa
Karrý eftir smekk
Blandið öllum hráefnum í sósu
saman í skál og hrærið
vel saman.
Fallegt er að setja
salatið í falleg
glös eða skálar,
setja smá sósu
yfir og bera fram með
einum báti af lime.
JÓLA RÆKJUKOKTEILL
fyrir 4
Stórar rækjur að vild
1 sítróna
Sósa
4 msk. majónes
1 peli rjómi
1 dl tómatsósa
Karrý eftir smekk
Þeytið rjómann og blandið öllum
hráefnum saman við í skál og
hrærið varlega saman svo loftið
fari ekki úr rjómanum.
Fallegt er að setja salatið í falleg
glös eða skálar, setja smá sósu yfir
og bera fram með einum báti af
sítrónu.
Fjölskylda
Ingibjargar Elísabetar
Garðarsdóttur hefur
margar jólahefðir en
mamma hennar var
fædd á aðfangadag.
Ingibjörg hefur haldið í
margar þær hefðir sem
hún ólst upp við og bjó
til uppskriftabók með
uppskriftum mömmu
sinnar sem hún gaf
fjölskyldunni.
Rækjukokteillinn er alltaf borðaður á aðfangadagskvöld en Ingibjörg bjó til
vegan útgáfu af honum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9100