Fréttablaðið - 27.04.2016, Síða 8
Ársfundur EFÍA 2016
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður
haldinn miðvikudaginn 11. maí 2016
kl. 14 í Hlíðasmára 8, Kópavogi.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á árs-
fundinum með umræðu- og tillögurétti.
Hægt er að nálgast ársfundargögn á
heimasíðu sjóðsins www.efia.is
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur kynntur
3. Tryggingafræðileg úekt
4. Fjárfestingarstefna
5. Skipun stjórnar og laun stjórnarmanna
6. Val endurskoðanda
7. Önnur mál
orkumál Þess verður freistað að
bora allt að fimm kílómetra djúpa
háhitaholu á Reykjanesi síðar á
þessu ári. Stefnt er að því að holan
verði dýpsta og heitasta vinnslu-
hola jarðvarma á Íslandi. Slík
háhitahola gefur fræðilega tífalda
orku á við hefðbundna háhitaholu.
HS Orka og Jarðboranir undir-
rituðu samning um borun háhita-
holunnar í gær. Verkefnið er hluti
af Íslenska djúpborunarverkefninu
(IDDP) sem fékk nýlega styrk upp
á 1,3 milljarða króna frá rann-
sóknaráætlun Evrópusambands-
ins (Horizon 2020). HS Orka leiðir
verkefnið í samstarfi við norska
olíufélagið Statoil, auk annarra
fyrirtækja innan IDDP-samstarfs-
ins. Auk HS Orku eru Ísor, Lands-
virkjun, Georg-rannsóknaklasi í
jarðhita ásamt evrópskum fyrir-
tækjum þátttakendur í verkefninu.
Tilgangur verkefnisins er að sýna
fram á að framleiða megi orku úr
djúplægum jarðhitakerfum sem
gæti aukið orkuframleiðslu háhita-
svæða umtalsvert og þar með
dregið úr landrýmisþörf orku-
vinnslunnar.
Vonir þeirra sem að verkefninu
standa, ef allt gengur að óskum,
eru þær sömu og þegar reynt var
við djúpborun á Kröflusvæðinu,
staðfestir yfirverkfræðingur hjá HS
Orku, Guðmundur Ó. Friðleifsson.
Litið er til þess að fræðilega geti
djúpborun gefið háhitaholu sem
gefur allt að því tífalt meiri orku en
hefðbundin háhitahola sem nýtt
er til vinnslu jarðhita hér á landi í
dag. Slík borhola gefur þetta fimm
megavött svo 50 megavött rafafls
eru talin möguleg, ef besti árangur
næst. Til samanburðar er uppsett
afl Kröfluvirkjunar um 60 mega-
vött.
Vinnslutækni verkefnisins ræðst
af því hvernig jarðhitavökvi finnst
á fjögurra til fimm kílómetra dýpi.
Ef efnasamsetningin reynist við-
ráðanleg og unnt verður að vinna
yfirhitaða orkuríka gufu beint
upp úr djúpu borholunni er það
fyrsti valkostur. Ef efnasamsetning
vökvans reynist hins vegar of erfið,
verður vatni frá yfirborði dælt ofan
í holuna til að efla orkuvinnslu úr
grynnri nærliggjandi holum. Við
borun holunnar, prófanir, mæl-
ingar og vinnslu verður prófuð ný
tækni og búnaður í samstarfi við
bæði innlenda og erlenda aðila.
HS Orka leggur til verksins holu
15 á Reykjanesi sem er 2,5 kíló-
metra djúp og er ætlunin að dýpka
holuna allt niður að fimm kíló-
metrum. Samningurinn er hluti af
öðrum áfanga íslenska djúpbor-
unarverkefnisins (IDDP-2). svavar@
frettabladid.is
Gæti gefið tífalt meiri orku
HS Orka leiðir verkefni þar sem borað verður niður á fimm kílómetra dýpi á Reykjanesi. Verður dýpsta og
heitasta vinnsluhola jarðvarma á Íslandi ef allt gengur að óskum. Styrkfé nýtt frá Evrópusambandinu.
Til verksins munu Jarðboranir nota stærsta bor landsins, jarðborinn Þór. Holan verður stutt frá Reykjanesvirkjun. FRéTTablaðið/GVa
Boruðu í kvikuhólf
l Íslenska djúpborunarverkefnið
(IDDP) hefur verið starfrækt í
um 15 ár.
l Að IDDP standa íslensku orku-
fyrirtækin HS Orka, Landsvirkj-
un og Orkuveita Reykjavíkur,
ásamt Orkustofnun og norska
olíufélaginu Statoil.
l Á árunum 2008-2009 var fyrsta
djúpborunarholan, IDDP-1,
boruð við Kröflu og lenti hún
í 900°C heitri kviku á 2,1 kíló-
metra dýpi. Þar tókst að sýna
fram á að vinna mætti mikla
orku úr yfirhitaðri gufu úr
berginu rétt ofan við bráðna
bergkviku, og áformar Lands-
virkjun að halda áfram til-
raunum með slíka orkuvinnslu
þar á næstu árum.
Efnahagsmál Tekjur ríkissjóðs á
árinu 2016 aukast í heild um tæpa
72 milljarða króna frá fjárlögum
ársins samkvæmt uppfærðri tekju-
áætlun sem gerð var í tengslum við
útgáfu ríkisfjármálaáætlunar fyrir
árin 2017-2021.
Um helmingur aukningarinnar
er vegna stöðugleikaframlaga. Hinn
helmingurinn eða 36 milljarðar
króna er að mestu til kominn vegna
tekna af arði, en hluti aukningarinn-
ar er vegna styrkingar tekjustofna í
ljósi batnandi efnahags.
Þetta er fyrsta endurmat á tekju-
áætlun ársins 2016. Endurmatið er
byggt á nýjum upplýsingum sem
hafa komið til síðan fjárlagaáætl-
unin var gerð undir lok síðasta árs.
– jhh
Tekjur aukast
um 72 milljarða
laundromat er nú þegar rekinn á
tveimur stöðum. FRéTTablaðið/PJeTuR
Viðskipti Eigandi kaffihússins
Laundromat við Austurstræti hefur
fest kaup á húsnæði á Laugarásvegi
í Reykjavík. Til stendur að opna
nýjan veitingastað þar. Athygli
vekur að húsnæðið hýsti áður
efnalaugina Kötlu til margra ára en
Laundromat-keðjan, sem í eru þrír
staðir í Kaupmannahöfn og einn í
Reykjavík, er þekkt fyrir að bjóða
upp á aðstöðu fyrir viðskiptavini til
að þvo af sér föt.
„Það er svo sem skemmtilegt að
halda áfram með þannig starfsemi í
húsinu, það er svona ákveðin teng-
ing,“ segir Jóhann Friðrik Haralds-
son, eigandi staðarins á Íslandi. „En
við erum samt sem áður að koma
með nýjar vélar.“
Búið er að sækja um fram-
kvæmdaleyfi og vonast Jóhann til
þess að hægt verði að opna í júní.
– bá
Laundromat á
Laugarásveg
5
kílómetra djúp háhitahola
verður grafin á Reykjanesi
síðar á árinu
Athygli vekur að hús-
næðið hýsti áður efnalaug-
ina Kötlu
2 7 . a p r í l 2 0 1 6 m i ð V i k u D a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð