Fréttablaðið - 27.04.2016, Side 10
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið
Ríkiskaup fyrir hönd
Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi ljósbúnað:
• Hreyfiljós Spot/Profile
• Hreyfiljós Wash
• Fastljós Wash
• Upphengjur fyrir ofangreint
Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ),
miðvikudaginn 18. nóvember nk.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105
Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015,
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið
Ríkiskaup fyrir hönd
Þjóðleikhús ins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi ljósbúnað:
• Hreyfiljós Spot/Profile
• Hreyfiljós Wash
• Fastljós Wash
• Upphengjur fyrir ofangreint
Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ),
miðvikudaginn 18. nóvember nk.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105
Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015,
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Snjóflóðavarnir á Ísafirði - Uppsetning
stoðvirkja í Kubba Útboð 20316
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Ísafjarðarbæjar og Ofanflóða-
sjóðs, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við uppsetningu
stoðvirkja úr stáli (snow bridges), einnig kallaðar stálgrindur
eða grindur, til snjóflóðavarna á upptakasvæðum snjóflóða
í Bröttuhlíð í Kubba ofan Holtahverfis á Ísafirði. Verkaupi
leggur til efni til verksins, til uppbyggingar á stálgrindum, skv.
samningi við efnissala. Áformað er að koma fyrir um 1.890 m
af stálgrindum en hæð þeirra mælt þvert á halla fjallshlíðar
(Dk) er 3,0 m, 3,5 m g 4,0 m.
Helstu magntölu :
Stoðvirki (Dk 3,0 m) 1.396 m
Stoðvirki (Dk 3,5 m) 434 m
Stoðvirki (Dk 4,0 m) 58 m
Fótplötur 657 stk.
Vettvangsskoðun verður haldin 3. maí 2016 kl. 13:00 að við-
stöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera ð fullu lokið eigi síðar en í september 2018.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðs ögnum á vef hjá
Ríkiskaupum á vefslóðinni http://rikiskaup.is/utbod/utb/20316
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 24. maí 2016, kl. 14:00
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Aðalfundur
Fella- og Hólabrekkusókna
verður haldinn í safnaðarsal Fella- og Hólakirkju
þriðjudaginn 10. maí nk og hefst hann kl 19.30.
Venjuleg aðalfundarstöf.
Á fundinum liggur fyrir tillaga til ákvörðunar um sameiningu
Fella- og Hólabrekkusókna.
Tillöguna má kynna sér á heimasíðu kirkjunnar
www.fellaogholakirkja.is
Íbúar í Efra Breiðholti, þ.e. Fella- og Hólahverfum eru hvattir
til að mæta á fundinn
Sóknarnefndir Fella- og Hólabrekkusókna
Matráður
Læknasetrið óskað eftir að ráða matráð í afleysingar
í u.þ.b. 3 – 3 ½ mánuði. Þarf að geta byrjað strax.
Umsóknir óskast sendar á solrun@setrid.is.
Upplýsingar í síma 535 7777.
Læknasetrið
Þönglabakka 1 og 6
109 Reykjavík
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Noregur Norska ríkið hefur ákveðið
að áfrýja úrskurði héraðsdómstóls í
máli Anders Behring Breiviks.
Ríkið fellst ekki á að þær aðstæður,
sem Breivik hefur búið við í fang-
elsinu, geti fallið undir ómannúðlega
eða vanvirðandi meðferð eins og það
er skilgreint í Mannréttindasáttmála
Evrópu.
Í síðustu viku komst dómstóll í
Ósló að þeirri niðurstöðu að ríkið hafi
brotið gegn mannréttindum Breiviks.
Dómstóllinn sagðist ekki sjá að í fang-
elsinu stafi það mikil hætta af Brei-
vik að það réttlæti þá einangrun og
líkamsleit sem hann hefur þolað. – gb
Breivik-dómnum verður áfrýjað
Anders Behring Breivik myrti 77 manns í Útey og Ósló árið 2011. FréttABlAðið/EPA
BretlaNd Heilum 27 árum eftir að
nærri hundrað manns létu lífið í
troðningi á fótboltavelli hefur ítarleg
rannsókn leitt í ljós að lögreglan beri
meginábyrgðina.
Aðstandendur hinna látnu fögn-
uðu niðurstöðunni. David Cameron
forsætisráðherra segir að þarna hafi
fengist opinber staðfesting á því að
fótboltaaðdáendurnir, sem voru á
vellinum í Sheffield þann 15. apríl
árið 1989, hafi verið alsaklausir.
David Cuckenfield var yfirmaður
í lögreglunni þegar harmleikurinn á
Hillsborough-vellinum varð. Alls létu
96 manns lífið og 766 meiddust.
Cuckenfeld er í úrskurði rann-
sóknarkviðdóms sagður hafa brugð-
ist skyldu sinni og sýnt af sér vítaverða
vanrækslu. Þar með hafi hann gerst
sekur um manndráp.
Lögreglan hafi gert margvísleg mis-
tök sem hafi gert ástandið á vellinum
hættulegra en ella hefði orðið. Meðal
annars hafi lögreglunni ekki tekist
að hafa stjórn á mannfjöldanum sem
streymdi inn á völlinn. Þá hafi við-
brögð lögreglu og sjúkraliðs verið allt-
of hæg, ekki síst vegna þess að of seint
hafi verið lýst yfir neyðarástandi.
Þá hafi verið gerð alvarleg mistök
með því að fresta ekki upphafi leiks-
ins þegar í ljós kom að alvarlegur
troðningur var að myndast.
Gagnrýnt er að lögreglan hafi
ekki dregið neinn lærdóm af fyrri
atburðum, en hættuástand hafi
nokkrum sinnum áður myndast á
þessum sama leikvangi. Athygli lög-
reglu og fjölmiðla beindist eingöngu
að áhorfendum og sökin sögð liggja
hjá fótboltabullum, sem hafi hagað
sér með vítaverðum hætti.
„Fólk var á móti okkur. Við höfðum
fjölmiðlana á móti okkur og stjórn-
völd líka,“ er haft eftir Margaret
Aspinall á fréttavef breska ríkisút-
varpsins, BBC. „Allt var á móti okkur.“
Aspinall missti átján ára son sinn í
troðningnum við Hillsborough-völl-
inn. Aðstandendur hinna látnu hafa
lengi barist fyrir því að atburðurinn
yrði rannsakaður ofan í kjölinn.
Á endanum var ákveðið að leggja
fjórtán spurningar fyrir níu manna
kviðdóm, sem skýrði frá niðurstöð-
um sínum í gær. Við öllum spurn-
ingunum nema einni komst kvið-
dómurinn að einróma niðurstöðu.
gudsteinn@frettabladid.is
Ábyrgðin var ekki hjá
fótboltaaðdáendunum
Harmleikurinn á Hillsborough-leikvanginum í Sheffield árið 1989, þegar 96
manns tróðust undir og hundruð urðu fyrir meiðslum, var ekki brjáluðum fót-
boltabullum að kenna. Niðurstöður rannsóknar á slysinu voru birtar í gær.
Aðstandendur hinna látnu fagna innilega niðurstöðum rannsóknarinnar, sem lengi hefur verið beðið eftir. FréttABlAðið/EPA
Stórslys á leikvöngum
1982: Meira en 300 manns létu
lífið í troðningi í þröngum stiga-
gangi á leikvangi í Moskvu.
1985: 56 létu lífið í eldsvoða á leik-
vanginum í Bradford á Englandi.
1985: 39 létu lífið þegar veggur
hrundi á Heysel-leikvanginum í
Brussel.
1988: 92 létu lífið í troðningi eftir
að fólk flúði haglél á leikvangi í
Katmandú í Nepal.
1989: 96 létu lífið á Hillsborough-
leikvanginum í Sheffield.
1991: 40 manns létu lífið í
troðningi í kjölfar óeirða á kapp-
leik í Orkney í Suður-Afríku.
1996: Um 80 manns létu lífið
í troðningi áður en landsleikur
hófst í Gvatemala-borg.
2001: Yfir 40 manns létu lífið í
troðningi á Ellis Park-leikvanginum
í Jóhannesarborg í Suður-Afríku.
2001: 126 manns létust í troðningi
á Accra-leikvanginum í Gana.
2012: Að minnsta kosti 74 létu
lífið í óeirðum sem brutust út
á leikvangi í Port Said í Egyptalandi.
2 7 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K u d a g u r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð