Fréttablaðið - 27.04.2016, Síða 22
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Er flókið að rækta eigið útsæði?
Útsæði er einfaldlega kartafla sem
ræktuð var sumarið áður af viður
kenndum útsæðisframleiðanda,
stærðarflokkuð og heilbrigð kart
afla. Við notum útsæði þar sem við
viljum fjölga því yrki sem um ræðir
svo sem eins og gullauga. Þegar við
notum útsæði fáum við sömu tegund
kartöflu og við settum niður. Þegar
ræktaðar eru kartöflur frá fræi
fáum við mjög mismunandi plöntur
og uppskeru. Það er þekkt að rækta
kartöflur frá fræi en þar sem það
gefur ekki uppskeru fyrsta árið,
heldur myndar það útsæði fyrir
næsta ár, er það fyrir gallharða
kartöfluræktendur og mikið áhuga
fólk um kartöflurækt!
Æskilegast er að kaupa sér
framleitt útsæði frá viðurkennd
um framleiðanda. Ef rækta á eigið
útsæði þarf fyrst og fremst að hafa
í huga að kartöflugarðurinn verður
að vera heilbrigður og sjúkdóma
laus. Ef sýkt útsæði fer í garðinn
getur reynst þrautin þyngri að snúa
því vandamáli við. Þegar uppskorið
er að hausti er æskilegt að stærðar
flokka kartöflurnar og þær sem
eru um 4070 grömm eru vænleg
ar í útsæði árið eftir. Geyma skal
útsæðið í góðri geymslu yfir vetur
inn við 46°C hita og hátt rakastig
eða um 95%.
Hægt er að velja útsæði af öllum
stærðum og gerðum frá framleið
endum. Það er fáanlegt í verslun
um sem eru með garðyrkjuvörur
en einnig hefur Garðyrkjufélag Ís
lands verið með til sölu minni ein
ingar og ýmsar sjaldgæfar tegund
ir fyrir félagsmenn sína.
Ýmis yrki eru fáanleg og
eru þessi algengustu Gullauga,
Premier, Helga og Íslensk rauð en
svo eru til aðrar sjaldgæfari teg
undir eins og Blálandsdrottning,
Kóngablá, möndlukartöflur, rauð
ar möndlukartöflur, norskar rauð
ar, Akureyrar gul og Ben Lomond.
Yrkin eru mismunandi að því
leyti að kartöflurnar hafa mismun
andi lögun og stærð, eru mismun
andi að lit, með misdjúp augu, hafa
mislangan vaxtartíma og gefa mis
mikla uppskeru.
Hvenær á að setja
kartöflurnar niður?
Yfirleitt er byrjað á því að láta út
sæðið forspíra áður en það er sett
niður. Það er gert til að stytta rækt
un kartöflunnar þar sem oftar en
ekki verða sumrin okkar frekar
stutt. Við forspírun eru kartöfl
urnar settar í grunnar grindur eða
grunna pappakassa og geymdar á
björtum stað, þó ekki í beinu sól
arljósi, og við um 15°C í um það bil
fjórar vikur. Spírurnar eiga að vera
stuttar og dökkar og passa þarf að
þær brotni ekki af þegar kartöfl
urnar eru settar niður.
Hægt er að setja niður kart
öflur frá apríllokum og út maí en
þegar kartöflurnar eru settar mjög
snemma niður er æskilegt að setja
akrýldúk yfir beðin fyrstu vikurn
ar til að hita og halda raka á jarð
veginum og vernda plöntuna fyrir
frostum og vindum
Beðin geta verið mismunandi,
beð eða hraukar, en æskilegt er að
hafa um 60 cm á milli raða og 2530
cm á milli kartaflanna. Þær eru
settar niður á 48 cm dýpt, fer eftir
jarðvegsgerðum. Í sendinn jarðveg
er hún sett dýpra niður en ef jarð
vegurinn er þungur með miklu af
lífrænu efni í.
Hvernig á að undirbúa jarðveginn?
Þegar frost er farið úr jarðvegi og
hann orðinn nokkuð hlýr og mesta
bleytan farin úr honum er óhætt að
stinga hann upp. Því næst eru búin
til beð eða hraukar með rásum á
milli til að tryggja gott frárennsli
frá beðunum þar sem kartaflan
þrífst ekki vel í mikilli bleytu. Ef
borið hefur á kláða á kartöflum úr
garðinum árinu áður þarf mögulega
að lækka sýrustig jarðvegsins (gera
hann súrari) með brennisteini en
sjúkdómar sem herja á kartöfluna
þrífast síður í lágu sýrustigi. Æski
legt er að hafa sýrustig í jarðvegi
um pH 5,05,5. Ekki er æskilegt að
kalka kartöflugarða en það hækkar
sýrustig í jarðvegi (gerir hann bas
ískari). Hægt er að strekkja svartan
dúk yfir beðin, gata hann og setja
kartöflurnar niður í gegnum götin.
Þetta tryggir hlýjan vaxtar stað
fyrir kartöfluna og við fáum upp
skeruna fyrr en ella.
Hvenær koma grösin upp?
Reikna má með að grösin kíki upp
34 vikum eftir að kartöflurnar
hafa verið settar niður. Passið að
halda garðinum illgresishreinum
til að koma í veg fyrir samkeppni
á milli nytjaplantna og illgresis
um ljós, vatn og áburð. Kartaflan
vill frekar sendinn jarðveg sem er
hlýr og ekki of blautur. Ef nota á
tilbúinn áburð á garðinn skal forð
ast að nota of mikið af áburði og þá
sér í lagi köfnunarefni þar sem það
eykur blaðvöxt plöntunnar á kostn
að kartöflunnar. Fáið leiðbeining
ar hjá seljendum áburðar. Vökv
ið frekar oft og lítið en sjaldan og
mikið. Leitist við að hafa jarðveg
frekar rakan en blautan.
Hvenær má taka upp?
Kíkja má undir grös um miðjan júlí
ef sett hefur verið niður snemma.
Annars má reikna með 7090
dögum í vaxtartíma á kartöflum.
Hvað geta komið margar
kartöflur undan einu grasi?
Mjög misjafnt. Frá fimm upp í
1520 stykki, mismunandi að stærð.
Fer oftar en ekki eftir því hvern
ig veður hefur verið yfir sumar
ið. Blautt og kalt sumar gefur ekki
fyrirheit um hámarksuppskeru.
Hvernig á að geyma
uppskeruna yfir veturinn?
Flokka grænu kartöflurnar frá,
mögulega stærðarflokka gróflega.
Ef flokkað er eftir stærð ertu með
sama eldunartíma á hollinu.
Áður en kartöflurnar fara í
geymslu þarf hýðið að vera þurrt
til að minnka hættu á sveppasjúk
dómum í geymslunni. Í geymslu
þarf hitastig að vera um 4°C og hátt
rakastig, um 95%, og dimma.
gómsæt uppskera eftir 90 daga
Apríl- og maímánuðir eru tíminn sem grænfingraðir sælkerar setja niður kartöflurnar. Það tekur um fjórar vikur að forspíra útsæðið og því
ekki eftir neinu að bíða. bryndís björk reynisdóttir garðyrkjufræðingur útlistar hér fyrir byrjendum hvernig á að bera sig að við kartöflurækt.
bryndís björk reynisdóttir garðyrkjufræðingur. mynd/ernir
Áður en kartöfl-
urnar fara í
geymslu þarf hýðið að
vera þurrt til að minnka
hættu á sveppasjúk-
dómum.
Bryndís Björk Reynisdóttir
garðar og hellUlagnir Kynningarblað
27. apríl 20162
Hvellur • Smiðjuveg 30, 200 Kópavogur • www.hvellur.com • s: 577 6400
Opið virka daga 9:00 - 18:00 og 12:00 - 16:00 á laugardögum.
Murray sláttuvélar frá Hvelli
Loksins eru gæða sláttuvélarnar aftur fáanlegar á Íslandi, allar vélarnar eru framleiddar
í Evrópu með nýjustu umhverfisvænum gæðamótorum frá Briggs og Stratton.
Varist eftilíkingar!!
Heimilisvélin. Verð kr. 69.739,-
Murray EQ400
Briggs & Stratton 450E Series 125cc OHV bensínmótor.
Sláttubreidd 46 cm
Afturkast með 60 l poka og möguleika á “Mulching”
6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 cm
18 cm hjól
Tvær saþátta hæðarstillingar
Stóra heimilisvélin með drifi. Verð kr. 89.362,-
Murray EQ500X Ready Start
Briggs & Stratton 575EX Series 140cc OHV bensínmótor.
Sláttubreidd 46 cm
Sjálfkeyrandi drif 3.6 km/t.
Afturkast með 60 l poka og “Mulching” (hökkun)
6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 cm
18 og 28 cm hjól
Ein saþátta hæðarstilling fyrir öll hjól.
Fyrir Atvinnumannin og Sveitarfélög. Verð kr. 125.771,-
Murray EQ700X Ready Start
Briggs & Stratton 750EX Series 161cc DOV bensínmótor.
Sláttubreidd 53 cm
Sjálfkeyrandi drif 3.6 km/t.
Afturkast með 70 l poka og “Mulching” (hökkun)
6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 cm
20 og 28 cm hjól
Ein saþátta hæðarstilling fyrir öll hjól.