Fréttablaðið - 27.04.2016, Page 24

Fréttablaðið - 27.04.2016, Page 24
Axel Birgir Knútsson, garðyrkju- meistari í Laugardal, segir að í raun sé alltaf hægt að fella tré, betra sé þó að gera það áður en þau laufgast. „Ef maður ætlar að snyrta tré þarf að gera það á viss- um tíma. Þegar á að fella tréð skiptir tíminn ekki öllu máli en auðveldast er að gera það þegar tréð er lauflaust. Barrtré má til dæmis fella hvenær sem er,“ segir hann. „Reglan er sú að ef tréð er hærra en 8 metrar og eldra en 40 ára þarf leyfi til að fella það. Al- mennt er aldrei sagt nei þegar fólk biður um leyfi til að fella algengar tegundir eins og ösp og sitka greni. Leyfið er hins vegar nauðsynlegt svo fólk sé ekki að fella einstök tré eins og silfurreyni, gullregn eða hlyn.“ Tré veita skjól Axel segir að best sé að fá fagfólk til að fella tré. „Að minnsta kosti þarf að ráðfæra sig við fagfólk. Það er betra að gera ekki neitt í fljótfærni. Trén skyggja fyrir sól- ina en það má ekki gleyma því að stærstan hluta ársins er engin sól hvort eð er. Trén brjóta vind og veita skjól svo fólk ætti ekki bara að horfa á þau með tilliti til skugga. Síðan geta trén auðvitað varpað skugga á garð nágranna og þá þarf fólk að gera með sér samkomulag ef fella þarf tréð. Garðeigandinn sem á tréð hefur allan rétt nema ef tréð er farið að vaxa yfir í næsta garð. Svona mál geta verið flókin og erfið. Ef tré á opnum svæðum skyggja á einkagarða þarf fólk að leita til garðyrkjumeistara í viðkomandi sveitar félagi og ræða hvort ekki sé hægt að fella þau.“ Vorverkin í garðinum „Þessa dagana ætti fólk að byrja á því að taka til og hreinsa í görð- um sínum. Það er gott að ráðast á illgresi snemma en þá verður öll vinnan í sumar auðveldari. Einn- ig ætti fólk að kanna hvort kal sé í runnum en þá þarf að hreinsa það og klára klippingar. Einnig má fjarlægja vetrarskjól ef það er í görðum, undirbúa beðin fyrir gróðursetningu og gefa áburð eða skít. Ef tjörn er í garðinum þarf að hreinsa hana,“ segir Axel þegar hann er spurður um helstu verkefnin í garðinum þessa dag- ana. Þegar Axel er spurður um mosa í grasi, svarar hann: „Það þarf að bera vel á og slá síðan neðarlega og reglulega. Það kemur mosi fyrstu þrjá slætt- ina en síðan nær grasið yfirhönd- inni.“ Þegar fella þarf tré í garðinum Þeir sem hyggjast fella tré í görðum sínum ættu að huga að því áður en trén laufgast. Góður tími til þess er núna. Stundum þarf leyfi til að fella tré. Það eru mörg falleg, gömul tré í borginni. Hér er garðahlynur frá 1917. garðar og Hellulagnir Kynningarblað 27. apríl 20164 HLUTI AF BYGMA ALLT FYRIR SUMARHÚSIÐ ræktunina og garðinn þinn Endalaust ENDALAUS GSM 1817 365.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.