Fréttablaðið - 27.04.2016, Page 27
Kynningarblað garðar og hellulagningar
27. apríl 2016 7
„Við erum alhliða garðaþjónusta
með öflugar viðhaldsdeildir. Við
sjáum um allt sem viðkemur garð-
inum, slátt, beðahreinsun, trjá-
klippingar og fleira, fyrir einstak-
linga, húsfélög og fyrirtæki. Þá
erum við einnig öflugt verktaka-
fyrirtæki og tökum að okkur lóða-
breytingar og meiriháttar hellu-
lagnir og smíðavinnu,“ segir Hjör-
leifur Björnsson, annar eigandi
Garðaþjónustunnar, en fyrirtæk-
ið rekur hann ásamt bróður sínum,
Róberti Bjargarsyni.
„Við erum fyrst og fremst á
einstaklingsmarkaðnum og ein-
beitum okkur að því að þjónusta
einkagarða. Í viðhaldsþjónustu
hjá okkur allt árið er einnig mikið
af húsfélögum í bland við einstak-
linga. Þá sjáum við um allt frá A
til Ö sem viðkemur garðinum og
bílaplani. Á veturna felst þjónust-
an í hálkueyðingu, söndun og snjó-
mokstri. Á vorin og sumrin tekur
svo við hefðbundin garðyrkja, s.s.
klippingar, sláttur o.s.frv.
Persónuleg þjónusta
„Garðaþjónusta Íslands er ekki
stórt fyrirtæki og við viljum ekki
vera það, einfaldlega vegna þess
að við viljum gera hlutina vel og
hafa yfirsýn yfir starfsemi okkar,“
segir Hjörleifur. „Við viljum taka
að okkur minna og gera það þá
betur og leggjum okkur fram um
að veita persónulega þjónustu. Við
erum ekki í færibandavinnu.“
Fagmenn
„Við höfum fagmenntað fólk í
okkar hópi og hjá okkur starfar
meðal annars skrúðgarðyrkju-
fræðingur. Þar að auki búum við
yfir gríðarlegri reynslu, sem að
hluta til er komin til vegna þess
að við stofnuðum fyrirtækið 2008
þegar lítið var um stærri fram-
kvæmdir og við þurftum því að
taka að okkur öll verk sem buðust.
Þess vegna hefur fyrirtækið þró-
ast út í að vera mjög sterk alhliða
garðaþjónusta og mjög vel tækj-
um búið í alla garðyrkju og fram-
kvæmdir.“
Skipulag fram í tímann
Hjörleifur segir sprengingu hafa
orðið á markaðnum á síðasta ári og
fyrirspurnum og verkefnum fjölg-
aði svo um munaði. Því þurfi fólk
að skipuleggja framkvæmdir vel
fram í tímann.
„Nú er sá tími árs að ganga í
garð þar sem eftirspurnin verð-
ur mikil. Á síðasta ári varð al-
gjör sprenging og við lentum í því
í fyrsta skipti að geta ekki einu
sinni svarað öllum fyrirspurn-
um. Það er liðin sú tíð að hægt sé
að hringja í garðyrkjumann og
hann er kominn eftir viku. Fólk
þarf að hugsa fram í tímann varð-
andi framkvæmdir sem á að fara
í, hellulagnir, pallasmíði og annað;
hafa samband og skipuleggja fram
í tímann,“ segir Hjörleifur.
nánari upplýsingar er að finna á
www.garda.is.
alhliða garðaþjónusta
allan ársins hring
Bræðurnir hjörleifur Björnsson og róbert Bjargarson reka garðyrkjufyrirtækið
Garðaþjónustu Íslands. Fyrirtækið tekur að sér alhliða garðvinnu og viðhald allan
ársins hring fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki.
hjörleifur Björnsson og róbert Bjargarson reka garðyrkjuþjónustu Íslands.
mynd/hanna andrésdóttir
garðaþjónusta
Íslands er ekki
stórt fyrirtæki og við
viljum ekki vera það,
einfaldlega vegna þess
að við viljum gera hlut-
ina vel og hafa yfirsýn
yfir starfsemi okkar. Við
viljum taka að okkur
minna og gera það þá
betur og leggjum okkur
fram um að veita pers-
ónulega þjónustu.
Hjörleifur Björnsson