Fréttablaðið - 27.04.2016, Page 28

Fréttablaðið - 27.04.2016, Page 28
Rabarbari er upphaflega frá Asíu en hefur verið ræktaður hér á landi í um það bil 130 ár. Rabar- bari er fjölær, gróskumikil og pláss- frek planta sem getur orðið allt að 60-70 sentimetrar á hæð. Blöð- in geta orðið allt að 50 til 60 senti- metrar í þvermál. Rabarbari sprett- ur snemma sumars og er hægt að taka upp stilka af sömu plöntunni nokkrum sinnum yfir sumarið. Hægt er að nýta rabarbara á ýmsa vegu; jafnt stilka og blöð. Úr stilkunum má vinna sultur, grauta, saft, sósur, vín, bakkelsi og margt fleira. Úr laufblöðunum er búið til eitur til að eitra fyrir lús og maðki í trjám. Þau er líka hægt að nota til að lita ull og lopa. Áður fyrr voru ræturnar notaðar til lækninga. Rabarbari er frábær í pæ. Hér er uppskrift í hollari kantinum. 400 g rabarbari 2 msk. kartöflumjöl 2 tsk. kanill 100 g dökkt súkkulaði (a.m.k. 75%) 3 dl hveiti 1 dl kókosmjöl ½ dl strásæta 100-150 g smjör (lint) Skerið rabarbarann í hæfilega bita og dreifið í eldfast mót. Strá- ið kartöflumjöli, kanil og brytjuðu súkkulaði yfir. Blandið hveiti, kókosmjöli og strásætu saman í skál. Sker- ið smjörið í nokkra bita og hnoðið það inn í þurrefnin þar til myndast gróf mylsna. Dreifið henni yfir rab- arbarann. Bakið við 200 gráður í 20 mínútur eða þar til bakan hefur fengið gylltan lit. www.gardheimar.is  Kröftug planta  AnAnAsjArðArber í sAlAtið Ananasjarðarber eða pineberry er ræktunarafbrigði af jarðarberjum, sem varð til við víxl- frjóvgun Fragaria chiloensis frá Suður-Ameríku og Fragaria virginiana frá Norður-Ameríku. Plantan líkist jarðarberjaplöntunni og berin rauðu jarðarberjunum sem við þekkjum, að því undanskildu að berin eru hvít eða ljósbleik með rauðum fræjum og bragðast eins og blanda af ananas og jarðarberjum. Plantan var sett á markað í Þýskalandi árið 2009 og hefur verið fáanleg á Íslandi um nokk- urra ára skeið. Hún er ræktuð eins og jarðarber og þrífst best í skjóli og á sólríkum stað. Nauðsynlegt er að skýla henni yfir veturinn. Plöntuna má gróðursetja í maí og vænta má uppskeru sama sumar. Ekki er mælt með að planta mjög djúpt. Þá getur það tekið nýjar plöntur 1-2 ár að festa sig og skjóta rótum áður en þær fara að gefa af sér. Fyrst verða berin græn og síðan hvít með rauðum fræjum. Einn af kostum þessarar tegund- ar er sá að fuglar halda að berin séu óþroskuð og láta þau því vera. Berin má borða beint af plöntunum og þau eru sömuleiðis góð í sumarsalatið eða deserta. Heimild: bbl.is, gardheimar.is Moltun lífræns úrgangs úr eldhús- inu, laufa, grass og gróðurafklippa hefur marga jákvæða þætti í för með sér. Auk þess að minnka sorp- ið þá styður jarðgerð úr lífrænum úrgangi við náttúrulega hringrás og nýtist sem verðmætur áburður í garðræktina. Þroskuð molta er einn besti áburður sem fæst, hún er rík af næringarefnum og gróðurinn verð- ur kröftugri með henni og verst betur skaðlegum dýrum og sjúk- dómum. Við jarðgerð þarf að varast að setja of mikið af sama úrganginum í einu í moltuna því það getur gert ör- verum erfitt fyrir. Því þarf að blanda matarleifum og grasi saman við þurrefni og garðaúrgang. Ýmislegt úr garðinum má nota í moltugerðina svo sem gras, mosa, visnaðan gróður, lauf, börk, barr, greina, kvisti og hey. Grófari garð- úrgang er betra að kurla og miða þá við um tíu senti- metra. Þann- ig nýtist plássið betur og rotn- un geng- ur hraðar fyrir sig. Lífrænt er besti áburðurinn Kurlarar Model SDL 2800 EVO Einfasa rafmótor 2800 W Sjálfbrýnandi kurlaravals Koma með safnkassa Meðfærilegir Auðveldir í allri notkun Hljóðlátir Öfllugir greinakurlarar - taka allt að 45 mm stofna Klippur Trjáklippur - Greinaklippur - Limgerðisklippur - Rósaklippur Model VA 389 B B&S 750 Bensínmótor Vinnslubreidd 38 cm Safnpoki 50 lítra Hentar í stærri garða Mosatætarar Model VA 302 E Rafmótor 1600 W Vinnslubreidd 30 cm Safnpoki 45 lítra Hentar í minni garða Vandaðir mosatætarar á hagstæðu verði Áburðardreifarar Model WE-B Rafhlöðuknúinn kastdreifari Vinnslubreidd allt að 2,5 m Hentugur fyrir minni garða Grasið verður grænna með góðri og jafnri áburðargjöf Model WE-330 Áburðardreifari Vinnslubreidd 41 cm Rúmtak 15 lítrar Model WE-430 Áburðardreifari Vinnslubreidd 43 cm Rúmtak 20 lítrar ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is garðar og heLLuLagnir Kynningarblað 27. apríl 20168

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.