Fréttablaðið - 27.04.2016, Side 44

Fréttablaðið - 27.04.2016, Side 44
Ég er mjög heppinn með að konan mín er sér-lega góður kokkur,“ segir Tómas Jónsson tónlistar-maður sem sendir frá sér sína fyrstu plötu um þessar mundir. Hann gengur reyndar svipaðan veg og býsna margir tónlistarmenn í dag og safnar fyrir útgáfu plötunnar á Karolina Fund. Hann fer nokkuð óvænta leið og býður upp á þann valmöguleika að fólk geti keypt af honum heimboð fyrir allt að fjóra í Vesturbæinn, þar sem hann ætlar ásamt Ásu Berglind Hjálmarsdóttur, kærustunni sinni að matreiða ofan í þá og bjóða upp á tónleika í leiðinni.  Verðmiðinn á slíku boði er um níu- tíu þúsund krónur, en vissulega getur fólk stutt við bakið á honum fyrir lægri upphæðir og fengið tveggja klukkustunda einkatónleika hvar sem er á höfuðborgarsvæðinu fyrir litlar sjötíu og fimm þúsund krónur, tryggt sér eintak af væntanlegri plötu og margt fleira. „Okkur þótti matarboð sniðugt og að það gæti orðið gaman að fá einhvern heim, þetta yrði svolítið forvitnilegt jafnvel,“ segir Tómas og heldur áfram: „Hún er miklu betri kokkur en ég svo hún tekur elda- mennskuna að sér. Við vitum ekkert hve margir koma, hvort við eldum fyrir einn eða fjóra.“ Tómas segist ganga að því vísu að matseldin verði einkar vönduð þar sem heimboðið kostar níutíu þúsund krónur. „Þetta er auðvitað stuðningur við útgáfu plötunnar svo þannig rétt- læti ég þennan verðmiða,“ segir hann og hlær. „Við spilum yfirleitt mikið af fingrum fram í eldhúsinu og fylgjum sjaldnast uppskriftum,“ skýtur Ása að og heldur áfram: „En útkoman er nær undantekningalaust sérdeilis fín. Við Býst við að enda með eldhúsið fullt af bláókunnugum Tónlistarmaðurinn Tómas Jónsson gefur út sína fyrstu plötu og fjármagnar útgáfuna með matarboðum heima hjá sér. Tómas sameinar áhugamálin þegar hann býður í matarboðið, en hann er mikill sælkeri sjálfur. FréTTablaðið/anTon brink Spriklandi fersk blálanga úr fiskborðinu í Melabúðinni Íslenskt smjör Hvítlaukur Hvítur pipar Salt Eftirlæti haf- meyjunnar frá Pottagöldrum Skera blálönguna í steikarbita. Bræða saman fullt af hvítlauk og smjöri og sjóða í smá tíma Pensla fiskinn með hvítlauks- smjörinu og strá kryddinu yfir. Gott að pensla smjörinu áður og láta hvítlaukinn vinna aðeins með fiskinum. Fiskurinn fer ekki á grillið fyrr en allt hitt er að verða tilbúið því hann þarf svo lítinn tíma. Sætar kartöflur, reikna með hálfri á mann. Góð ólífuolía Salt og pipar Skera sætu kartöflurnar til helminga, á lengdina, og láta olíu á þá hlið sem var skorin og salt og pipar. Þetta þarf að grilla í svona 45-60 mínútur, eftir stærð kartaflanna. Rauðlaukur skorinn í tvennt, penslaður með ólífuolíu, stundum hef ég líka penslað hann með hlynsírópi og það er geggjað! Skella honum á grillið. Músíkölsk Máltíð erum bæði miklir matgæðingar en ég hugsa að við myndum vinna mat- seðilinn í samstarfi við það fólk sem væri að koma hverju sinni og elda allt frá gómsætum grænmetisréttum yfir í grillaðar steikur.“ Platan sem Tómas ætlar sér að fjármagna meðal annars með matar- boðum er sú fyrsta sem hann sendir frá sér í sínu eigin nafni. Hann hefur þó verið ansi iðinn við að leika með einhverjum vinsælustu tónlistar- mönnum landsins, svo sem Ásgeiri Trausta, Hjálmum, Fjallabræðrum, Helga Björnssyni, Sigríði Thorlacius, Memfis Mafíunni og Una Stefson. Þá tekur Tómas þátt í uppfærslu Vestur- ports á Í hjarta Hróa hattar sem hefur notið mikilla vinsælda. „Þetta hefur allt verið að gerjast í mér í smá tíma, en ég hef einmitt haft nóg að gera og því ekki fyrr en nú gert eitthvað í mínu nafni. Mér fannst nauðsynlegt að láta verða af þessu núna,“ segir hann spenntur. Hann segist vona að söfnunin fari á flug og matgæð- ingarnir láti nú til sín taka, en hann vantar aðeins herslumuninn upp á að koma plötunni í gegnum fram- leiðslu og svo út í kosmósið. „Þetta verður líklega bara gaman og kannski endum við með blá- ókunnugt fólk heima í eldhúsinu, dálítið skrítið og skemmtilegt en maður má ekki búast við neinu öðru en góðu,“ segir hann að lokum. gudrun@frettabladid.is Okkur þótti Matar- BOð sniðugt Og að það gæti Orðið gaMan að fá einhvern heiM, þetta yrði svOlítið fOrvitnilegt jafnvel. VERTU VINUR BYKO Á FACEBOOK OG TAKTU ÞÁTT! Götureiðhjól 26”, 6 gíra með brettum, bögglabera og körfu 29.695kr. 49620201 skoðaðu úrvalið á www.byko.is Hjólað á daginn, grillað á kvöldin! 109.995kr. 506600032 TRIUMPH 410 3B gasgrill, 14,4 kW,4 brennarar, JETFIRE™ kveikjukerfi, WAVE™ grillgrindur úr pottjárni, ACCU PROBE™ hitamælir. Lagið Panda með rapparanum Desiigner skaust óvænt á topp Billboard-listans núna á mánudag- inn. Þetta er óvenjulegt fyrir margar sakir; rapparinn er nær óþekktur og Panda er aðeins annað lagið hans. Laginu fylgir ekki myndband en samt e r m e i r i h l u t i h l u st u n a r á YouTube, eða tveir þriðju h e i l d a r - hlustunar. Þ e k k t n ö f n ú r rappheim- inum, eins og Drake og Future, hefur enn ekki tekist að toppa listann – Drake náði öðru sæti með smellinum sínum Hotline Bling en hann náði ekki að slá út ofurhittar- ann hennar Adele, Hello. Vinsældir Panda má líklega rekja beint til nýbakaða Íslandsvinarins Kanye West, en í laginu Pt. II af nýj- ustu plötu hans, The Life of Pablo, var Panda notað nánast óbreytt og þar var Desiigner skráður sem gest- ur. Desiigner er þar með kominn í hóp listamanna s e m h a f a n o t i ð g ó ð s a f á h r i f u m Kanye West, en hann hefur t.d. aukið vin- sældir tónlistar- mannsins Travis Scott og rapparans Big Seans með svip- uðum hætti. Panda er einnig fyrsta bandaríska lagið sem kemst á lista í 41 viku, en það er nýtt met. Á toppi listans hafa kanadískir lista- menn trónað mest allan þennan tíma en Justin Bieber og The Weeknd hafa verið áberandi og lagið Work með barbadosku söngkonunni Rihönnu hefur verið á listanum í alls níu vikur. Panda kemst óvænt á topp Billboard-listans raPParinn er nær óþekktur Og Panda er aðeins annað lagið hans. 2 7 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r24 l í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð Lífið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.