Fréttablaðið - 29.08.2015, Qupperneq 4
Hefst 8. september
BAKLEIKFIMI &
SAMBALEIKFIMI
UNDIR LEIÐSÖGN SJÚKRAÞJÁLFARA
Í HEILSUBORG, FAXAFENI 14
Þriðju- og fimmtudaga
kl: 12.05, 16.20 og 17.20
Upplýsingar og skráning á
www.bakleikfimi.is
Tölur vikunnar 22.8.2015 - 28.8.2015
Voru í fréttum
Ásökun
um vændi,
verkfallsréttur
og Björt framtíð
15.000 manns
tóku þátt í Reykjavíkur-
maraþoni Íslandsbanka
og 75 milljónir króna
söfnuðust til góðra verka.
410
12
g
ö
tu
r
í R
ey
kj
an
es
bæ
n
jó
ta
þe
ss
a
ð
þa
r e
r
ná
gr
an
na
va
rs
la
. 20% 40%
nemenda við Háskóla Íslands
kaupa skyldulesefni sitt nýtt.
470
einstaklingar bíða afplánunar
á Íslandi í dag.5/
10
ú
ti
g
a
n
g
sm
ö
n
n
u
m
se
m
le
ita
sé
r s
kj
ól
s í
G
ist
is
ký
li
er
u
fr
á
au
st
ur
-E
vr
óp
u
grunnskólanemendur
Ísafjarðarskóla fá
námsgögn sín frítt frá
bænum – sem er eins-
dæmi á Íslandi.
launamunur er á milli
leikara í Borgarleikhúsinu
og Þjóðleikhúsinu.
ausTurríki Fjórir menn hafa verið
handteknir í tengslum við rann-
sókn austurrísku lögreglunnar á láti
71 flóttamanns. Lík þeirra fundust í
yfirgefinni flutningabifreið í vegar-
kanti á fimmtudag.
Einn hinna handteknu mun vera
eigandi bílsins.
Meðal hinna látnu voru fjögur
börn, þar af þrír drengir á aldrinum
8 til 10 ára og ein stúlka á öðru ári.
Svo virðist sem fólkið hafi kafnað
og talið er að það sé frá Sýrlandi, þar
sem sýrlensk skilríki fundust í bíln-
um.
Þá virðist sem fólkið hafi reynt
að rjúfa gat á bifreiðina til þess að
komast út. Bifreiðin er talin hafa
staðið í að minnsta kosti sólarhring
hreyfingarlaus í vegarkantinum áður
en farið var að kanna málið.
Þúsundir flóttamanna frá Sýr-
landi, Erítreu og fleiri löndum í
Mið-Austurlöndum og norðanverðri
Afríku hafa látið lífið við tilraunir til
að komast til Evrópulanda, í von um
að fá þar hæli.
Langflestir þeirra hafa drukknað í
Miðjarðarhafi og síðast í gær fundust
allt að 200 lík úti fyrir ströndum Líbíu.
Fólkið hafði verið um borð í troð-
fullum bát sem hvolfdi. Talið er að
um 400 manns hafi verið í bátnum.
Rúmlega helmingi þeirra tókst að
bjarga, en um 40 lík fundust inni í
bátnum og allt að 160 lík fundust á
floti í hafinu þar í kring. Svo virðist
sem sumir hafi verið innilokaðir í
lest bátsins þegar honum hvolfdi.
Þá fundust á miðvikudag 52 lík
neðanþilja í skipi, sem sænska
strandgæslan fann úti fyrir ströndum
Líbíu. Alls voru um 500 manns á því
skipi og tókst að bjarga meira en 450
manns.
Flóttamannastraumurinn til
Fjögur börn meðal hinna látnu
✿ Fjöldi látinna flóttamanna í samanburði við aðra mannskæða atburði
Svo virðist sem flóttafólk-
ið hafi reynt að komast út
úr flutningabifreiðinni,
sem fannst yfirgefin á
fimmtudag með 71 lík
innanborðs. Fjórir menn
hafa verið handteknir. Í
gær fundust um 200 lík
úti fyrir ströndum Líbíu.
1.517
manns fórust með farþega-
skipinu Titanic árið 1912.
1.088
flóttamenn hafa drukkn-
að í Miðjarðarhafi frá
janúar 2014 til júní 2015.
Þar af létust 3.500 allt árið 2014 og 2.500 frá
janúar til júní á þessu ári.
6.000
manns fórust í flugslys-
um í heiminum öllum
árið 2014. Þar eru með-
taldir þeir sem fórust
með malasísku farþega-
þotunum í Indlandshafi
og Úkraínu.
voru drepnir í árásum
hryðjuverkamanna
í Bandaríkjunum 11.
september 2001. Þar af létust 2.606 í New York
þegar Tvíburaturnarnir hrundu.
2.977
lík fundust úti fyrir strönd-
um Líbíu í gær. Evrópusam-
bandsríki hafa verið gagn-
rýnd harðlega fyrir afstöðu
sína í málefnum flótta-
manna.
200
Evrópu er meiri nú en nokkru sinni
frá lokum seinni heimsstyrjaldar.
Vitað er um 107.500 flóttamenn sem
fóru yfir landamærin til Evrópuríkja
í síðasta mánuði.
Í Makedóníu er búist við að næstu
mánuðina muni um þrjú þúsund
manns koma yfir landamærin frá
Grikklandi daglega.
Evrópusambandsríki hafa verið
gagnrýnd fyrir að bregðast seint
og illa við þessari þróun. Andstaða
íbúa við flóttafólk hefur magnast
jafnt og þétt víða í löndum Evrópu.
Nú í vikunni hafa verið gerðar árásir
á flóttamannabúðir nánast daglega
í Þýskalandi. gudsteinn@frettabladid.is
Madalena Bernabe
Zandamela,
skólaliða í
Hafnafirði,
hefur verið
meinaður
aðgangur að
skemmtistaðnum
Loftinu vegna
ásakana starfsfólks um að hún
stundi þar vændi. Hún segist aldrei
hafa selt sig og vill hreinsa nafn sitt.
Lögmaður Madalenu hyggst senda
Loftinu bréf og fara fram á bætur og
formlega afsökunarbeiðni.
Frímann B. Baldurs-
son, varafor-
maður Lands-
sambands
lögreglumanna,
segir að
samninganefnd
ríkisins neiti að
ræða verkfallsrétt
lögreglumanna nema
að undangenginni lagabreytingu hjá
Alþingi. Landssamband lögreglu-
manna hefur óskað eftir fundi með
öllum flokkum á Alþingi með það að
markmiði að stéttin fái verkfallsrétt
að nýju.
Guðmundur Stein-
grímsson hættir
sem formaður
Bjartrar fram-
tíðar þann 5.
september
næstkomandi
þegar ársfundur
flokksins verður
haldinn í Reykjavík.
Róbert Marshall mun einnig segja
af sér sem þingflokksformaður
flokksins. Er þetta sameiginleg
ákvörðun þeirra og vilja þeir með
þessu veita öðrum svigrúm til að
stýra flokknum.
Lík flóttafólksins, sem fannst í yfirgefinni flutningabifreið í Austurríki, flutt inn á
rannsóknarstofu í Vínarborg þar sem reynt verður að varpa frekara ljósi á það sem
gerðist. NordicPhotos/AFP
2 9 . á g ú s T 2 0 1 5 l a u g a r D a g u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð