Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.08.2015, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 29.08.2015, Qupperneq 8
Reykjavíkurborg Reykjavík City grants Granty Miasta Reykjavík Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2016. Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka: • félags- og velferðarmála • skóla- og frístundamála • íþrótta- og æskulýðsmála • mannréttindamála • menningarmála • markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð • hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf • hvort unnt sé að meta framvindu verksins • hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur • væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi • fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undirgangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun nefnda og ráða verði lokið í ársbyrjun 2016. Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má senda á netfangið: styrkir@reykjavik.is More information: styrkir@reykjavik.is Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is Styrkir Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/styrkir www.reykjavik.is Á www.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli. Einnig er þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari upplýsingar um áherslur borgarinnar í einstökum málaflokkum. Umsóknarfrestur er til kl. 12:00 á hádegi 1. október nk. og eru einungis teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Við mat á umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um styrki og mannréttindastefna Reykjavíkurborgar vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Þá eru styrkir allajafna hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu fasteignagjalda. Umsóknir verða metnar með hliðsjón af eftirfarandi: 1 hreindýr 135.000 kr 8.000 kr 50.000 kr 16,8 hrefnur 2,7 langreyðar ✿ Kostnaður við veiðar bandaríKin Þessa dagana minnast margir þess að tíu ár eru liðin frá því að fellibylurinn Katrín skall með fullum þunga á New Orleans í Bandaríkj­ unum. Fellibylurinn sjálfur olli gífur­ legum skemmdum þegar hann kom á land þann 29. ágúst 2005, en ástandið versnaði snögglega þegar varnarveggir gáfu sig undan afli sjávar. Barack Obama kom til New Orleans síðastliðinn fimmtudag og ræddi við borgarbúa af þessu tilefni. Obama sagði í ræðu sinni að fellibylurinn hefði opinberað misréttið sem hafði gerjast í áratugi. „New Orleans hefur í áratugi verið illa haldin af ójöfnuði,“ sagði forsetinn. „Ójöfnuði sem hefur skilið of margt fólk, sérstaklega fátækt fólk og svarta, eftir atvinnulaust eða án heilsugæslu eða góðs húsnæðis. Of mörg börn hafa alist upp umkringd ofbeldisglæpum þar sem þeim hefur boðist slæm menntun og fá þeirra hafa haft tækifæri til að brjótast úr viðjum fátæktar.“ Bandarísk stjórnvöld voru harð­ lega gagnrýnd fyrir aðstoðina sem var veitt þegar fellibylurinn fór yfir New Orleans. Neyðaraðstoð og hjálpar­ gögn bárust seint og illa, gripdeildir, þjófnaðir og óeirðir blossuðu upp eftir fellibylinn og skálmöld ríkti á götum borgarinnar. Endurbygging borgarinn­ ar varð einnig mjög kostnaðarsöm og mörgum íbúum New Orleans fannst hún ganga of hægt. Rétt eins hefur gagnrýnin verið á þá leið að uppbygg­ ing borgarinnar hafi að mestu leyti verið í þágu hvítra íbúa á kostnað svartra. Ójöfn staða kynþátta í New Orleans eftir fellibylinn hefur verið í umræðunni um nokkurt skeið og að mörgu leyti varpað ljósi á skuggahliðar bandarísks samfélags. Bandarískt þjóð­ félag hefur á síðustu misserum þurft að takast á við vandamál kynþáttahyggju sem öllum virðast vera ljós. Lögregluof­ beldi gegn svörtum drengjum og aftaka lögreglumanns á Michael Brown, þel­ dökkum unglingi í Ferguson, vakti bandarískt samfélag svo um munaði. Um 80 prósent borgarinnar urðu sjónum að bráð og voru götur borgar­ innar sums staðar á sex metra dýpi. Alls létu 1.883 lífið af völdum fellibylsins, þar af langflestir í New Orleans. Talið er að tjón vegna Katrínar hafi numið um 150 milljörðum dala, sem samsvar­ ar um 19.500 milljörðum króna. – sa Forseti Bandaríkjanna segir Katrínu hafa opinberað ójöfnuðinn Barack Obama og Mitch Landrieu, borgarstjóri New Orleans, heimsóttu íbúa á meðan á dvöl Obama stóð. Nor- dicPhotos/AFP Veiði Veiðigjöld verða sett á veiddan hval í fyrsta skipti á næsta fiskveiðiári. 8.000 krónur mun kosta að veiða hrefnu og veiðigjöld á hverja langreyði verða 50.000 krónur. Að sama skapi kostar það íslenska veiðimenn 135.000 krónur að veiða hreindýrstarf á yfirstandandi hreindýraveiðitímabili. Því geta hvalveiðimenn veitt sem samsvarar nærri 17 hrefnum fyrir and­ virði hreindýrstarfs og tæplega þrjár langreyðar þarf að veiða til að ná upp í veiðileyfið. Dúi Landmark, formaður Skotvís, segir þennan samanburð sýna að heildrænnar stefnu í nýtingu og veiðistýringu nytjastofna á Íslandi sé þörf. „Í þessu tilfelli hallar verulega á skotveiðimenn í þessum samanburði og það er ekkert nýtt. Það er eitthvað sem við höfum fengið að kynnast á síðustu árum. Stjórnvöld virðast vilja líta svo á að hægt sé að leggja hærri og hærri gjöld á veiðimenn því þeir eru í þessu sem áhugamáli,“ segir Dúi. „Það sem þessi verðlagning sýnir er að það er gríðarlegt misræmi yfirhöfuð hjá stjórnvöldum þegar kemur að veiðistýringu. Það er engin heildræn stefna stjórnvalda til í nýtingu nytjastofna og við hjá Skotvís höfum kallað eftir slíkri stefnu.“ Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG, telur veiðarnar á hval við Íslands­ strendur tímaskekkju og telur mikil­ vægt að þeim verði hætt án tafar þar sem þær skaði aðra ríkari hagsmuni. „Í greinargerð með frumvarpi sjávar­ útvegsráðherra segir að ekki sé unnt að reikna veiðigjöld á hval með sama hætti og gjöld á aðra nytjastofna vegna þess að ekkert markaðsverð er fyrir hendi um verðmæti hvals við löndun. Virðis­ aukaskattur af hvalaskoðun er umtals­ verð tekjulind fyrir ríkissjóð og væri nær að líta til þess sem tekjulindar af hval á Íslandi. Þessar tölur sem hér eru ræddar ýta enn frekar stoðum undir þá skoðun að hvalveiðar við Ísland séu tímaskekkja og beri að leggja af,“ segir Svandís. „Samanburðurinn við hvalveiðar sýnir enn fremur fáránleika veiðigjaldanna." Jón Gunnarsson, formaður atvinnu­ veganefndar Alþingis, telur hins vegar ekki hægt að bera þessar veiðar saman. „Það eru til verðmæti fyrir flestallar teg­ undir sem við nýtum úr sjó við löndun í gegnum fiskmarkaði. Þar verður verðmætið til. Hvalur hefur ekki verið á fiskmörkuðum heldur fer til vinnslu hjá þeim aðilum sem eru að veiða og því erfitt að gera sér grein fyrir verðmæt­ unum. Erfitt er að bera þetta saman við hreindýraveiðar. Eins má segja að veiði­ leyfi á laxi séu dýr,“ segir Jón. sveinn@frettabladid.is Sautján hvalir fyrir sama verð og eitt hreindýr Veiðigjald á hverja veidda hrefnu nemur átta þúsund krónum en skotveiðimenn greiða 135.000 krónur fyrir hvern hreindýrstarf. Formaður Skotvís kallar eftir heildrænni stefnu stjórnvalda. Það kostar átta þúsund krónur að veiða hrefnu. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks 2 9 . á g ú s t 2 0 1 5 L a U g a r d a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.