Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 18

Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 18
Helgin 2 9 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R Verkið fjallar um það að vera ung-lingsstelpa og er flutt og samið af unglingsstelpum. Ég samdi það með þeim en þær flytja það,“ segir dansarinn og danshöfund- urinn Ásrún Magnúsdóttir um verkið GRRRRRLLLLSSS. Verkið verður frum- sýnt í dag í Gamla bíói og er hluti af Reykjavík Dance Festival sem stendur yfir fram á sunnudag. Unglingsárin eru höfundinum hugleikin enda segir hún þetta vera spennandi aldur þar sem maður er ekki lengur barn en ekki orð- inn fullorðinn, í einhvers konar milli- bilsástandi. „Þetta er óður til unglingsáranna,“ segir Ásrún. „Verkið er fyrir allar ung- lingsstelpur í dag, allar konur sem hafa verið unglingsstelpur, allar stelpur sem eiga eftir að vera unglingsstelpur. Og alla menn sem verða aldrei og hafa aldrei verið unglingsstelpur.“ Hugmyndin kviknaði hjá Ásrúnu í vetur og var hennar eigin reynsla af ung- lingsárunum henni einnig hugleikin, auk þess sem hún hafði verið að kenna unglingsstúlkum dans í Listdansskóla Íslands en Ásrún er útskrifaður dansari frá Listaháskóla Íslands og hefur sett upp nokkur dansverk. „Ég var líka mikið að hugsa þetta út frá því að það er búin að vera svo mikil femínísk bylgja í gangi á Íslandi,“ segir hún og vísar þar í Beauty tips- byltinguna og Freethenipple þar sem konur á öllum aldri losuðu sig við skömmina. Hún vildi vita hvort ung- lingsstelpur væru að velta fyrir sér bylt- ingunum og skilaboðum þeirra. „Mig langaði að sjá hvernig er fyrir yngri stelpurnar að verða fyrir þeim. Þær eru ekki komnar úr að ofan á Twitter, eru ekki í Reykjavíkurdætrum eða eitthvað þannig. Mig langaði að vita hvað þær hefðu að segja um þetta og hvernig þær upplifðu þetta,“ segir hún. Og hvernig upplifðu þær þessa bylt- ingu? „Þær eru að vissu leyti mjög með- vitaðar en að öðru leyti ekki. Mér fannst það jákvætt því þær finna ekki fyrir því sérstaklega að þær þurfi að berjast fyrir því að vera konur enda eru þær þarna mitt á milli, enn börn í rauninni. En þær eru samt líka baráttukonur.“ Í vor auglýsti Ásrún því eftir ung- lingsstelpum til þess að skapa dansverk með henni. Viðbrögðin voru vonum framar  –  um fimmtíu stelpur á aldr- inum 13–16 ára komu, allar máttu vera með en einhverjar duttu úr hópnum og tuttugu standa eftir. Í sameiningu sömdu þær verkið sem þær sýna í dag. Stelpurnar eru með mismunandi bak- grunn, sumar hafa æft dans og aðrar ekki. „Sumar hafa aldrei dansað  eða komið fram. Þetta er skemmtileg blanda. Það er heilmikið afrek að standa á sviði í heilan klukkutíma.“ Verkið verður sýnt tvisvar í dag, laugar dag. Fyrri sýningin er klukkan 15 og sú seinni klukkan 19. Stelpurnar taka völdin Unglingsstelpur sölsa undir sig sviðið í Gamla bíói með dansverki sem þær sömdu sjálfar. Fréttablaðið/Vilhelm Ásrún og ung- lingsstelpurnar tjá unglingsárin í dansi í sýningunni GRRRRRLLLLSSS. Aðalstræti 10 ( 2.hæð Kraum ) Júniform opnar sérverslun í Aðalstræti 10 ( 2.hæð Kraum ) Opnunartímar: Mán-föst 11-18 laugardagar 10 -17 sunnudagar 12-17 Verkið fjallar um það að Vera unglingsstelpa og er flutt og samið af unglingsstelpum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.