Fréttablaðið - 29.08.2015, Síða 18
Helgin 2 9 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R
Verkið fjallar um það að vera ung-lingsstelpa og er flutt og samið af unglingsstelpum. Ég samdi það með þeim en þær flytja
það,“ segir dansarinn og danshöfund-
urinn Ásrún Magnúsdóttir um verkið
GRRRRRLLLLSSS. Verkið verður frum-
sýnt í dag í Gamla bíói og er hluti af
Reykjavík Dance Festival sem stendur
yfir fram á sunnudag. Unglingsárin eru
höfundinum hugleikin enda segir hún
þetta vera spennandi aldur þar sem
maður er ekki lengur barn en ekki orð-
inn fullorðinn, í einhvers konar milli-
bilsástandi.
„Þetta er óður til unglingsáranna,“
segir Ásrún. „Verkið er fyrir allar ung-
lingsstelpur í dag, allar konur sem hafa
verið unglingsstelpur, allar stelpur sem
eiga eftir að vera unglingsstelpur. Og alla
menn sem verða aldrei og hafa aldrei
verið unglingsstelpur.“
Hugmyndin kviknaði hjá Ásrúnu í
vetur og var hennar eigin reynsla af ung-
lingsárunum henni einnig hugleikin,
auk þess sem hún hafði verið að kenna
unglingsstúlkum dans í Listdansskóla
Íslands en Ásrún er útskrifaður dansari
frá Listaháskóla Íslands og hefur sett
upp nokkur dansverk.
„Ég var líka mikið að hugsa þetta
út frá því að það er búin að vera svo
mikil femínísk bylgja í gangi á Íslandi,“
segir hún og vísar þar í Beauty tips-
byltinguna og Freethenipple þar sem
konur á öllum aldri losuðu sig við
skömmina. Hún vildi vita hvort ung-
lingsstelpur væru að velta fyrir sér bylt-
ingunum og skilaboðum þeirra.
„Mig langaði að sjá hvernig er fyrir
yngri stelpurnar að verða fyrir þeim.
Þær eru ekki komnar úr að ofan á
Twitter, eru ekki í Reykjavíkurdætrum
eða eitthvað þannig. Mig langaði að vita
hvað þær hefðu að segja um þetta og
hvernig þær upplifðu þetta,“ segir hún.
Og hvernig upplifðu þær þessa bylt-
ingu? „Þær eru að vissu leyti mjög með-
vitaðar en að öðru leyti ekki. Mér fannst
það jákvætt því þær finna ekki fyrir því
sérstaklega að þær þurfi að berjast fyrir
því að vera konur enda eru þær þarna
mitt á milli, enn börn í rauninni. En þær
eru samt líka baráttukonur.“
Í vor auglýsti Ásrún því eftir ung-
lingsstelpum til þess að skapa dansverk
með henni. Viðbrögðin voru vonum
framar – um fimmtíu stelpur á aldr-
inum 13–16 ára komu, allar máttu vera
með en einhverjar duttu úr hópnum
og tuttugu standa eftir. Í sameiningu
sömdu þær verkið sem þær sýna í dag.
Stelpurnar eru með mismunandi bak-
grunn, sumar hafa æft dans og aðrar
ekki. „Sumar hafa aldrei dansað eða
komið fram. Þetta er skemmtileg
blanda. Það er heilmikið afrek að standa
á sviði í heilan klukkutíma.“
Verkið verður sýnt tvisvar í dag,
laugar dag. Fyrri sýningin er klukkan 15
og sú seinni klukkan 19.
Stelpurnar
taka völdin
Unglingsstelpur sölsa undir sig sviðið í Gamla
bíói með dansverki sem þær sömdu sjálfar.
Fréttablaðið/Vilhelm
Ásrún og ung-
lingsstelpurnar
tjá unglingsárin í
dansi í sýningunni
GRRRRRLLLLSSS.
Aðalstræti 10 ( 2.hæð Kraum )
Júniform
opnar sérverslun
í Aðalstræti 10
( 2.hæð Kraum )
Opnunartímar:
Mán-föst 11-18
laugardagar 10 -17
sunnudagar 12-17
Verkið fjallar um það
að Vera unglingsstelpa
og er flutt og samið af
unglingsstelpum.