Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 28

Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 28
V ið vissum að í þessum hóp var fullt af hæfileika­fólki. Hugmyndin var fyrst og fremst sú að skapa far­veg fyrir þessar raddir,“ segir Rúnar Guð brandsson leikstjóri sem ásamt Ilmi Kristjáns­ dóttur stofnaði Heimilislausa leik­ húsið Ethos sem setti upp sýninguna Verð að heiman í dag, á Menningar­ nótt. Sýningin var fjölbreytt sam­ suða ýmissa listforma, farið var með ljóð, sungið, leikið og dansað. Leikararnir eiga það allir sam­ eiginlegt að vera utangarðs í sam­ félaginu, heimilislausir, hælisleit­ endur, flóttafólk, sumir hafa glímt við áfengisvandamál, geðsjúkdóma eða langtímaatvinnuleysi. Hug­ myndin að leikhúsinu kviknaði í vor en bæði hafa þau Rúnar og Ilmur lengi haft áhuga á því að vinna að list með utangarðshópum í samfélaginu. Vinna gegn fordómum „Við ákváðum bara að kýla á þetta og sjá hvort þetta myndi ganga hér á Ís­ landi,“ segir Rúnar. Viðbrögðin voru góð og fjölmargir vildu taka þátt. Og ekki skorti hugmyndirnar. „Þetta eru raddir sem kannski heyrast ekki alla jafna. Okkur langaði bara að búa til leikhóp fyrir þetta fólk. Þarna er fullt af hæfileikum og það er búið að vera alveg frábært að vinna þetta,“ segir hann. Þátttakendurnir komu sjálfir með hugmyndir að því hvað þeir vildu gera í sýningunni. „Það lögðu allir sitt í púkkið og svo var valið úr. Í hópnum eru miklir hæfileikar og við hefðum getað gert miklu meira. Það er til dæmis einn í hópnum sem er mikill myndlistar­ maður og við höfðum hugsað okkur að blanda myndlistinni inn á ein­ hvern hátt en það var bara ekki tími til þess. Sumir áttu ljóð eða texta sem voru mjög góðir. Við völdum bara úr en það var miklu meira efni þarna,“ segir hann. Fæstir sem tóku þátt höfðu kom­ ið fram áður og flestir eru  í þannig stöðu að eiga kannski ekki auðvelt með að finna vettvang fyrir list­ sköpun sína. Rúnar segist hafa lært margt um stöðu þessara jaðarhópa á vinnunni í sumar. „Það er líka kannski svolítið hug­ myndin með þessu, að vinna gegn fordómum. Þú sérð eitthvert fólk og stimplar það. En allir hafa einhverja sögu og það eru ástæður fyrir öllu. Það er fegurðin sem býr í öllu fólki að einhverju leyti og allir hafa eitt­ hvað fram að færa.“ Gefandi á alla kanta Rúnar segir það hafa verið gefandi á alla kanta að taka þátt í þessari vinnu. Þó að mörg úrræði séu fyrir þennan hóp þá vanti oft upp á eitthvað til að næra andlegu hliðina. Að fólk hafi eitt­ hvað fyrir stafni og geti gefið af sér. Það hafi þó aldrei verið ætlunin að bjarga neinum og ekki gengið út frá því. Allir eiga sér sína sögu Rúnar segir vinnuna við leikhúsiö hafa verið gefandi á alla kanta og vonast til að verði áframhald á starfinu. Fréttablaðið/Ernir Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is Rúnar Guðbrandsson segir það hafa verið gefandi vinnu að setja upp leikrit með utangarðsfólki. Hann vonast til þess að hægt verði að starf- rækja Heimilislausa leikhúsið áfram enda sé mikill áhugi og þörf fyrir það. „Þetta var góð upplifun og gaman að geta gefið af sér,“ segir Davíð Ingi sem tók þátt í sýningunni. Davíð hefur verið á götunni meira og minna frá 18 ára aldri. Hann er núna 39 ára, hefur verið edrú í nokkra mánuði, kom úr fangelsi fyrir nokkrum mánuðum og býr á áfangaheimili. Davíð spilaði frum- samið lag og fór með gamanmál á sýningunni. Hann segir æfingarnar hafa gengið vel og að það hafi verið gaman að sýna á Menningar- nótt þótt hann hafi verið nokkuð orkulaus eftir æfingarnar og stritið við að reyna að koma sér á beinu brautina. Hann segir það vera erfitt þar sem lítið sé af úrræðum sé fyrir þá sem eru nýkomnir úr fangelsi líkt og hann. „Maður rekst á veggi alls staðar.“ Góð upplifun að taka þátt Líf í æðarnar „Ég fékk alveg líf í æðarnar út af þessu,“ segir Herbert Marinósson sem tók þátt í sýningunni. Hann hefur verið á götunni meira og minna í átta ár en Herbert er 73 ára gamall og segist enga heilsu hafa til þess að vera á götunni. Hann sefur í Gistiskýlinu en hefst við í miðbænum yfir daginn. „Það var fyrir röð tilviljana að ég datt inn í þetta.“ Hann las upp ljóð á sýningunni. „Það kemur frá kórunum, ég hef svo þjálfaða rödd,“ segir Herbert sem hefur sungið í heilmörgum kórum í gegnum tíðina. Hann segir samstarfið í hópnum hafa gengið alveg prýðilega og að það hafi verið skemmtilegt að hafa eitthvað fyrir stafni yfir daginn. „Þetta var ekki mikið æfingatímabil en það var aðallega það að ég þurfti að hafa þolinmæði til að hlusta á aðra,“ segir Herbert. Davíð Ingi og Herbert tóku þátt í sýningunni „Margt af þessu fólki hefur verið mjög einangrað lengi. Bara það að koma og hitta fólk og finna til­ gang skiptir máli. Það sem þau eiga kannski að mestu sameiginlegt, þótt þau séu ólík um margt er að þau hafa tíma. Með þessu geta þau gefið tímanum gildi, verið að vinna að einhverju. Það  er mjög gefandi að vinna á skapandi hátt og búa eitthvað til,“ segir hann og heldur áfram. „Það er líka mikilvægt fyrir margt fólk í þessari stöðu að stíga það skref að fara að gefa, að vera ekki alltaf í hlutverki þiggjandans eða eins og við sjáum það utan frá. Þetta er fólk sem hefur fullt að gefa líka.“ Miklir fordómar Í hópnum er meðal annars að finna útigangsmanninn Herbert sem hefur verið á götunni í átta ár. Hann er 73 ára en yngsti þátttakandinn er um tvítugt. Þarna komu því saman allir aldurshópar. Æfingatímabilið gekk vel þó að á ýmsu hafi gengið. Sumir komu og fóru en kjarnahópurinn hélst nánast allan tímann og það var hópurinn sem sýndi tvær sýningar fyrir fullu húsi í samkomusal Hjálp­ ræðishersins á Menningarnótt. Röðin inn á sýningarnar náði langt út á Austurvöll og færri komust að en vildu. Rúnar segir mikla fordóma ríkja í samfélaginu gagnvart þessum jaðarhópum. „Ég held að það þurfi að hugsa öll þessi mál svolítið upp á nýtt. Alkóhólismi og fíkn eru heilsufarsleg vandamál en það eru ofboðslegir fordómar gagnvart þessu öllu. Líka geðsjúkdómum, langtímaatvinnuleysi og þessu öllu. Fordómaveggurinn er mjög erfiður. Það er alltaf ástæða fyrir því að fólk lendir í þessari stöðu. Öll erum við manneskjur og það var kannski svolítið flöturinn sem við vildum að kæmi í gegn með þessari sýningu. Hvað þetta fólk hefur að segja og hvað það hefur fram að færa. Það þarf viðhorfsbreytingu varðandi þessi mál.“ Vonast til að halda áfram Rúnar segist vonast til þess að hægt  verði að starfrækja leikhúsið áfram í einhverri mynd. Það sé mikill áhugi á meðal leikaranna en líka almennings en færri komust að en vildu á sýningarnar á Menn­ ingarnótt. „Okkur langar mjög mikið til að halda þessu áfram og það er greini­ lega mikil þörf fyrir það. Það er mikill áhugi í þessum hóp fyrir að gera meira. Það þarf þá einhvern veginn að finna því farveg, það er ekki endalaust hægt að vinna við engin skilyrði. Við unnum þetta þannig séð bara í sumar í sjálfboða­ vinnu launalaust. Hjálpræðisherinn reyndist okkur mjög vel í sambandi við húsnæði. En næsta skref væri kannski að reyna að finna þessu einhvern farveg og byggja upp ein­ hvern strúktúr í kringum þetta. Við vonum að við getum haldið þessu áfram.“ Þetta eRu RaddiR sem kannski heyRast ekki aLLa jafna. OkkuR LanG- aði baRa að búa tiL Leik- hóp fyRiR Þetta fóLk. 2 9 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R28 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.