Fréttablaðið - 29.08.2015, Síða 38
Fólk|
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig
hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir
Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@365.is, s. 512 5429
förum út í þetta algerlega samstiga og
kaffihúsið yrði staðsett í götunni okkar,
þetta gæti ekki verið þægilegra,“ segir
Andri.
Tónleikar Fram undan
og nýjar plöTur
Tónlistin leikur þó enn sem komið er
stærsta hlutverkið í daglegu lífi Andra.
Hljómsveit hans, Moses Hightower, æfir
stíft þessa dagana fyrir tónleika sem fram
undan eru í september, fimmtudaginn 3.
september á Húrra og þann 4. á Græna
hattinum, og á Karolina Fund hefur
hann sett í gang söfnun fyrir plötuútgáfu
annarrar hljómsveitar sem hann spilar í,
hinni fjölþjóðlegu Secret Swing Society.
„Við í Secret Swing Society tókum upp
plötu í febrúar með að meirihluta frum-
sömdu efni og einu lagi á íslensku, Glans,
sem Björgvin Halldórsson syngur og
er búið að vera í spilun í útvarpi. Fyrr í
vikunni ýttum við af stað söfnun á Kar-
olina Fund fyrir útgáfu plötunnar, og hún
kemur vonandi út fyrir jólin. Núna um
helgina gröfum við félagarnir í Moses
Hightower okkur niður í Orgelsmiðjunni
að vinna í okkar plötu. Við erum að klára
nokkur lög, en það er þó næg vinna eftir
enn. Þetta er langhlaup hjá okkur þar sem
meðlimir hljómsveitarinnar eru ekki allir
búsettir á landinu, og við verðum fram á
næsta ár að klára plötuna. Steini er heima
núna í fríi frá Of Monsters and Men túr
og við reynum að nýta tímann vel meðan
hann er heima. Þeir eru samt að verða al-
veg brjálaðir á mér því ég er með hugann
við kaffihúsið allan daginn,“ segir Andri.
bakrödd hjá STuðmönnum
Andri lærði á klarínett og píanó sem barn
og segist alltaf hafa verið á kafi í tónlist.
Á menntaskólaárunum færðist meiri al-
vara í leikinn, hann söng í Hamrahlíðar-
kórunum, leiddist út í bassaleik gegnum
djassspilamennsku kórfélaga sinna og
fáum árum síðar varð Moses Hightower
til. Bassinn er hans aðalhljóðfæri en hann
stundaði tónlistarnám úti í Amsterdam
í fjögur ár, þar sem hann lærði á kontra-
bassa.
„Ég vinn við tónlist alla daga og fyrir
utan Moses og Secret Swing hef ég verið
að spila alls konar lausaleiksgigg með
hinum og þessum. Núna síðast tók ég,
merkilegt nokk, mitt fyrsta bakraddagigg
með Stuðmönnum á tónleikum í Eld-
borg og aftur á Menningarnótt. Það var
skemmtilegt. Ég gef mig ekki sérstaklega
út fyrir að vera bakraddasöngvari en það
er hægt að plata mig út í ýmislegt,“ segir
Andri.
Áttu þér uppáhaldstónlistarmann?
„Í raun ekki, þetta er ekki svo einfalt
mál. Ég hlusta á alls konar tónlist og sumt
af því sem ég hlusta á heyrist í tónlistinni
sem ég tek þátt í að skapa í dag en annað
ekki. Núna hlusta ég helst á dóttur mína
syngja. Ég reyni að ala hana upp á trefja-
ríkri tónlist.“
Flúði FjóSalykTina
Andri er Rangæingur, ólst upp á kúabúi
í Austur-Landeyjum ásamt þremur
bræðrum og gekk í skóla á Hvolsvelli.
Hann yfirgaf þó sveitina snemma og flutti
til Reykjavíkur.
„Ég flutti í bæinn 14 ára og hef verið
þar síðan. Móðir mín er enn þá kúabóndi,
núna á Skeiðunum, og ég fer reglulega í
sveitina. Það er þó of djúpt í árinni tekið
að kalla mig sveitamann. Bústörf eiga
ekkert sérstaklega vel við mig og það
var alveg ástæða fyrir því að ég flutti til
Reykjavíkur,“ segir hann og hlær. „Það er
frábært að hafa aðgang að sveitinni til að
slaka á. En ég er voða feginn að þurfa ekki
að vera skítugur upp að öxlum úti í fjósi.
En ég mun vissulega vinna áfram með
mjólkurafurðir, á kaffihúsinu.“
n heida@365.is
á kaFi í TónliST Andri lærði á kontrabassa í fjögur ár úti í Amsterdam og
bassinn er hans aðalhljóðfæri. Hann spreytti sig á bakraddasöng með Stuð-
mönnum á Menningarnótt. Mynd/GVA
borgar-
barn
„Bústörf eiga
ekkert sérstak-
lega vel við mig
og það var alveg
ástæða fyrir því
að ég flutti til
Reykjavíkur.”
Vörurnar frá Sólgæti eru hollar og
góðar fyrir sælkera á öllum aldri sem
vilja gera vel við sig. Líttu í kringum
þig í næstu verslun. Þú kemur eaust
auga á eitthvað ljómandi gott.
H E I L N Æ M T O G
N Á T T Ú R U L E G T
LJÓMANDI
GOTT
solgaeti.isheilsa.is