Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 90
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Valur Waage
Lindarseli 5,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
gjörgæsludeild Landspítalans 20. ágúst
síðastliðinn. Útförin fer fram frá Lindakirkju
í Kópavogi mánudaginn 31. ágúst kl. 15.
Helena Ásdís Brynjólfsdóttir
Guðrún Lind Valsdóttir Waage Smári Arnarsson
Stefanía Lind Stefánsdóttir Waage Bjarki Stefánsson
Stefán Valur Stefánsson
Ásdís Halldóra Lind Stefánsdóttir Waage
Stefán Stefánsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
Systir mín og mágkona, móðursystir
okkar og föðursystir,
Helga Ingólfsdóttir
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund 18. ágúst. Útförin var gerð í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Starfsfólki
Foldabæjar og Grundar færum við þakkir
fyrir kærleiksríka umönnun.
Árni Ingólfsson Margrét Jónsdóttir
Ólöf, Þórarinn, Sigrún og Ingólfur Eldjárn
Steinunn og Ólöf Þorvarðsdætur
Ingólfur, Jón, Marta og Helga Árnabörn
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Agnars B. Óskarssonar
Breiðuvík 37,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 11E á
Landspítalanum við Hringbraut og starfsfólk
heimahlynningar og heimahjúkrunar fyrir frábæra
umönnun, einstaka nærgætni og hlýhug á erfiðum
stundum.
Þóra Guðjónsdóttir
Hjördís Agnarsdóttir
Rannveig Agnarsdóttir Ólafur Finnbogason
Tryggvi Agnarsson Inga Jóna Ævarsdóttir
Brynja Agnarsdóttir Guðfinnur Þór Newman
Lena Haraldsdóttir Sveinn Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir,
Sigmundur Bergur
Magnússon
ullarmatsmaður í Hveragerði,
lést föstudaginn 21. ágúst. Útför
hans fer fram frá Hveragerðiskirkju
þriðjudaginn 1. september kl. 14.00.
Kristjana Sigmundsdóttir Þorlákur Helgi Helgason
Sigurveig Sigmundsdóttir Sveinn Guðmundsson
Guðmundur Ingi Sigmundsson Sigríður Á. Pálmadóttir
barnabörn og fjölskyldur.
„Ég lét hafa mig í formennsku og þetta er
fyrsta árið mitt. Mér skilst það séu ekki
margar konur sem gefa sig í slík embætti,
hvorki hér né í nágrannalöndunum,“ segir
Kolbrún Stefánsdóttir, eina konan sem
hefur gegnt formennsku í Landssamtök-
um eldri kylfinga í þrjátíu ára sögu þeirra.
„Starfið gengur út á að halda golfmót
hér og þar fyrir eldri kylfinga. Við erum
með níu móta röð á hverju ári þar sem
fólk keppir til landsliðs. Núna eru til
dæmis konur að fara til Litháen að keppa
á Evrópumóti eldri kylfinga,“ lýsir Kol-
brún þegar hún er spurð út í markmið
samtakanna.
Kolbrún segir um fjögur landslið að
ræða; fyrir konur yfir 50 ára aldri, karla
55 ára og eldri með forgjöf, karla á sama
aldri án forgjafar og karla 70 ára og eldri.
„Með því að taka þátt í þessum níu mótum
okkar, þar sem sex bestu hringirnir telja,
komast þeir sex bestu áfram í landsliðin.“
Eldri kylfingar eru ekki með sérstakan
golfvöll heldur fá lánaða velli. Það krefst
skipulagningar. „Aðalvinnan er að útvega
velli og styrktaraðila,“ segir Kolbrún og
tekur fram að mörg góð fyrirtæki styrki
mótin. „Starfið snýst líka um að velta
hverri krónu mörgum sinnum til að láta
enda ná saman. Við söfnum ekki fé, aðal-
málið er að halda starfseminni gangandi.“
Um sjö þúsund manns eru í Landssam-
tökum eldri kylfinga að sögn Kolbrúnar.
Hún segir allt of fáar konur þar og kveðst
vilja sjá miklu fleiri. „Vandinn við okkur
konurnar er að við höldum að við þurfum
að vera svo góðar. En allir sem koma einu
sinni á mót hjá okkur koma aftur því þau
eru svo skemmtileg.“
Kolbrún segir aldrei of seint að byrja í
golfi. „Auðvitað er yngra fólk fljótara að
tileinka sér hreyfingarnar en ég veit um
fólk sem er nýhætt að vinna og byrjaði í
golfi fyrir fjórum, fimm árum, það er að
keppa um að komast inn í næsta landslið.
Þetta fer allt eftir ástundun og áhuga og
Landssamtök eldri kylfinga er voða góður
félagsskapur.“
Nú er Kolbrún að komast í tímaþröng
því hún á pantaða golfbraut eftir hálftíma.
Hversu títt skyldi hún heimsækja völlinn?
„Ég fer þrisvar til fimm sinnum í viku ef
vel viðrar.“
gun@frettabladid.is
Lét hafa sig í formennsku
Landssamtök eldri kylfinga eru þrítug í ár. Kolbrún Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Heyrnarhjálpar, er formaður þeirra, fyrst kvenna, og vill sjá fleiri eldri konur í golfi.
Landssamtök
eldri kylfinga
Aðild að LEK eiga allir golfiðkendur sem
eru félagar í golfklúbbum sem starfa innan
GSÍ og hafa náð lögaldri eldri kylfinga sem
er nú 50 ára en hvað þátttöku í landsliði
varðar er viðmiðið hjá konum 50 ára og 55
ára hjá körlum.
„Ég fer á völlinn þrisvar til fjórum sinnum í viku ef vel viðrar,“ segir Kolbrún. Fréttablaðið/GVA
TímamóT 2 9 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R