Fréttablaðið - 29.08.2015, Síða 96
Bragi Halldórsson
163
A A Á
S S I
R R Æ
Getur þú raðað þessum stöfum
þannig, að fram komi, þriggjastafa
kvenmannsnafn, karlmannsnafn og
orð yfir haf, hvort sem lesið er
lóðrétt eða lárétt?
„Nú segi ég bara eins og Róbert, hvaða stafasúpa er
nú þetta?“ sagði Kata þegar hún sá næstu þraut.
Lísaloppa horfði á þrautina drykklanga stund. „Ég skil
þetta núna,“ sagði hún sigri hrósandi. „Það á að raða
þessum stöfum, þremur í þrjár línur eins og sýnt er,
nema að stafirnir verða að vera í annarri röð svo hægt
sé að lesa út úr þeim lausnarorðin.“ „ Nú, nú,“ var það
eina sem Kata sagði. Svo bætti hún við, „blíant og blað!“
Það vantar ekki keppnisskapið í Kötu.
Krakkar, getið þið sagt okkur
frá einhverjum ævintýrum
sem þið hafið lent í, í sveitinni
í sumar? Arney og Ísak Már: „Já,
við fórum til dæmis í dagsferð út
í Árnesey að tína dún með bænd-
unum og fjölskyldum okkar.
Þar fundum við fullt af dóti á
rekanum sem við tókum með
okkur í land og settum í kofann
okkar sem er eiginlega líka hellir.
Í þessari ferð fundum við flösku
með skeyti í.“
Sáuð þið strax að eitthvað var í
flöskunni? „Já, við sáum strax að
það var upprúllað blað í flösk-
unni og fórum að rannsaka það.“
Var erfitt að ná því úr? „Nei,
skítlétt!“
Vitið þið hver sendi það? „Það
var frá einhverjum Niels sem
hafði grafið fjársjóð í sandkassa í
„fjöldaborg“. Hann sagði reyndar
ekkert hvar hann væri eða hve-
nær hann sendi skeytið.“
Hvað gerðuð þið svo…? „Tókum
skeytið með okkur heim og
reyndum að leita að staðnum
á netinu. Okkur langar svo að
finna fjársjóðinn og þess vegna
erum við að leita að Niels.“
Hafið þið oft farið á sjó? „Já,
mörgum sinnum.“
En hafið þið prófað að senda
flöskuskeyti? „Já, við höfum
prófað það en við höfum aldrei
fengið neitt svar til baka.“
Ísak Már og Arney úti í Árneseyju á Ströndum með flösku sem inniheldur spennandi upplýsingar. Mynd/Davíð Már Bjarnason
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Þegar þær eru spenn-
andi og maður festist í sögunni
og getur ekki hætt að lesa.
Hvaða bók lastu síðast og
um hvað var hún? Me and my
brothers, hún er um 14 ára stelpu
sem missti mömmu sína og
stjúppabba í bílslysi þegar hún
var lítil. Hún býr með fjórum
hálfbræðrum sínum sem eru allir
mjög ólíkir og hjálpa henni að
takast á við tilfinningar sínar á
unglingsárunum og einmana-
leikann vegna þess að hún á enga
foreldra og man lítið eftir þeim.
Hvaða bók lastu á undan? Öddu
eftir Jennu og Hreiðar.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
Tell me something happy before
I go to sleep.
Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar? Spenn-
andi bækur, þar sem fólk hittir
geimverur og eitthvað hræðilegt
gerist.
Í hvaða skóla gengur þú? Fella-
skóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Já,
frekar oft.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Að horfa á skemmtilega þætti, fara
í sund, lesa, teikna og margt fleira.
Ertu búin að lesa Skutlubók-
ina? Nei.
Lestrarhestur vikunnar Sonja María Canada
Sonja María Canada hlakkar til að lesa
nýju bókina.
Miðjupúki er spennandi boltaleikur
fyrir þrjá þátttakendur sem standa
í röð með dálitlu millibili. Þeir
sem eru á endanum snúa hvor á
móti öðrum og kasta bolta á milli
sín en sá sem er á milli þeirra er
miðjupúkinn og á að reyna að ná
boltanum.
Þegar miðjupúkanum tekst að
slá niður boltann eða ná honum með
öðrum hætti skiptir hann um pláss við
þann sem kastaði boltanum síðast.
Miðjupúki
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur
nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða, búa til úr þeim skutlur og skutla þeim í net sem eru í öllum söfnum Borgarbóka-
safns. Vikulega er einn þátttakenda útnefndur lestrarhestur vikunnar og sá eða sú hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Fjársjóðsskilaboð
fundust í flösku
Þau Arney Ingvarsdóttir, fimm ára, og Ísak Már
Davíðsson, sex ára, sem eiga heima í Árneshreppi
á Ströndum fóru í ævintýraferð út í Árnesey og
fundu þar dularfullt flöskuskeyti.
2 9 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R44 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
Yoga alla leið
Yogib.is
Yogib á Fb.