Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 100

Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 100
Menning Komdu, láttu drauminn rætast í góðum félagsskap ! Erum að leita eftir góðum söngmönnum í allar raddir Æfingar í vetur verða á miðvikudögum kl.19:45-22:15 Skemmtilegt lagaval – metnaðarfullur söngstjóri Komdu í raddprufu það verður tekið vel á móti þér Nánari upplýsingar veita Ingvi Rúnar formaður í síma 896 0421 / irg@simnet.is Árni Heiðar Karlsson söngstjóri í síma 863 8381 arniheidar@gmail.com Karlakórinn Stefnir www.kkstefnir.is KARLAKÓRINN STEFNIR KARLA KÓRINN FÓSTB RÆ ÐUR auglýsir eftir nýjum söngmönnum í allar raddir! • Vandaður kórsöngur undir leiðsögn úrvalsstjórnanda • Virk þátttaka í tónlistarlífi þjóðarinnar • Framúrskarandi félagsskapur • Góð aðstaða og að jafnaði ein æfing í viku • Reglulegir viðburðir og skemmtanir • Kórferðalög innanlands sem utan • Hátíðartónleikar, alþjóðlegt kóramót og ýmsir viðburðir árið 2016 í tengslum við 100 ára afmæli kórsins Raddprufur verða haldnar í Fóstbræðraheimilinu miðvikudaginn 2. september nk. Skráning og nánari upplýsingar í síma 820 8582. KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR Stofnaður 1916 K O M D U Í K Ó R I N N ! leiklist krísufundur Dansverkstæðið LÓKAL og Reykjavík Dance Festival Á sviði: Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson, Ragnar Ísleifur Bragason Af sviði: Bjarni Jónsson Hugmynd og handrit: Kriðpleir Hönnun: Sigrún Hlín Sigurðardóttir Leikið á ensku Sviðslistahópurinn Kriðpleir er í krísu. Aðeins eru nokkrir dagar þangað til umsóknarfrestur Leiklistarráðs fyrir sviðslistarstyrki rennur út og Árni, Friðgeir og Ragnar, meðlimir hópsins, eru enn þá að vinna í umsókninni en eru svolítið fastir í ferlinu. Þeir eru farnir að efast örlítið um sitt eigið ágæti, vilja taka skref fram á við og þróast sem listamenn. Þeirra lausn er að bjóða áhorf- endum á Dansverkstæðið til þess að fylgjast með vinnuaðferðum hópsins í þeirri von að finna nýjar listrænar áherslur. Verkið er sýnt í æfingarsal hússins en sviðsmyndin samanstendur af skjávarpa, hljóðbúnaði og svoköll- uðu pásuborði sem kemur nokkuð við sögu í sýningunni. Friðgeir, sem hingað til hefur verið eins konar for- sprakki hópsins, hefur dregið sig í hlé, farið í tíu daga þagnarbindindi og situr lengstum á stól aftast á sviðinu svolítið yfirgefinn en fylgist samt sem áður grannt með frammistöðu Árna og Ragnars. Þeir kynna verkefnasögu hópsins, tína til heimspekilegar hug- myndir og takast á við sviðsljósið. Í Krísufundi leita Kriðpleirsfélagar aftur í fyrra form en í stað þess að sprengja það í tætlur grafa þeir sig dýpra í vandræðaganginn. Slík við- brögð eru virðingarverð en sú spurn- ing vaknar hvort ramminn sé ekki orðinn lúinn, sviðsframkoma hópsins er einstök en fölnar þegar efnið er ekki nægilega sterkt. Augnablikin þegar sýningin stöðvast algjörlega eru frábær, líkt og þegar Ragnar flýr vandræðalegt augnablik með því að endurskipuleggja pásuborð hópsins. Þegar Friðgeir rýfur þagnar- bindindið er að sama skapi virkilega vel gert. Listin á það nefnilega til að lúta fyrir hversdagsleikanum. Vandamálið við sýninguna er að þeir félagar hörfa stöðugt undan áskorunum, stundum gengur þessi afstaða upp en sýningin í heild verður brotakennd fyrir vikið. Brot úr sögum, brot af hugmyndum, brot af ástandi. Þeir kasta fram hugleiðingum varð- andi gildi leiklistargagnrýni en klóra einungis yfirborðið og gleyma sér í persónulegum sögum um sitt eigið líf en tengja frávikin ekki nægilega vel saman. Sýningin nær ákveðnu hámarki þegar þeir takast á um hversu langt er hægt að ganga til að nota persónulega reynslu til listsköpunar sem endar á því að þeir þakka áhorfendum fyrir komuna, kveðja og hörfa enn á ný. Þeir bögglast og berjast eins og áður en Kriðpleirshópurinn situr enn þá pikkfastur í sama rassfarinu. Að ein- hverju leyti er þetta viljandi gert og nokkuð sniðug tilraun til að snúa upp á væntingar áhorfenda en hún vindur lítið sem ekkert upp á sig. Sjálfhverfa af þessu tagi er leiðigjörn til lengdar, þar sem þráin til listsköpunar og sjálfsvit- und blandast saman án þess að nýjar eða krassandi hugmyndir komi fram á sjónarsviðið. Sigríður Jónsdóttir Niðurstaða Kriðpleirshópurinn er ávallt áhugaverður en biðin eftir nýjum hugmyndum er farin að lengjast. Kriðpleir í krísu og lýst er eftir ferskum hugmundum Ég er alltaf að vinna með umhverfi mitt og byggingarkranar eru áber- andi þar,“ segir Ragnheiður Harpa Leifsdóttir sviðslistakona, spurð hvernig hugmyndin að dansverkinu Söng krananna hafi kviknað. Verkið verður sýnt tvívegis úti við Gróttu í dag, klukkan 17 og 21,  og tekur 12 mínútur í flutningi. Ragnheiður Harpa hefur unnið að undirbúningi sýningarinnar, ásamt  Ásrúnu Magnúsdóttur danshöfundi, Jóni Erni Bergssyni kranamanni og Elvari Sævarssyni og Guðmundi Vigni Karlssyni hljóðmönnum. Kranarnir tveir verða á landfyll- ingunni við Gróttu með haf og fjöll sem baktjald. „Kranarnir skipta um takt og tempó, ýmist saman eða hvor í sínu lagi,“ segir höfundurinn og undirstrikar að ákveðin meining sé á bak við hreyfingar þessara stórvirku tækja í náttúrunni. „Kranar eru framlenging á mann- eskjunni og geta verið náttúrunni bæði til góðs og ills eftir hlutverki þeirra hverju sinni. Þeir eru líka mæli- kvarði á fjármagn til framkvæmda í þjóðfélaginu. Ég vona að verkið veki spurningar um hvert við viljum stefna því ábyrgð okkar er mikil gagnvart umhverfinu.“ Ragnheiður Harpa segir söng og dans samofna í gjörninginn. „Þetta verður kranahugleiðsla sem opnar andann fyrir því hvernig við upplif- um dansinn sem áframhald. Ég held að krakkar elski þetta verk. Börn eru svo hrifin af stórum hlutum.“ Verkið er hluti af bæjarhátíð Sel- tjarnarness auk þess að tilheyra Lókal og Reykjavík Dansfestivali. Lausnir lánuðu kranana. gun@frettabladid.is Byggingarkranar syngja og dansa Dans og söngur tveggja byggingarkrana er nýstárlegur viðburður í kvöld úti við Gróttu. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er einn af aðstandendum sýningarinnar. ★★★★★ „Kranar eru framlenging á mann- eskjunni,“ segir Ragnheiður Harpa um verkið Söng krananna sem sýnt verður úti við Gróttu. Fréttablaðið/Stefán ÉG HeLD að kRakkaR eLski þetta veRk. BöRn eRu svo HRifin af stóRum HLutum. 2 9 . á g ú s t 2 0 1 5 l a u g a r D a g u r
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.