Fréttablaðið - 29.08.2015, Page 103
Uppákomur
Hvað Soðið og sultað á Árbæjarsafni!
Hvenær 13.00
Hvar Árbæjarsafn
Líf og fjör á Árbæjarsafni í dag,
sunnudag, þegar starfsfólk safnsins
sinnir hefðbundnum haustverkum
eins og að sjóða og sulta, prjóna og
steikja og ótal mörgu öðru. Á svæðinu
verður hægt að fylgjast með eldsmiði að
störfum. Þá verður guðsþjónusta kl. 14 og
sálmatónleikar kl. 15.
Listamannaspjall
Hvað Listamannaspjall með Helga Þorgils
Hvenær 13.00
Hvar Listasafn Íslands
Björg Erlingsdóttir, verkefnastjóri
fræðsludeildar, ræðir við Helga Þorgils
Friðjónsson um verk hans á sýningunni
SAGA – ÞEGAR MYNDIR TALA.
Hvað Listamannsspjall
Hvenær 15.00
Hvar Hafnarhúsið
Heimsþekkta listakonan Steina ræðir
við gesti Hafnarborgar um list sína og
fjölbreyttan feril en hún tekur þátt í
sýningunni Heimurinn án okkar, sem er
haustsýning Hafnarborgar.
Síðasti séns
Hvað Sýningarlok á Kjarvalsstöðum
Hvenær 10.00
Hvar Kjarvalsstaðir
Sýningunum Júlíana Sveinsdóttir og
Ruth Smith lýkur í dag. Tvær sterkar og
sýningin Veflistaverk Júlíönu Sveinsdóttur
og Anni Albers: Lóðrétt / lárétt. Rúsínan í
pylsuendanum er svo þegar Nicholas Fox
Weber, framkvæmdastjóri Josef og Anni
Albers stofnunarinnar, heldur fyrirlestur
sama dag kl. 15 í tengslum við sýninguna
Lóðrétt / lárétt.
Hvað Náttúrufantasía í Króki – Sýningarlok
Hvenær 13.00
Hvar Við Garðakirkju á Garðaholti í
Garðabæ
Síðustu forvöð að sjá sýningu mæðgnanna
Rúnu K. Tetzschner og Kömmu Níelsdóttur
á málverkum og þæfðum ullarverkum í
hlöðunni við Krók. Aðgangur ókeypis og
allir velkomnir.
Sýningar
Hvað Verk um stríð og frið
Hvenær 17.00
Hvar Borgarleikhúsið, Litla svið
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir þriðja
verkið í fimm verka röð ódauðlegra verka.
Aðgangur ókeypis.
Tónlist
Hvað Barnareggíhátíð
Hvenær 15.00
Hvar Gamla bíó
Barna- og fjölskyldutónleikar með
AmabAdamA, frítt fyrir 10 ára og yngri og
1.000 kr. fyrir aðra.
Hvað Reggíhátíð
Hvenær 21.00
Hvar Gamla bíó
Reggístjarnan Rocky Dawuni ásamt
hljómsveit, AmabAdamA hitar upp.
Aðgangseyrir 3.500 kr.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
„Robin hefur verið að raddþjálfa nöfn
eins og Beyoncé og Bryan Adams,“
segir söngkonan Margrét Eir en hún
er ein af þeim sem standa fyrir komu
austurríska raddþjálfarans Robins D
hingað til lands. Hann verður með
námskeið í sal FÍH við Rauðagerði í
Reykjavík á sunnudag.
Robin D er á meðal fremstu radd-
þjálfara í heiminum og einn eftir-
sóttasti raddsérfræðingur í evrópska
tónlistariðnaðinum, en nemendur
hans og skjólstæðingar hafa átt fjölda
laga á vinsældalistum heimsins og selt
hundruð milljóna geisladiska.
Meðal listamanna sem Robin hefur
þjálfað má nefna Michael Jackson,
Stevie Wonder, Beyoncé, Cher, Bryan
Adams, Barbra Streisand, George Ben-
son og Michael Bolton. „Það er Félag
íslenskra söngkennara sem stendur
á bak við þessa heimsókn. Félagið
heldur upp á tíu ára veglegt afmæli.”
Með aðferðum sínum hefur hann
hjálpað allt frá popp-, rokk- og þunga-
rokkssöngvurum til söngleikja- og
óperusöngvara. „Ég get ekki sagt hvað
hann er að fara að kenna, hef ekki
verið á námskeiði hjá honum áður, en
hann talar um aðferð sem hann kallar
Real balance singing. Þetta snýst um
jafnvægi. Ég er mjög spennt.“
Robin hefur náð undraverðum
árangri í að hjálpa söngvurum við að
víkka út raddsvið sitt, jafnvel um átt-
und í einum söngtíma. Þá eru aðferðir
hans til að hjálpa söngvurum með
raddvandamál, eins og til dæmis
hnúta á raddböndum, viðurkenndar af
læknum. Margir sem hafa þegið með-
ferð hjá honum í slíkum aðstæðum
hafa komist hjá áhættusömum skurð-
aðgerðum. Fullt er á námskeiðið og
er það aðallega ætlað söngvurum og
söngkennurum. – glp
Raddþjálfi Michaels Jackson og Beyoncé kennir á Íslandi
Robin D hefur þjálfað stórstjörnur um
heim allan.
365.is Sími 1817
19:35SUNNUDAGASNÝR AFTUR
Önnur þáttaröðin af þessum vönduðu þáttum í umsjón Sindra Sindrasonar. Í hverjum þætti kynnumst við
íslenskum konum, vel menntuðum, metnaðargjörnum og frábærum fyrirmyndum sem upplifa drauminn í New York.
GLÆNÝ ÞÁTTARÖÐ HEFST Í KVÖLD
Á UPPLEIÐ – Í NEW YORK
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 51L A U g A R D A g U R 2 9 . á g ú S T 2 0 1 5